Vikan - 02.09.1971, Page 41
skilningi laganna.
Maður hennar, sem hafði í
upphafi reynt að hjálpa henni,
sneri baki við henni í árs-
byrjun 1970, og lýsti því yfir,
að hann hefði fundið „betri
konu, sem hann ætlaði að kvæn
ast. Úr fangaklefanum skrifaði
Alice honum langt bréf, þar
sem hún sagði, að ef hann yfir-
gæfi hana að fullu, myndi hún
og börnin ásækja hann síðar
og aldrei veita honum stundar-
frið.
„Börnin heimsækja mig dag
og nótt“, skrifaði Alice Crimm-
ins til manns síns. „Þegar ég
loka augunum, sé ég þau fyrir
mér. Ég get ekki sofið og ekki
fundið frið innra með mér. Það
sem skeði, er þín sök. Ég ætla
að svipta mig lífinu, og síðan
kem ég og börnin og við verð-
um hjá þér svo lengi sem þú
lifir“.
Eftir síðustu sjálfsmorðtilraun
sína, var Alice flutt í annan
klefa, öruggari klefa, þar sem
veggirnir eru klæddir svamp-
gúmmíi. Á hverju kvöldi er
leitað á henni hátt og lágt, áð-
ur en hún fær að leggjast til
hvílu. Það virðist fáránlegt að
vera að halda í henni lífinu,
berjast við það, þegar hún berst
fyrir að svipta sig því. En eins
og fulltrúi ákæruvaldsins sagði
nýlega:
„Ríkið hefur ákveðið, að þessi
kona skuli afplána 20 ára dóm
fyrir morð og það skal hún fá
að gera. Fyrst við komum henni
í fangelsi, viljum við sjá til
þess. að hún afpláni sína refs-
ingu. Þegar hún er laus, getur
hún hinsvegar gert hvað sem
henni sýnist. Vilji hún þá
fremja sjálfsmorð, er henni það
guðvelkomið. Þegar hún er hér,
viljum við halda í henni líf-
nu. Hún hefur haldið því fram,
að hún eldist löngu fyrir tím-
ann og hún á oft eftir að óska
sér þess, að hún hefði aldrei
fæðst í þennan heim. En það
er ekki svo auðvelt fyrir hana.
Dauðinn er of léttbær fyrir
þessa grimmu móður, sem gat
fengið af sér að myrða börnin
sín og fleygja þeim frá sér á
víðavangi. Hún á hvert andar-
tak hér skilið, hvort sem hún
sefur eða vakir“.
Þetta hljómar jafnvel enn ó-
hugnanlegar en glæpurinn
sjálfur, sem Alice Crimmins er
dæmd fyrir, ekki sízt þar sem
fulltrúi „réttlætisins“ talar. Og
við lestur þessarar greinar er
nauihast hægt að vera þess full-
viss, að Alice Crimmins sé sek.
☆
NÁTTÚRA TIL
DANMERKUR
Framhald af bls. 15.
Allt efnið á plötunni verður
frumsamið og hafa þeir félag-
ar verið að semja það og æfa
í sumarbústað suður við
Straumsvík — sagði einhver
glottandi að platan yrði senni-
lega látin heita „Mengun".
Þá hefur einnig heyrzt, að
Náttúra muni koma eitthvað
fram opinberlega í Kaupmanna-
höfn, m. a. á útihljómleikum
og fleira en einhver ólga virð-
ist ríkja innan hljómsveitar-
innar, svo ekki er séð fyrir end-
ann á öllu saman. Víst er þó,
að sitthvað er í bígerð.
☆
SHA NA NA
HOPP OG Hí
Framhald af bls. 14.
ur, og hljóðfæraleikur var tek-
inn við. Við ákváðum aftur á
móti að leggja fyrst áherzlu á
söng og svo á leik, þó ekki
nema væri tilbreytingarinnar
vegna.“
„Það sem við höfum mestan
áhuga á,“ sagði Gino, „er að
vera skemmtilegir á sviði. Við
viljum að fólk skemmti sér.
Þeir sem virðast fá mest út úr
því sem við erum að gera, eru
músíkantar, því í þeirra aug-
um erum við að fara með sögu-
legar staðreyndir. Við erum al-
varlegir á sviðinu en við vitum
að fólk skemmtir sér jafn vel
og við. Þetta er því mikill létt-
ir frá sífelldu stressi við að
hlusta á músík sem það skilur
ekki en þykist skilja."
„Hljómsveitir gera ekki
nægilega mikið fyrir augað nú
orðið,“ sagði Rick. „Sumar
hljómsveitir, eins og til dæmis
WHO, slengja hljóðnemum um
allt, en við vorum einu sinni
með hænu á sviðinu hjá okk-
ur. Það gerði mikla lukku. Ég
held að maður þurfi eitthvað
svona í stað þess að vera ein-
göngu með músík.“
☆
GEORGE BANGLA
DES
Framháld af bls. 15.
ar um Paul McCartney, og eins
og fyrri daginn er Lennon súr.
Um sama leyti kemur út LP-
plata með Yoko og sama dag-
inn og plöturnar koma út verð-
ur sýnd kvikmynd sem gerð
var við upptökuna á plötunum
í brezku sjónvarpi. Með Lenn-
on á plötunni leika m. a. Nic-
ky Hopkins, Klaus Voorman,
George Harrison, Alan White,
Jim Keltner, King Curtis og
Bobby Keyes.
Af Paul er lítið að frétta eft-
ir að hann stofnaði nýju hljóm-
sveitina á dögunum og Ringo
. . . ja, sjáum til í 39. tbl., sem
kemur út 30. september.
☆.
MARlA SKILIN VIÐ
PETUR OG PAL
Framháld af bls. 15.
Og þá er komið að aðalat-
riðinu: Það gerist æ algengara
að ýmsir listamenn taki sig út
úr hljómsveitum sínum og
sendi frá sér plötur einir —
oft með hóp af vinum sínum
með sér. Og oft vill það verða
þannig að vinirnir eru hafðir
með af því að þeir eru frægir
líka og nöfn þeirra á plötuum-
slaginu eru líkleg til að auka
sölu plötunnar að miklum mun.
Þar koma manni í hug nöfn
eins og Rita Coolidge (sem varð
fræg fyrir að vera vinkona),
Calvin Samuels, Dallas Taylor,
Greg Reeves, Buzz Linhart og
fleiri.
En það er skiljanlegt að lista-
menn vilji senda frá sér eigin
plötur, upp á eigin spýtur. Þeir
hafa oft á tilfinningunni að þeir
séu að kafna innan um sam-
starfsmenn sína og sú hugmynd
læðist að þeim, að þeir séu
ekki lengur menn, heldur
maskínur eða maskínubrot. —
Með því að gefa út plötu sem
stendur einfaldlega á „David
Crosby“, „Jón Jónsson" eða
eitthvað, fá þessir sömu lista-
menn á tilfinninguna — og það
skeður í raun og veru — að
þeir eru einstaklingar sem
skipta máli og geta áorkað ein-
hverju. Og víst er, að það eru
ekki einungis rokkarar og lista-
menn sem finnst þeir vera að
týnast í fólksfjöldanum, heldur
ég og þú líka. Og einhvers stað-
ar inn í þessa mynd kemiir
„mengun sálarinnar“, sem Er-
lingur Björnsson talaði um í
viðtali við VIKUNA ekki alls
fyrir löngu.
En þetta var útúrdúr. Peter,
Paul & Mary eru hætt að starfa
saman, og Mary Travers sendi
nýlega frá sér sína fyrstu sóló-
plötu .„Follow Me“. Samstarfi
þeirra lauk snemma sl. vor og
35.TBL. VIKAN 41