Vikan - 02.09.1971, Blaðsíða 24
«
BOKIN, SEM
HEFUR
SLEGIÐ ÖLL
MET í SÖLU
LOVE STORY hefur orffið metsölubók aldar-
innar, og kvikmynd, sem gerð hefur verið
eftir sögunni, fær hvarvetna geysimikla að-
sókn. Á þessum síðum kynnir VIKAN
bæði söguna og kvikmyndina í tilefni af því,
að bókin kemur út í íslenzkri þýðingu í
haust, og myndin verður sýnd í Háskólabíói
innan skamms.
LOVE STORY
Erich Segal: — Ég ætlaði varla að þora að sýna nokkrum manni handritið.
UM ÁRAMÓTIN 1969—70 kom
{út í Bandaríkjunum skáldsaga
eftir Erich Segal, og hét hún
einfaldlega Love Story. Fram-
haldið þekkja allir, en þó er
ekki úr vegi að rifja upp nokk-
ur atriði í sambandi við þessa
frægu sögu, með tilliti til þess,
að hún kemur út í íslenzkri
þýðingu í haust, og kvikmynd,
sem gerð hefur verið eftir
henni, verður sýnd í Háskóla-
bíói innan skamms.
Love Story varð ekki aðeins
metsölubók ársins í Bandaríkj-
unum, heldur hefur hún á ör
skömmum tíma lagt undir sig
heiminn og er af mörgum tal-
in metsölubók aldarinnar.
Erich Segal er 34 ára gam-
all, fæddur í New York-borg
árið 1937. Hann lauk prófi frá
Harvard-háskóla og gerðist síð-
an prófessor í sígildum bók-
menntum við Yale-háskóla. —
Love Stoty er fyrsta skáldsaga
hans, en áður hafði hann ritað
nokkrar bækur um fornmenn-
ingu Grikkja og Rómverja.
Bezta dóma af þessum bókum
hlaut „Rómverskur hlátur“, en
hún fjallar um latneska skáld-
ið Plautus. Erich Segal samdi
einnig handritið að kvikmynd
Bítlanna, Yellow Submarie, og
eftir það varð hann eftirsóttui:
kvíkmyndahöfundur í Holly-
wood. Af öðrum kvikmynda-
handritum, sem hann hefur
samið, má nefna R.P.M. (Re-
volutions Per Minute), en sú
mynd fjallaði um stúdenta-
uppreisn í háskóla. Leikstjóri
hennar var Stanley Kramer, en
Anthony Quinn lék aðalhlut-
verkið. Loks má geta þess, að
Segal samdi sjálfur kvikmynda-
handritið að Love Story.
í nýlegu blaðaviðtali segist
Segal hafa byrjað að skrifa
Love Story eiginlega ósjálfrátt,
án þess að einsetja sér að semja
skáldsögu. Þegar hann hafði
lokið henni, þorði hann lengi
vel ekki að sýna nokkrum
manni handritið. Loks fór svo,
að bókin hafnaði hjá forleggj-
ara, var gefin út, og þar með
hófst ævintýrið. Henni var
strax svo vel tekið, að útgef-
andinn og ekki síður höfund-
urinn urðu furðu lostnir. Gagn-
rýnendur hældu bókinni flest-
ir, og sumir töldu Segal merk-
asta skáldsagnahöfund, sem
fram hefði komið í Bandaríkj-
unum í langan tíma. Þegar ár
var liðið frá útkomu bókar-
innar, var Love Story enn efst
á lista yfir söluhæstu bækurn-
ar. Hún var orðin að einstæðu
fyrirbæri í bókmenntaheimin-
um.
Hvaða kosti hefur Love Story
til að bera, sem gera hana
svona vinsæla? Þetta er í raun-
ínni ósköp einföld saga um há-
skólastúdenta, Oliver og Jenný,
ástir þeirra og dapurlög örlög
Jennýar. ,Segal telur, að fólk
hafi fundið í sögunni heiðar-
legan sannleika, sem lengi hef-
ur skort í skáldskap nútímans.
Hann lýsir lífi persónanna eins
vel og eðlilega og honum er
unnt. Sagan er sem sagt trú-
verðug í hæsta máta. Segal
þekkir vel líf ungs skólafólks
nú á dögum, vegna starfs síns
sem háskólakennari. Hann
Á einu ári seldust upp sex milljónir eintaka af Love Story, og enn »r
ekkert lát á sölunni.
24 VIKAN 35. TBL.