Vikan - 05.09.1974, Blaðsíða 10
Forvitin röndótt/ guL rauð
og blá.
Kæri Póstur!
Ég ætla nú ekki að hafa þetta
langt. En þó ætla ég að spyrja
einhvers, og við skulum vona, að
það sé eitthvað af viti (frá minni
hálfu). Ég er ekki i neinni ástar-
sorg, þvi ég er svo mikill engill,
að ég held mig heima viö og er
ekki á neinu strákaflandri. En
mig langar aö vita, hvort ég, eða
einhver kvenmaður geti orðið
áskrifandi að Play Girl, ameriska
blaðinu, sem hefur bera karl-
menn á hverri siðu? Og svo
langar mig að vita, hvernig
vatnsberi og dreki passa saman
sem vinir. Jæja, og svo þetta
vanalega, hvað heldurðu að ég sé
gömul. Ég vona, að þú birtir
þetta eða gefir mér svar, þvi ég
hef skrifaö svo oft, en ávallt lent i
þessari frægu ruslakörfu.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtingu.
Ungfrú Þóra Svavarsdóttir
P.s. Þér megið birta mitt nafn.
Það er nú tæplega hægt að kalla
það dyggð, Þóra min, þó þú sért
ekki á neinu strákaflandri, svo
ung sem þú ert. En þú ert greini-
lega mjög forvitin um að kynnast
þessari óútreiknanlegu veru —
karlmanninum — i Adamsklæð-
um. Play Girl er mánaðarrit sem
kostar kr. 204.00 i lausasölu, og
öllum, bæði konum og körlum, er
heimilt að gerast áskrifendur að
þvi. Blaðið fæst t.d. I Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar og vafa-
laust viðar.
En ég tel samt hollara fyrir þig,
að þú byrjir á að lesa ýmis önnur
rit eöa bækur um karlmenn,
konur og kynlif, til að fá forvitni
þinni svalað. Ég hefi hjá mér bók
um þessi mál og tel hana mjög
heilbrigt og athyglisvert lestrar-
efni fyrir unglinga.
Hún heitir „16 ára eða um það
bil” og fæst í flestum bókaverzl-
unum. Vatnsberi og dreki eiga
ekki sérlega vel saman, segja
stjörnurnar mér, og þú ert ekki
nema 13— 14 ára.
Ást í 5 mánuði/ svar til
Guddu
Tja, þú hefur laglega lent I þvi,
Gudda mln. Reyndu að vera svo-
Htið varkárari næst og reyndar
ekki bara næst, heldur alltaf
framvegis. E.t.v. eru þessir menn
ekki svo ýkja slæmir inn við bein-
ið, en nota samt þau tækifæri,
sem þeim bjóðast, hvort sem þeir
eru giftir eða ógiftir. En Póst-
urinn telur sig ekki þess umkom-
inn aðdæma einhvern óheilbrigö-
an eða heilbrigðan.
1. Steingeit (kk) og vatnsberi
(kvk), geta oröiö góðir vinir, en
varla neitt meira. Þið þurfiö
tilbreytingu, en eruð of lík til að
sjá hvort öðru fyrir henni.
2. Naut (kk) og vatnsberi (kvk)
hafa mikiö að gefa hvort ööru.
Nautið er afar heitgeðja, en
vatnsberinn dálitið kaldur. Með
góðum vilja ættu þessi merki
að geta unað sér vel saman.
3. Tviburar (kk) og vatnsberinn
(kvk) eiga ágætlega saman.
Stjörnurnar segja, að náið
samband merkjanna geti varla
mistekist og endist að öllum
llkindum alla ævi. Þú mátt nú
samt ekki halda, að stjörnú-
spáin sé órjúfanlegt lögmál, en
ég sel þetta ekki dýrara en ég
keypti það.
4. 2 vatnsberar (af báðum
kynjum) verða yfirleitt góðir
vinir, en varla neitt meira.
Báðir eru I þörf fyrir tilbreyt-
ingu, en eru of likir til að sjá
hvor öðrum fyrir henni.
Ég gizka á, aö þú sért 17 ára, og
Gisli Baldur Garðarsson mun
vera á miðjum þritugsaldri.
Viö vorum að rífast
Kæri Póstur!
Ég ætla að byrja á þvi að þakka
þér fyrir allt gamalt og gott. Ég
kaupi alltaf Vikuna og les mikið i
henni. Jæja, ætli sé ekki bezt að
koma sér að erindinu. Ég og vin-
kona min vorum að rffast um
Gylfa Ægisson, við vorum ekki
sammála um það, hvar hann ætti
heima og fleira. Svo nú ætla ég aö
biöja Póstinn að hjálpa mér, ef
hann getur. Hvar á Gylfi heima?
Hvað er hann gamall? Er hann
giftur? Ég vona, að þú birtir þetta
bréf, svo við þurfum ekki að rifast
meira.
Vertu svo blessaður og sæll,
Mekka.
Gylfi Ægisson mun eiga heima
á Hornafirði, en Pósturinn hefur
ekki á reiöum höndum fullkomn-
ar upplýsingar um aldur hans eða
einkalif. Þó held ég, að hann sé
kvæntur og sé á aldrinum 30 — 35
ára.
Pennavinir úti
Kæri Póstur!
Þetta er i annað sinn, sem ég
skrifa þér i þeim tilgangi að þú
svarir mér. Vikan er alveg stór-
fint blað, en nú kem ég að efninu.
Mig langar svo til að skrifast á við
Vestur-lslending úti i Kanada.
Hvar get ég komist i samband viö
hann. Annaðhvort stelpu eöa
strák, sem geta skrifaö islenzku
og lesiö hana. Ég vona svo inni-
10 VIKAN 36. TBL.