Vikan


Vikan - 26.12.1974, Blaðsíða 18

Vikan - 26.12.1974, Blaðsíða 18
an ein, sem blifur. Núna er ég meB þrjá togara I gangi, fjóra báta og frystihús. Aö byggja upp atvinnulifið i landinu er sú fullnæging lifsins, sem varir leng- ur en eitt andartak — hahahaha. Já, gamli minn, við þessir gömlu jaxlar erum harðir undir tönn, ef þvi er að skipta — en uppbygging atvinnuveganna og vinna handa fólkinu er fyrir öllu. Hvar held- uröu, að visindin og listirnar væru, ef enginn fiskur veiddist. An fisksins er ekkert. John beið eftir að tölu útgerðar- mannsins lyki og spurði siðan hikandi: Hvað varð af myndun- um I kjallaranum? Hann hlýtur að hafa málaö eitthvað siðustu árin. — Já, eitthvað málaði hann, enda sendi ég þér þrjátiu þúsund rétt eftir aö hann dó. Þaö fékkst ekki meira fyrir þær þá. ■ — Tiu þúsund. — EBa tiu þúsund, ég er búinn að gleyma, hvað það var mikið, megnið af þessu fór I kostnaö við jarðarförina. • — En myndirnar I kjallaran- um? Pétur gretti sig örlitiö og ræskti sig slðan ákveðinn: Ég tók þær upp I skuldir. Hann fékk stundum lánað hjá mér bús siðustu árin. Það var ómögulegt aö neita hon- um. Ég seldi svo Safninu mynd- imar I haust langt undir mats- verði — nema eina sem hangir heima. Þú hefur eflaust séð eitt- hvað af þeim á sýningunni. — Það fór allt fram hjá mér vegna troðningsins. Ég skoða sýninguna seinna I ró og næði. Þú virðist hafa komiö þér vel fyrir. Hvernig fór með frystihúsið? • — Það er engu likara en þú sért að yfirheyra mig, gamli vinur. En horfðu samt ekki svona á mig, þetta er allt saman liðið og til einskis að ergja sig út af þvl núna. ABalatriðið er að dylja ekkert og hafa hlutina á hreinu, ekki satt? Ótrúlegt, hvaö atburðirnir virðast óraunverulegir, þegar maður lltur til baka. Nú, ég var hreins- aður af ákærunni, og sá seki gaf sig fram. — Sá seki? • — Láttu þér ekki bregða, ég skrifaði þér, að gamli maðurinn hefði lent I leiðindamálum. — Játaði hann á sig frystihús- brunann? - Já. — Og ég, sem vitnaði.ekki gegn þér vegna þessara tuttugu þús- unda. — Þetta var óttalegt leiðinda- mál. Gamli maðurinn gaf sig allt I einu fram, skömmu eftir að þú varst farinn, og stóð gallharður á játningu sinni. Hann hélt, að ég hefði borgað þér fyrir að kveikja I húsinu. En mér tókst að fá hann lausan áriö eftir, svo þetta var ekki svo alvarlegt — Já, en það varst þú, sem kveiktir I þvl. — Ekki æsa þig upp, kæri vin- ur. Ég gat ekki sagt honum það. Hann heföi veriö vls með að ljóstra öllu upp. Gamli maðurinn játaði á sig brunann, og dómur er dómur. Menn trúa öllu upp á þá, sem eru eitthvað öðru vlsi en fólk er flest. — Þú fékkst þá trygginguna? — Þaðerástæðulaustað hrópa, kæri vinur, ég heyri ágætlega. Þetta veröur ekki aftur tekið. Ég veit, að maður var grimmur á þessum árum, en nú er ég orðinn gamall, og því liðna veröur ekki breytt. Hvað er að frétta af sjálf- um þér og konunni? Er hún alltaf jafn blóölaus? — Þú minntist aldrei á að hann hefði lent i fangelsi. Trúði hann virkilega að hann væri aö bjarga mér og sæti inni mln vegna? — Ég skrifaði, aö hann væri I vondum málum, en þú svaraðir mér ekki. Ég fékk aldrei bréf frá þér. Prófessorinn hætti við að segja eitthvað og horfði i gaupnir sér, slðan andvarpaði hann hugsi: Þetta var erfitt nám, og ég hélt, að það væri bara þessi venjulegi drykkjuskapur. Það var hvort sem er ekki hægt aö fá hann frá flöskunni. Þeir þögðu góða stund, og Pétur kveikti sér I havanavindli. Þegar þögnin var orðin óþægilega löng, spuri hann: Hvar er konan, ertu eina? — Hún er á sjúkrahúsi — gigt. Veistu nokkuð um Dittu? — Dittu já. Hugsa sér, að þú hafir slegið mig niöur vegna hennar — hálf rotað mig. Já, það er margt ótrúlegt, þegar maður lltur til baka. Hvilik endaleysa þessi Gúttóböll. Það munaði engu, aö ég færi flatt á henni — já eöa þú. Hefði þessi nauðgunar- della ekki komiö upp, hefðir þú á- byggilega gifst henni og hún dregið þig með sér ofan I svaöið. Varstu ekki meira aö segja trú- lofaður henni um tima? En ég varð aldrei blindur á hana eins og þú. Þetta var voðalegur vargur, ef þvl var að skipta. Þegar hún sá, aö ég vildi ekkert með sig hafa, reyndi hún aö eyðileggja vinskap okkar með þessari nauðgunardellu og hélt, að hún yrði alsaklaust fórnarlamb I þin- um augum. Bjóst liklega við, að þú tækir sig I sátt, blessaö guðs- lambið — en þú sást við henni og slóst mig — hálf rotaðir mig. Já þetta var meiri vitleysan, og ég hefði legið illa I þvl, heföi hún ekki dregið þetta til baka.-En það var dýrt maður minn. Jæja, hvernig llst þér á húsið? Pétur lagði bilnum framan viö stóran bilskúr og klöngraöist út. Hann opnaði fyrir vini sínum og vlsaöi honum upp tlgulstétt að rammbyggilegu einbýlishúsi, sem bar svip af loftvarnabyrgj- um þeim, er Kanadabúinn þekkti frá Montreol. John gekk hægt upp tröppurnar og spurði varfærnis- lega: Sagðistu hafa borgað henni? — Já, ég lét hana hafa tuttugu þúsund. Hún tók ekki minna fyrir aö draga þetta tilbaka. Fólk gerir allt fyrir peninga. Það er sama hvaö það er. En dýrt var það. — Og hvað svo? Hvaö varö um hana? — Það er nú saga að segja frá þvl. Eftir aö þú giftist dóttur bankastjórans og fórst út, skemmti hún sér eins og vitfirr- ingur. Þeir kölluðu hana Dittu allsstaöar, enda fór maður ekki öðru vlsi á skemmtistaö en hitta hana dauðadrukkna. Þetta er stereóbjalla. Sko — heyrirðu hvernig hún hringir. , Pétur þrýsti lengi á bjöllu- hnappinn. Dyrnar opnuðust, og dökkhærö stúlka á táningaaldri stóð i gættinni. Hún kyssti Pétur, sem kláppaði henni lauslega á berandann og sagði: Þetta er Jón Eiriksson, æskuvinur minn, Jenny. Hafðu tilbúinn bufftartar handa okkur eftir hálftima. Hún rétti gestinum höndina, tók yfirhafnir þeirra og bar fram silf- ursleginn vlnbakka. Þeir settust I djúpa hægindastóla i vinnuher- bergi húsráðanda, sem blandaöi vini slnum drykk og tók fram ljósmyndir af eigin skipaflota. John skoðaði myndirnar annars hugar og spurði: Hvar er hún núna? — t söluferö I Þýskalandi. — Ég á við Dittu. — Nú, ég hélt þú ættir við Friggina —einn af aflahæstu bát- unum á vertiðinni! Ditta, já Ditta er löngu komin undir græna torfu. Maður lifir ekki lengi á tómu brennivlni og slarki. — En peningarnir, sem þú lést hana fá? — Það er nú ein dellan enn. Ég held þaö hafi verið rétt eftir að þú fórst. Hún kom hér einu sinni um hánótt og barði upp húsið. Ég hleypti henni inn, og þá réöst hún á mig og heimtaði peningana á borðið. — A borðið? hrökk upp úr John. — Ég samdi nefnilega um á- kveðna afborgunarskilmála. — Léstu hana fá peningana? — Já, það sem hún átti inni i það skiptið, fimm sex þúsund — en hún þeytti seölunum aftur I mig og sagðist ekki þiggja mútur. Hún hélt sko við bankastjórann á tlma og hafði gras af seðlum — gamli maðurinn hefur llklega orðið eitthvað einmana eftir að þú tókst frá honum einkadótturina. En hún lét sjá sig aftur hálfu ári slðar, helmingi drukknari, og heimtaði peningana. — Léstu hana fá þá? — Nei mér kom það ekki til hugar. Hún eyddi öllu um leið og það kom upp I hendurnar á henni. En ég vorkenndi henni hálfpart- inn og lét hana fá eitthvaö smá- vegis, þegar hún svaf hérna á næturna. Já, það gat verið gaman að henni, og henni þótti það gott, en svo drakk hún frá sér allt vit og var á Kleppi I nokkur ár. Maður frétti siöast, að hún hefði hengt sig. — Af hverju léstu mig ekki vita hvaö hefði gerst, spuröi John, og rödd hans titraöi örlltið. — Ég? Nú, hún sagöist hafa skrifaö þér. Prófessorinn kyngdi nokkrum sinnum og átti I vandræöum með hendurnar. Hún bað mig að fyrir- gefa sér, og og og ég var nýgiftur. Ég vissi ekki, að hún væri I vand- ræðum. Þú hefðir getað hjálpað henni. — Maöur hugsaði nú ööru vlsi þá. Ég lét hana fá pening við og við. Ekki var þaö mér að kenna, að hún elskaði mig. — Elskaði þig? John hætti við að drekka ur glasinu, sem hann hafði borið að vörum sinum. — Þetta var eflaust fylliris- raus I henni. Það er ekkert að marka kvenfólk. Það skilur ekk- ert nema ofbeldi. Sýni maður þvl, hver ræöur I eitt skipti fyrir öll, elskar það mann. Maður getur veriö grimmur á þessum árum, en það verður ekki aftur tekiö. Heyrðu, ég á hérna málverk af henni. Komdu og sjáðu, þaö er meira að segja eftir pabba þinn. Pétur opnaði inn I rlkmannlega stofu með frönskum rococohús- gögnum. Yfir lágum sófa hékk Iitil mynd af stúlku á tvtugsaldri. Hún var I þunnum ljósbláum kjól, og gulliö hárið hrundi yfir axlirn- ar. Fjarræn augun horfðu beint á áhorfandann, hvar sem hann stóö i stofunni. Málarinn hafði umvaf- ið fyrirmynd slna hvltum ljóma, sem gaf henni ójarðneskan blæ. John horfði lengi á myndina og barðist viö geðshræringuna. Hann langaði til aö gráta. Gráta lengi og ofsalega. Hann fann tárin svella I brjósti sinu, heit og brennandi, líkt og ástina, sem hann bar eitt sinn til verunnar á myndinni. En hann kyngdi kökknum I hálsinum og ræskti sig, án þess að sýna minnstu svip- brigði. Pétur drakk glasið I botn, snýtti sér og sagöi: Já, hún var falleg. Þetta er eina myndin, sem ég hef ekki látiö eftir hann pabba þinn. Honum þótti alltaf vænt um stelp- una. Þig langar kannski að eiga myndina? Þér væri velkomið að fá hana. Þú mátt eiga hana. — Nei, þakka þér, sagöi John I flýti og snéri sér undan. Hann sá um leið eftir svarinu, en vildi ekki breyta um, af ótta við að koma upp um tilfinningar sinar. Þeir settust aftur inn I vinnuherbergið, og Pétur blandaði I glösin. • — Sagðiröu að konan þin væri gigtveik? — Já. • — Það hlýtur að lagast. Ég ætla að lita eftir matseldinni. Pétur hvarf fram. John greip tækifæriö og flýtti sér aftur inn I stofuna. Hann starði fast á mynd- ina, kipraði hvarmana og deplaði augunum, en tárin létu blða eftir sér. Hann reyndi að fylla bugann ljúfsárum minningum, en fékk engan kökk I hálsinn. Skyndilega b/rjuðu axlir hans að titra, og sjóöándi hlátur gusaðist af vörum hans. Hann ætlaði að kæfa hlátur- inn I fæðingu, en svelgdist á og fékk hóstakast. Hann flýtti sér út úr stofunni og mætti Pétri I dyr- unum. útgerðarmaðurinn klapp- aöi kumpánlega á hokið bak próf- essorsins, afmeyjaði visklflösku og teygaði af stút, slðan ók hann sér I öxlunum og sagði: Jæja, gamli skarfur, nú dettum við ær- lega I þaö eins og I gamla daga. 18 VIKAN 52.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.