Vikan

Tölublað

Vikan - 18.04.1973, Blaðsíða 40

Vikan - 18.04.1973, Blaðsíða 40
fengið fullkomna stjórn á llfi sfnu, eftir þessi þrjú ár. „Við skulum dvelja við þetta andartak”, segir hún glaðlega. „Það eru aðeins þrjú ár siðan ég þurfti að velta hverjum eyri, ég þurfti að velja á milli hvort ég vildi láta þvo þvottinn minn eða kaupa mat. Ég veit að þetta lif mitt uhdanfarin ár, er þaö líf sem marga dreymir um, en þaö er ekki minn draumur. Þaö getur verið að ég sé vanþakkiát, en mér finnst ég ekki hafa tima til að lifa lifinu. Ef ég fæ ekki viður- kenningu fyrir leik i Gatsby, — sem ég reyndar trúi á, þá skiptir það ekki svo miklu máli, mér er alveg sama þótt ég leiki aldrei framar i kvikmynd. Ég get ekki hugsað mér að leika i tveim til þrem kvikmyndum á ári, það fyndist mér vera að afneita sjálfri mér, ég þrái rólegt einkalif og minna álag. Ég veit ekki hvort 'nokkur möguleiki er fyrir þvi, en ég ætla sarpt að reyna.” SEINHEPPNI INNBROTS- ÞJOFURINN Framhaid af bls. 19. brúnum. — Þér skiljið þe'tta ekki, sagöi hann i simann. — Ég kom hingað i heimsókn til hennar frænku minnar og fann skápinn opinn. Ég skellti hurðinni aftur en þá heyrði ég kött mjálma..........Ég sagði kött . . . Já, það stendur heima . . . .kattarbjálfinn er þarna lokaður inni. Og nú get ég ekki náð I hana frænku mina til aö segja inér til um læsinguna. . . . .Hann þagnaði en svo var tónninn reiöilegur. — Já . . . .nú jæja, ég skai þá kalla á lögguna, ef þér viljið það endilega. Hann skellti simanum á og sneri sér að mér. — Hvað finnst þér? sagði hann i grimmdartón. — Þeir vilja ekki einu sinni bjarga varnarlausu dýri út úr járnskáp .... — Hvaða dýri? sagði ég. Hann lét sem hann heyrði ekki til min. — Nú, ef ég get ekki náð i lásasmið.þá næ ég bara i lögguna. — Lögguna? æpti ég og skalf frá hvirfli til ilja. — Það geturðu ekki gert, Ruby. — Þvi ekki það? Henrii er ætlað að hjálpa fólki. Er hún ekki alltaf að bjarga köttum upp úr göturæsum og þessháttar? Og þá ætti hún að geta bjargar ketti út úr peningaskáp. — Já, en það er bara enginn köttur inni I skápnum, Ruby. — Hvernig veiztu það? Ertu kannski með röntgenaugu eða eitthvað þessháttar? — Já en lögguna, Ruby .... — Það er ekki nema hennar verk. Og þó að þeir finni engan kött þarna . . . .Mér getur alltaf hafa skjátlazt, er það ekki? Enginn er alfullkominn, ekki satt? Hann gekk aftur að simanum og sérhver varúðarkennd sálar minnar skipaði mér að taka til fótanna og leggja á flótta, en nú var bara svo langt heim til min, að ég neyddist til að standa kyrr meðan Ruby hringdi I lögreglu staðarins, sagöi til nafns sins og sagði það sem satt var um heimsókn okkar. Nema vitanlega um þátt kattarins. Ég gat nú ekki heyrt, hvað sagt var hinumegin, en ég sá á svipnum á Ruby, að hann ætlaði að hafa erindi sem erfiði. Ég held, að það sem hélt I mér lifinu næstu tvo klukkutimana hafi verið brúni vökvinn, sem ég hellti fjórum sinnum i litla glasið. Ég var orðinn það rólegur, þegar lögregluþjónarnir komu að ég var farinn að trúa þvi, að þarna væri köttur inni i svarta skápnum i svefnherbergi frú Herkimer. Ég held ég hafi næstum verið farinn aö gráta ,af eintómri vorkunn- semi. Mennirnirtveirsem komu, voru báðir I venjulegum fötum, og annar þeirra virtist vera talsvert kunnugur frú Herkimer. Hann hét Kelly og hann sagði: Ha? Er þetta kötturinn, sem hún týndi fyrir eitthvað tveimur mánuðum? — Týndi? át Ruby eftir eins og bjáni, Hvaö eigið þér við? — Það var hringt til okkar frá frú Herkimer, fyrir eitthvað tveimur mánuðum og tilkynnt, að kötturinn hefði strokið og ekki komið aftur. Henni þótti afskaplega fyrir þessu og hún bauð hundrað dala fundarlaun. Og það finnst mér nú fjandans mikið fyrir eitt kattarkvikindi. Hinn maðurinn, ljæruskotinn fimmtugur maður með dálitla istru, skrikti. — Kannski fáum við fundarlaunin ef okkur tekst að. opna skápinn. — Ef nokkur getur opnað hann, sagði Kelly, - þá er það hann Harris. Þú héfðir orðið snilldar innbrotsþjófur, ekki satt, Al? Jú sjálfsagt. Istrubelgurinn' glotti. — En ég er bara of tauga- óstyrkur. Ef þetta er venjulegur gamaldags skápur, þá er það allt i lagi, en þið megið ekki búast við neinum kraftaverkum ef það er eitthvert nýmóðins verkfæri. Þá þarf sérstök áhöld, sem ég hef ekki. Við fórum allir inn i svefn- herbergið og sá digri tók til við verk sitt. Ruby fylgdist vandlega með honum - hefur lfklega verið að reyna að afla sér einhverra fróðleiksmola, upp á framtlðina til að gera, en sjálfur lagðist ég niður á rúmið til þess aðhvila mig og reyna að fá herbergið, sem hafði verið að hringsnúast. til að komast- aftur i réttar stellingar. Ekki veit ég hversu lengi lög- reglumaðurinn svitnaði og stundi yfir læsingunni - liklega hefur það ekki veriö nema tiu minútur en mér fannst það vera margir klukkutimar En fyrst þegar ég sá skepnuna i svefnherbergis- dyrunum, hélt ég að ég væri búinn að fá delluna og ég settist upp og deplaöi augunum, i þeirri von, að sýnin hyrfi. En það gerði hún bara ekki. Stóð þarna bara hin rólegasta og horfði með áhuga á það, sem fram fór. Eftir stundar- korn varð mér ljóst, að þetta var ekki nein missýning heldur raun- veruleiki. — Hæ æpti ég. — Kötturinn. Þeir snarsneru sér allir við og horföu þangað sem ég benti. Bröndótti kötturinn i dyrunum virtist ekkert skeyta um þessa eftirtekt, sem hann vakti, en tók að sleikja á sér loppuna, salla- rólegur. KjÖrorðiðer: Blóm á borðið ¥ Höfum ávallt til úrval afskorinna blóma. Einnig skreytingar með stuttum fyrirvara. Svo sem: Körfur, borðskreytingar, brúðar- vendi, kransa, krossa, kistuskreytingar og m.fl. Ath. Yfir fermingatimabilið höfum við opið kl. 10-4 á sunnudögum á Skólavörðustig. * Blóm og Grænmeti h.f., Skólavörðustig 3 - simi 16711 Langholtsvegi 126 - sími 36711 40 VIKAN 16. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.