Vikan - 02.09.1971, Blaðsíða 15
MARIA
SKILIN VIÐ
PÉTUR OG PÁL
í eina tíð var það mjög í
tízku að nokkrar mannverur
úr þekktum og vinsælum
hljómsveitum tækju sig saman
og j stofnuðu nýja hljómsveit,
þar sem þeir voru orðnir leiðir
á því að vera „súperstjörnur“
í sínum eigin hljómsveitum.
Sem dæmi má nefna Peter
Frampton og Steve Marriott,
sem stofnuðu Humble Pie og
eins má ekki gleyma „Blind
Faith“. í flestum tilvikum tókst
þessu ágæta fólki að koma ætl-
unarverki sínu í framkvæmd,
en það var erfitt og fæstar urðu
þessar „súper-grúppur“ lang-
lífar.
Eftir að Blind Faith leið
undir lok, hafa þeir félagar
Crosby, Stills. Nash & Young
orðið frægastir og beztir úr
þessum hópi en þegar þeir voru
orðnir leiðir á að vera saman
í súperhljómsveit, tóku þeir
sig til og gerðust súperstjörn-
Peter, Paul & Mary eru hætt og Mary hefur sent frá sér sóló-plötu.
ur á nýjan leik og það miklu
meiri súperstjörnur en þeir
höfðu nokkru sinni verið áð-
ur. Hafa þeir félagar allir sent
frá sér sólóplötur svokallaðar,
Steve Stills meira að segja
tvær og síðari sólóplatan frá
Neil Young er væntanleg næstu
daga.
Framháld á bls. 41.
Níttúra: SigurSur R., Ólafur Pétur, Björgvin og SigurSur.
NÁTTÚRA
TIL DANMERKUR
Þeir félagar í Náttúru eru
manna fámálastir um sína hagi
og verjast yfirleitt allra frétta
þegar að þeim er gengið. „Það
er ekkert komið á hreint“,
segja þeir alltaf. Á vissan hátt
er þessi afstaða þeirra skiljan-
leg, en samt ekki; með þessu
móti er aldrei neitt „á hreinu"
með hljómsveitina.
En mergurinn málsins er sá,
að næstu daga heldur Náttúra
til Danmerkur, þar sem fyrir-
hugað er að taka upp langþráðu
LP-plötuna. Það er nýtt hljóm-
plötufyrirtæki sem gefur hana
út og þrátt fyrir að þeir hafi
ekkert viljað segja um aðstand-
endur fyrirtækisins, er vitað að
Leifur Þórarinsson, gróinn sam-
starfsmaður hljómsveitarinnar,
er einn aðili. Hinir munu vera
fjársterkir athafnamenn hér í
Reykjavík.
Framhald á bls. 41.
GEORGE: Bangla Desh
JOHN: Ný LP
Einu sinni var . . . hljómsveit
sem hét Beatles . . .
Um þessar mundir kemur á
markaðinn ný tveggja laga
plata með George Harrison og
heitir titillagið „Bangla Desh“,
eftir sjálfstæðu ríki Bengala í
landi því sem áður hét Austur-
Pakistan. Hinum megin er lag-
ið „Deep Blue“ og á allur ágóði
af plötunni að renna til hjálp-
arstarfs vegna flóttamanna-
vandamálsins austur þar. Þá má
og geta þess að nýlega komu
þeir George og Ringo fram á
hljómleikum á vegum Samein-
uðu þjóðanna í New York og
rann allur ágóði af þeim hljóm-
leikum í sama sjóð.
Þá er væntanleg í september
ný LP-plata með John Lennon
og ber hún heitið „Imagine".
Eitt laganna á þeirri plötu fjall-
Framháld á bls. 41.
35. TBL. VIKAN 15