Vikan - 02.09.1971, Side 6
LOKSINS
KVENRETTINDAKONA
SEM KARLMENN
HRÍFAST AF
Bókum um kvenréttindi rignir á mark-
aðinn í svo stórum stíl, að þær eru löngu
teknar að vekja leiða. Flestar eru aðeins
lesnar af fáum.
Svo kom The Female Eunuch, eftir-
Germaine Greer, ástralskan doktor í bók-
menntum. Gagnrýnendurnir, sem lesa
bækur fyrir borgun, urðu yfir sig hrifnir
og lásu bókina aftur yfir ókeypis. Ljós-
myndarar komu og tóku myndir af höf-
undi eftir rútínu, en gleymdu sér af hrifn-
ingu og héldu áfram að taka og taka.
Bandaríska sjónvarpið fékk viðtal, sem
vakti feikna hrifningu hjá glápendum.
Germaine Greer er þrjátíu og tveggja
ara, með sígaunahár og augu sem mynd-
ast vel. Hún varð doktor á ritgerð um
Shakespeare. Hún vildi segja fólki álit
sitt á samfélagi karlmannanna, og vissi
hvernig hún átti að fá það til að lesa og
fá áhuga. Hún var nægilega skír í koll-
inum til að draga goð eins og Shakespeare
og Norman Mailer niður á jörðina.
Greindar stúlkur um allan heim lesa
nú bók hennar með rauðan penna við
hendina. Þær hafa bókina aldrei utan
seilingarfæris frá rúmstokknum til að
geta, þegar í nauðir rekur, flett upp á
einhverju sláandi sannleikskorni í þess-
ari biblíu. Og enskar unglingsstúlkur strá
um sig tilvitnunum í bókina eins og hún
væri eftir einhverja poppstjörnuna.
The Female Eunuch seldist upp á vifcu
í Englandi og var síðan í logandi hvelli
þýdd á tylft tungumála, og systur höfund-
ar í anda segja upp úr hverri síðu: „Hvað
sagði ég?“ Og karlmennirnir sem lesa yf-
ir axlir þeirra kinka kolli. Germaine verð-
ur minnzt í sögunni sem fyrstu kvenrétt-
indakonunnar, sem karlmenn elskuðu.
Sumir segja að hún minni mest á Van-
essu Redgrave, aðrir á Önnu Magnani.
Hún náði geysivinsældum í sjónvarpinu
þegar hún kjaftaði David Frost algerlega
í kútinn.
— Ef nú til þess kæmi að ungfrú Greer,
Ted Kennedy og Norman Mailer yrðu
einu eftirlifandi manneskjurnar á jörð-
inni, með hvorum téðra karlmanna myndi
hún þá kjósa að auka kyn sitt? spurði
Frost.
Út á snilld sína hefur þessi ástralska
rauðsokka fengið forsíðumynd af sér í Life,
uppslátt í sjónvarpi og bókin hennar
hefur selzt í risaupplögum um gervallan
heim.
Hvorugum, hreytti Germaine út úr
sér, — þá væri betrá að láta man'nkynið
deyja út en láta það tímgast út af öðrum
eing, eintökum.
Karlkyns rithöfundur, sem Germaine
hafði algerlega slegið út af laginu í kapp-
ræðu, spurði að lokum uppgefinn í stíl
við Freud: — Hvað er það eiginlega sem
þið konurnar viljið? Og Germaine svar-
aði hunangssætt: — Hvað svo sem það er,
þá er það ekki þú, elskan.
Hún fæddist í Melbourne, Ástralíu, og
móður hennar hlýtur að hafa mistekizt
að rugga henni háttbundið, meðan hún
lá í vöggu. Jafnskjótt og Germaine litla
komst á skrið byrjaði hún að frelsa heim-
inn. Fjögurra ára að aldri gaf hún öll leik-
föng sín í bezta sósíalískum anda. Hún
var stöðugt að reka sig á allra handa boð
og bönn og fannst hún vera misskilin af
öllum.
f skóla varð hún mikið séní og náði
doktorsgráðunni á mettíma. En hún hefur
6 VIKAN 35. TBL.