Vikan - 07.11.1974, Side 32
Winter Þrihjól.
Velamos reiðhjól drengja og telpna.
20 með hjálparhjólum.
Ódýr og góð hjól.
*
Öminn
Spitalastig 8 — simi 14661
eeeeeeeeeeeeeeeeeee
Peningar myndu ekki gera mér
llfið bærilegra
Anita Precious hafði verið i
hamingjusamri sambúð með
Raymond Atkinson i 7 ár. Þau
höfðu bæði verið I hamingjulitlum
hjónaböndum áður og höfðu veriö
einmana og illa haldin, þegar þau
kynntust.
„Við töldum litla ástæöu til að
gifta okkur. Raymond varð að sjá
fyrri konu sinni og börnum far-
borða, og þá var lltið eftir af pen-
ingum. Stundum, ef launin voru
litil, lét ég hann hafa af mlnum
peningum, svo hann gæti borgað
með börnunum. Það var i von um
að geta þénað meira, sem hann
fór á sjóinn”.
„1 fyrstu ferðinni hans I fyrra
var-söknuðurinn nær óbærilegur.
Hann sendi mér símskeyti, bréf
og blóm, og ég vissi, að honum
leið ekkert betur en mér. A jólun-
um varhann heima, og við nutum
helgarinnar meö börnunum min-
um þremur, sem þótti eins vænt
um Raymond og hann væri faðir
þeirra”.
„1 vikunni, sem hann fór á sjó-
inn, hitti ég vinkonu mina, en
maðurinn hennar hafði drukknað
skömmu áður. Ég samhryggðist
henni — og nokkrum dögum siðar
var ég á sama báti, og hún kom til
að reyna að hughreysta mig.
Maður trúir þvi aldrei aö þetta
geti komið fyrir mann sjálfan. Ég
sótti buxurnar hans i hreinsun og
skóna til skósmiðsins og setti inn i
skáp. Fötin hans eru öll á sínum
stað, og ég mun ekki hreyfa við
þeim”.
„Nú verð ég að reyna að byrja
upp á nýtt.... en hvernig? Börnin
hafa tekið þetta mjög nærri sér,
en vinir okkar hafa reynt að
hjálpa okkur. Hann var svo róleg-
ur og góður, og það fór aldrei
styggðaryrði á milli okkar. Ég
hefði ekki verið neitt hamingju-
samari, þótt við hefðum gift okk-
ur.... hann langaði til, aö við gift-
um okkur á jólunum. Hann lang-
aði til að eignast dóttur, þvi hann
átti syni fyrir....”
Þar sem Anita Precious var
ekki lögleg eiginkona Reymond
Atkinson fær hún engar bætur eöa
lifeyri eftir hann. Meira aö segja
tryggingin, sem hún tók fyrir
hann og borgaði úr eigin vasa,
rennur til löglegra ættingja hans.
En hún kvartar ekki: ,,Ég á hon-
um að þakka sjö beztu ár ævi
minnar, og peningar myndu ekki
gera mér lifið neitt bærilegra”.
En hvernig sem tryggingamál-
um einstakra sjómanna var hátt-
að, þá hafa hjálparsamtök sjó-
manna (Royal National Mission
to Deep Sea Fishermen) stutt við
bakið á fjölskyldunum og munu
reyna að gera þaö, þar til konurn-
ar giftast aftur og börnin eru orð-
in sjálfbjarga.
i
32 VIKAN 45. TBL.