Vikan

Tölublað

Vikan - 18.04.1973, Blaðsíða 33

Vikan - 18.04.1973, Blaðsíða 33
FRAMHALDSSAGA EFTIR DOROTHY DANIELS Sögulok. Hver sem hefði verið þarna á ferli hlaut að hafa farið'út úr húsinu um sömu dyrnar, sem nú voru að lokast á eftir mér. Ég óskaði þess heitast, að ég hefði ékki farið út úr ganginum . . . næstum aö kafna. Vefan, sem var I svartri kápu, færöi sig nú aftur aö arninum þegjandi. Ég sá dyrnar opnast, en þær voru afar mjóar, en þó nógu breiöar til aö komast út og inn um þær. Þaö heyröist ekkert i huröinni þegar hún féll aö stöfum, og ég hreyföi mig ekkert, nokkur augnablik, en þá stökk ég á fætur og flýtti mér aö klæöa mig. Ég kveikti ekki á kertinu, vegna þess, aö ljósiö mundi sjást gegn um gluggann, og ég vildi láta þessa dularfullu veru halda, aö ég væri steinsofandi. Ég gekk aö arninum til þess að- athuga leynigöngin. Ég hafbi séö óljóst þegar múrsteinarnir hreyfðust, svo aö dyrnar gætu opnazt, en ég vissi ekki, hvernig ég ætti aö hreyfa hana og tók þvi aö þukla á múrsteinunum. Ég fann steininn, sem lét ofurlitiö undan þegar ýtt var á hann. Ég ýtti fast og þá heyrðist ofurlitill smellur og horniö á arninum færöist fram. Ég fór inn i dyrnar og kom þá I lltið herbergi, sem var litiö annaö - en skápur. Þegar ég kveikti á kertinu, blakti ljósiö ekki neitt, svo aö liklega voru þarna engar aörar opnar dyr. Tröppurnar niöur úr þessu herbergi voru svo brattar, að þær liktust meir lausastiga og þegar ég gekk niöur þær, varö’ég aö styöja mig við vegginn til þess aö halda jafnvægi, en i hinni hendinni héltég á kertinu, sem ég ýar tilbúin að slökkva á, ef ég heyrði nokkra mannaferð i ganginum. Ég gekk niður liklega sem svaraði hálfri hæö, og þá lá mjór gangur til vinstri og enda þótt tröppurnar lægju áfram niður, þá kaus ég heldur að fara eftir þessum gangi og kom þá i annaö Htiö herbergi. Þá gekk ég niður tilsvarandi tröppur, þangab til ég kom aö múrvegg, sem lá að arninum. Meö þvl aö athuga múr- steinana fann ég, hvernig ópna ætti þröngu dyrnar og ég ýtti hurðinni ofurlitiö upp, og velti þvi fyrir mér, hvar ég væri nú og treysti mér ekki einusinni til aö geta upp á þvi. Og hissa varö ég, þegar þessar dyr lágu inn i svefnherbergi móöur minnar. Mér þótti. ekki taka þvi aö fara þangað inn, afþvi að hún var þar ekki, vissi ég. Ég gat séö, aö enginn var i rúminu, en skyldi hún vita um þessi leynigöng? Ég gekk niður næsta stiga, gekk eftir samskonar gangi og svo upp annan stiga. Þaö var greinilegt, aö allar ibúöirnar i þessari álmu vor samtengdar með þessum slynglega útbúnu göngum og herbergjum. Ég fór inn um næstu dyr, sem mundu liggja aö ibúö föður mins. Ég opnaöi varlega, ef ske kynni, að kvenmaöurinn þar væri vakandi. En ég heföi ekki þurft aö fara svona varlega, þvi aö enda þótt rúmiö liti út fyrir aö hafa verið skipað nýlega, þá var að minnsta kosti enginn i þvi nú. Ég gekk inn og svipaðist um. Farangur kvenmannsins var hvergi sýnilegur. Ég opnaöi tvo skápa áöur en ég fann hann. Kvöldkjóllinn, sem hún hafði verið i, kvöldinu áöur, hékk þar ásamt slopp og náttkjól. Ég var fegin aö sjá þetta, þvi að það auðveldaöi brottför mina úr húsinu. Agengni móður minnar oglauslæti fööur mins stuölaöi ekki að hamingjusömu fjölskyldulifi. En af ungfrú Wethering sást hvorki tangur né tötur. Ég velti þvl fyrir mér, hvert hún hefði getaö fariö. Areiðanlega haföi hún ekki aðgang aö öllu húsinu. Og þó að frú Voorn vissi um þarveru hennar, var jafnvist, að stúlkurnar vissu þaö ekki. Liklega heföi stúlkan orðið óþolinmóö og væri á flandri^ um húsiö, en þóáreiöanlega ekki eftir leynigöngunum, þvi að þá hefði ég heyrt til hennar. Ég fór út úr herberginu og niöur einn stigann. Ég þreifaði aftúr.eftir múrsteini, sem mundi opnast inn i annað herbergi. En hissa varö ég þegar hann opnaöist beint út úr húsinu. Ég gægöist út og sá, aö þettá var aö húsabaki. Vindurinn slökkti strax á kertinu og ég stóö þarna i myrkrinu og gamla hræðslan greip mig nú eins og áöur. Hver sem hefði verið þarna á ferli hlaut að hafa fariö út úr húsinu um sömu dyrnar, sem nú voru aö lokast á eftir mér. Ég óskaöi þess heitast, aö ég heföi ekki farið út úr ganginum. Ég snarsneri mér viö og ætlaöi inn aftur, en ég kunni ekki á læsinguna, þvi að þarna var veggurinn úr grófum steini en ekki múrsteini. Þaö var ekki annað að gera en ganga kring um húsiö, framhjá hesthúsunum, þangaö til ég kæmi aö akbrautinni, og ganga svo upp aö húsinu. Væru dyrnar læstar - og það voru þær vafalaust - yrði ég ab nota dyrahamarinn þangaö til einhver vaknaöi til aö hleypa mér inn. Mér var alveg sama þó ég ónáöaöi frú Voorn og móögaöi hana, þvi aö nú var ég ákveönari en nokkru sinni áöur aö yfirgefa Skuggagil eins fljótt og auðið væri. Ég óskaði þess, að ég hefði skrifaö Mike daginn sem Bridey var myrt og beðiö hann aö koma og sækja mig. Bréfiö, sem ég haföi sent i dag væri ekki komið I póst og á leiö til hans. Ef lestar- vöröurinn heföi sett þaö i póst, eins og ég baö um, mundi Mike ekki fá það fyrr en á morgun og það kom mér aö engu gágni. Ég gizkaöi á, aö komið væri fram yfir miönætti og ég vissi aö ég hafði eytt talsverðum tlma i göngunum, þvl aö ég haföi gætt þess aö hræöa ekki næturgestinn, sem var þar alltaf á ferli. Ég fann næturkuldann og þrýsti örmunum aö likamanum, til aö hita mér og gréikkaöi sporiö. Þegar ég fót framhjá hesthúsinu, heyröi ég hrotur. Þaö hlaut aö koma frá þessum vara-næturstað sem Hawkins notaði, þegar hann þurfti að sofa úr sér vimuna. Ég gægöist inn I litla herbergiö og eins og áöur lá hann upp I loft og hraut og tóm flaska stóð á gólfinu, rétt utan seilingar hans. t fyrra skiptiö haföi hann veriö látinn finna fulla visklflösku, svo að hann yröi ekki fyrir þegar hinn dularfulli riddari væri reiöubúinn aö fara út aö riða. Nú var Hawkins enn fullur og meö flösku viö hlib sér. Ég fann hræösluna hrislast um mig alla. Eitthvaö var I þann veginn að gerast. Eitt- hvaö, sem stæöi i sambandi viö þennan andstyggöar svarta fola. Ég aögætti básinn hans. Hann var tómur! Ég þaut út úr hesthúsinu, til þess aö komast inn I húsiö þar sem mér mundi óhætt, nú altekin hræöslu og sýndi hræöslu mina með þvi aö llta um öxl I hverju skrefi. Ég fleygöi meira að segja kertastjakanum frá mér til þess aö geta haldið uppi kjólnum meö" báöum höndum og hlaupiö hraðar. Ég hljóp fyrir hornið á hesthúsinu og hesthúsgaröurinn var fram undan mér. Einhver var inni I giröingunni - einhver i ljósum kjól - grannvaxin kona! Þá heyröi ég hófaskellina nálgast. Þeir komu nær og nær. Svo hættu þeir allt i einu, rétt eins og tekið heföi verið i taumana. Folinn veinaöi. Þegar ég sneri mér viö, sá ég hestinn og riddar- ann og skepnan prjónaði og krafsaði út I loftið með sterkum framfótunum. Ég velti þvl fyrir mér, hvernig riddarinn vissi, að ég var þarna úti, og hvernig þessi gildra heföi veriö egnd fyrir mig. En þá sá ég, aö ég haföi aíls ekki sézt, heldur var riddarinn i þann veginn aö Framhald á bls. 35. 16. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.