Vikan - 05.09.1974, Blaðsíða 36
sig, hugsaði hún sér Latimer vera
að biða eftir henni á stöðinni i
Chicago. Hún hugsaði sér simtöl
við hann, þar sem röddin i honum
skalf af þrá eftir henni. Og út frá
þessum imyndunum, hleypti húu I
sig dálitlum kjarki. En samt fann
hún enn örvæntingarfulla þörf á
að hafa einhvern með sér. Hún
snerti handlegginn á manninum
sinum.
— Lew, mér þykir afskaplega
leitt, að ég skyldi vera að þjóta
upp. Reyndu að gleyma þvi. Hún
kreisti á honum handlegginn.
Hlustaðu nú á. Komdu með mér
til Chicago. Þú getur fengið þér
tannbursta og náttföt þar. Við
skulum taka okkur þetta fri
saman. Þegar hún heyrði sjálfa
sig segja þetta, varð hún skelf-
ingu lostin. Hefði hún bara beðið
hann pabba sinn að koma með
sér. Það hefði verið dásamlegt.
Maöurinn hennar hallaði sér að
henni og andlitið ljómaði af
fögnuði. Aldrei hafði hún séð
augun i honum ljóma svona.
—Rósa, elskan min. Og ég sem
hélt alltaf, að þú værir að fara i
þetta ferðalag til þess áð losna við
mig.
— Ég vil fá þig með mér. Ég vil
ekki fara alein.
Hann hristi höfuðið. — Ég get
það ekki. Ekki einu sinni i eina
viku. Ég þyrfti þá að fá annan
lækni frá Ashwood. Það eru mörg
flensutilfelli og i einu þeirra er
hætt við lungnabólgu.
Langt úti á brautinni heyrði hún
lestina nálgast. Hún horfði á
svarta eimreiðina með gufustrók-
um upp úr. Hún heyrði, að hann
hélt áfram að tala, glaðlega og
hlakkandi: — Þú hefur ekki nema
gott af þvi að losna við mig og
bæinn. Jafna þig svolltið. Og
kannski verðurðu ekki eins lengi
og þú ætlaþir.
Einhvern veginn eins og ósjálf-
bjarga, svaraði hún dauflega:
—Ég ætla að vera lengi, lengi
burtu.
Lestin kom þjótandi. Maður
hennar rétti henni farangurinn.
Lestarvörðurinn snerti handlegg-
inn á henni og hjálpaði henni upp i
vagninn. Lestin fór af stað og hún
stóð i ganginum, leit út um glugg-
ann og sá manninn sinn veifa
stórri hvitri hendi.
Vagninn var hálftómur. Hún
setti töskuna sina á sætið, en sett-
ist ekki niður. 1 stað þess gekk
hún eftir ganginum og aftur i aft-
asta vagninn. Þegar þangað kom,
sá hún þar nokkra farþega.
Viktor var ekki þeirra meðal.
I rigningunni sýndist Chicago
einna likust skógi, en þó aðeins
villugjarnari og einmanalegri en
skógurinn, sem hún hafði hingað
til búið við. Henni fannst sem hér
væri hægt að villast, án þess aö
rata nokkurntlma á rétta leið
aftur.
Þessi einmanaleiki, sem var
állka kuldalegur og rigningin,
settist að henni. Þetta var sárs-
auki, sem fór um hana alla. Hana
langaði mest til að gráta. Hún
þráði einhvern. Pabba sinn, eða
Lew eða jafnvel Viktor.
Leigubillinn staðnæmdist og
hún var komin að dyrunum á
Lakewater-hótelinu, sem var fint,
framandlegt og fráhrindandi.
Hún varð reiö við sjálfa sig og
hugsaði sér að hún væri að haga
sér eins og sveitastelpa. Þessi
sjálfsásökun hressti hapa ofur-
litið við. Hún steig út úr bílnum,
borgaði farið. Þjónn i einkennis-
búningi flýtti sér að taka
töskurnar hennar, og gekk svo á
undan henni inn i forsalinn.
Þegar þangað kom, staðnæmd-
ist hún til þess að ná andanum.
Hún leit kring um sig i loftháa
salnum. Stærð hans og búnaður
og svo öll ljósadýrðin, eyddi að
nokkru kviða hennar, og hún var
gripin þeirri tilfinningu, að á
svona skrautstað ætti hún raun-
verulega heima. Hún leit á fina
fólkið, sem hvildi sig þarna I
skrautlegu stólunum. Það var
velbúið og sýnilega rikt og ver-
aldarvant. Konurnar virtust
geisla þvi frá sér, og karl-
mennirnir virtust lika vera
einhverjir burgeisar og stóriðju-
höldar. Henni fannst þeir álika
sterklegir og öruggir um sjálfa
sig og Latime var.
Þetta var hennar staður og
hann skyidi hún aldrei yfirgefa.
Hún sneri sér, örugg og
einbeitt, að afgreiðsluborinu. 1
þeirri trú, að Latimer mundi
koma hingað og vera hjá henni,
fékk hún sér heila ibúð, með setu-
stofu, svefnherbergi og baði. Það
skipti engu þó að verðið stæði ekki
i neinu hlutfalli við fjárráðin
hennar. Þvi aö undir eins og þau
Latimer væru komin saman,
þyrfti hún ekki lengu að horfa i
kostnaðinn.
Hún stóð á öndinni af spenningi
þegar hún elti piltinn með
töskurnar, og nú fannst henni hún
vera drottning. Þykka teppiö
undir fótum hennar var likast þvi
Megrunar
Fæst i öllum
apótekum
KEX
Trimetts' savotiries
Ðu^flmrQflr fUwotJr tMncuHa 3
Trimetts
crunch crecms
Vanftty flavour biw.ufts
jLimmíís
Í:W'
MEGRUN
ÁN
SULTAR
a,
SUÐURLANDSBRAUT 30
P O. BOX 5182
REYKJAVlK - ICELAND
Krahba-
merkiö
Hrúts
merkið
21. marz —
20. april
Þú virðist mjög
vinsæll og eftirsóknar-
verður þessa dagana,
en þú færð þig fljótt
fullsaddann. Vendu
þig á að vera ákvenari
og blttu frá þér, erþér
þykir keyra um þver-
bak.
Nauts-
merkið
21. april —
21. m aI
Þú verður fyrir happi,
en þú mátt ekki spilla
þvi með galgopahætti
og kæruleysi. Haltu
fast um þitt. Þú hefur
mikil samskipti við
ákveðinn kunningja-
hóp. Vertu heima um
helgina.
Tvibura-
merkiö
22. mai —
21. júni
Þú hefur gerst of frek-
ur og ráðrikur með
ákveðinn hlut og kann
það ekki góðri lukku
að stýra. Varastu aö
treysta ákveðnum
aöila — honum er ekki
sjálfrátt eins og er.
22. júni —
22. júll
Þú hefur tekið á herð-
ar þér allmikið verk-
efni og stendur með
undraveröum ágætum
I skilum á þvi. Helgin
verður mjög
skemmtileg, tilvalin
til feröalags. Láttu
ekki ákveðin mál
dragast á langinn.
Ljóns
merkið
Meyjar
merkið
24. júll —-r
24. ágúst
Þú kemst aö einhverju
ráöabruggi, sem gerir
þig mjög spenntan.
Varastu samt að láta
bendla þig við það.
Margt ber á góma og
eru eftirmiðdagarnir
fjörugastir. Þú verður
I skemmtiiegu heim-
boði.
24. ágúst —
23. sept.
Þú gerir eitthvaö, sem
þú verður mjög hreyk-
inn af og þú munt fá
hrós fyrir. Dagarnir
verða hver öbrum lik-
ir, en kvöldin hafa til-
hneigingu til aö verða
dálltið óþjál.
36 VIKAN 36. TBL.