Vikan


Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 9

Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 9
myndari komu til Markdal, fékk frú Nilsson áminningu. Hún var að koma úr fjósinu, sem er stuttan spöl frá íbúðarhúsinu. Mitt á milli húsanna fann hún rya- mottu, sem hafði verið flevgt á hrattann upp að aðaldyrum hússins. Hvernig gal hún Iiafa komizt þang- að? Á Markdal bjó enginn nema þau hjónin og maðurinn hennar var úti í skógi. Nábúarnir eru fullorðið fólk, sem hafa annað að gera en að hrella grannann. Það eru yfirleitt engin börn þarna né unglingar. Frú Nilsson segir: — Við höfunr búið hér í tuttugu ár og það hefir aldrei komið neitt fyrir, sem getur kallast yfirnáttúr- legt. En svo skeði það 12. márz i fyrra ... Frú Nilsson liafði lagt á morgun- verðarborðið i eldhúsinu. Þau lijón- in voru vön að l)orða á þessum tíma. Allt i einu sá hún eittlivað glitrandi uppi í loftinu og liélt að rifa hefði komið í þakið. En rétt á eftir sá hún gaffalinn, liann lá á þröskuldinum milli stofu og eldhúss . .. Fljúgandi gaffall .. . frú Nilsson skalf af hræðslu. Nokkru síðar sagði hún manni sinum frá þessu. Hann leit dálítið vandræðalega á konu sina, en sagði svo með hægð: — Já, það er nú ýmislegt, sem ég hefi ekki sagt þér .. . Og hann sagði henni það sem hann hafði orðið var við fvrir nokkr- um vikum: Hann var að mjólka í fjósinu, þegar hann sá gráa kúlu fljúga gegnum fjósið og lenda með miklum dvnk i gólfinu, eftir að hafa flogið ii])|) í loftið. Þetta var venjulegur grágrýtis hnullungur á stærð við mannshnefa. Hann var sléttur og á- valur eins og egg og skraufþurr, eins og liann hefði verið tekinn upp í steikjandi sólskini. Fjósgólfið var rennblautt og allar dyr og gluggar lokað. Föstudaginn 13. marz fór frú Nils- son lil að líta eftir smnarbústöðum í nágrenninu, en hún hafði þann starfa að hafa auga með þessum bú- stöðum, þegar enginn bjó í þeim. Hún gelck að næsta húsinu, gulri villu, til að læsa húsinu, því að hand- verksmenn höfðu verið að gera við rafmagn og ýmislegt annað. ílurð hafði verið tekin af hjörum og frú Nilsson hugsaði með sér að hún þyrfti að lagfæra þetta hið bráðasta. Laugardaginn 14. marz fór hún í venjulega eflirlitsferð. I gula hús- inu, sem var hyggt árið 1800 eða þar um bil, hélt hún að allt væri með kyrrum kjörum, en hurðin var þá komin á sinn stað! Þegar hún spurði manninn sinn hvort liann hefði gef- ið sér tíma til að setja hurðina á sinn stað, svaraði hann að hann liefði ekki komið inn í þetta liús í meira en viku. Þau spurðu smiðinn i ná- grenninu, en hann sagðist ekki hafa komið nálægt húsinu i margar vik- ur, enda sagðist hann ekki geta gengið i gegnum læstar dyr! Úti- dvrnar voru kvrfilega læstar. Sama kvöld fóru Nilssonshjónin að heimsækja náhúa sina. Frú Nils- son ætlaði að hafa með sér hlóm- vönd, sem hún var búin að láta nið- ur í tösku, en hún gleymdi töskunni. Morguninn eftir ætlaði hún að taka blómin úr töskunni, en ])á voru þau horfin. Mánudaginn 16. marz, var hún i eldhúsinu, þá sá hún eitthvað svart koma fljúgandi úr næsta herbergi. Hún leitaði um allt eldhúsið, en fann ekki neitt. Nokkrum klukku- tímum síðar gáði hún ofan í tösk- una, þá lá þar vasahnífur. Stimpill var á hnifnum, kóróna og stafirnir ERN. Enginn náhúanna þekkti hníf- inn og Nilssonshjónin höfðu aldrei séð hann áður. —- Þetta var alll nýtt fvrir mér, segir frú Nilsson. Á æskustöðvum minum, heima i Österbotten heyrði ég gamla fólkið oft tala um reim- leika og fyrirboða, sem það hafði bæði heyrt og séð. — En i fyrravor, heldur frú Nils- son áfram, — áður en sumargestirn- ir fluttu hingað, þá var ég stödd í gula húsinu, þegar ég heyrði barið fast i einn gluggann, svo heyrði ég dauf högg og hélt að það gæti verið spæta. En það var ekki nokkur fugl fyrir utan og heldur ekki laus karm- ur i glugganum. Um leið hevrði ég einhverskonar hljóð, líkast katla- mjálmi. Ég skeytti ekkert um þetta, hugsaði að náttúran væri full af allskonar hljóðum. En nú i seinni líð er ég farin að veita þessu Jillu meiri athygli. Einu sinni, þegar maðurinn var farinn fvrir löngu með dráttarvélina út i skóg, þá heyrði ég hamarshögg frá hlöðunni. Ég varð hissa á því að hann væri kominn svona fljótt heim, svo ég fór út i lilöðu. Þar var enginn mað- ur og ekkerl að heyra eða sjá. Löngu siðar kom maðurinn minn og nábú- arnir segjast ekki hafa komið ná- lægt hlöðunni. Fólkið í Roslagen vill endilega að þetta verði atlmgað. Aðalbygging hússins er frá 1700 og hjálkarnir eru handhöggnir. Það gelur verið að lausn þessa máls liggi einhversstað- ar í fortíðinni. Það getur verið að einhver sem þar hjó hafi ekki fund- ið frið ... Markdal var einu sinni barna- heimili og sagan segir að harn hafi drukknað þarna á mjög iskvggileg- an bátt árið 1800. Sumir íbúar Roslagen halda þvi fram að ekkert sé óeðlilegt, það sé yfirleitt hægt að finna sennilega skýringu á öllu, ef farið sé að því með þolinmæði og þrautseigju. Frú Nilsson lieyrði það i barn- æsku að enginn skildi verða hrædd- ur við afturgöngur, það væri um að gera að hrópa til þeirra: — Ilvað viltu? Ég skal hjálpa þér. Þá á það að hafa komið fyrir að hinn órólegi andi hafi svarað .. . Nilssonshjónin hafa engin vitni og þessvegna vilja þau endilega láta rannsaka þetta. ☆ 22. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.