Vikan - 30.10.1975, Blaðsíða 13
mikilfenglega lið loks mætt til
leiks og byrjað var að selja inn.
Fimmtán hundruð, takk, varð að
borga á mann fyrir hið óvænta,
sem beið innandyra. Við fengum
borð og settumst með kurt og
pí, vorum á góðum stað og sá-
um vel yfir lýð, senu og sal.
Nú var búið að stilla upp hljóð-
færunum. Maður gerðist svolítið
spenntur. Fólkið í salnum var orð-
ið mjög óþolinmótt af biðinni,
klappaði, stappaði og blístraði til
að mana hljómsveitina fram á
sviðið.
En þessir miklu menn voru sko
ekkert að flýta sér. Hvað kom
þeim við þótt fólkið væri að
öskra þetta. Það var búið að borga
inn og þá var allt í lagi.
Klukkan varð hálf ellefu. Ekk-
ert gerðist. Nú var fólkið orðið
enn óþolinmóðara, en ekkert gerð-
ist enn. Við vorum orðin alveg
forundrandi á þessum seinagangi,
vorum farin að bölva í hljóði og
hugsa Ijótt. Loks sáum við lög-
regluþjón labba upp á senu og
hverfa þar bakvið. Og sjá, kom
hann ekki að vörmu spori með
hina langþráðu spilara í eftir-
dragi. Þeir stukku beint að hljóð-
færunum og tóku að kroppa í
þau líkt og svangir hrafnar. Org-
elleikarinn hóf upp raust sína og
tilkynnti, að nú skyldi gleðin hefj-
ast, en bví miður væri diskótek-
ið ekki með í reisunni og væri
stjórnandi þess uppi við Sigöldu
að því er mér heyrðist.
Jæja, þar fór fyrsti draumur-
inn hugsaði ég.
Nú upphófst a11 ægileg mússík.
Maður dauðsá eftir að hafa ekki
haft með sér heyrnarskjól. Þvílík
læti. Þetta leit ekki vel út. Ekki
var hægt að segja að þarna væri
flutt dansmússík, allavega var hún
framandleg, og maður hafði það
á tilfinningunni allan tímann, að
mennirnir væru að spila fyrir
sjálfa sig en ekki fyrir fólkið í
salnum. Mér fannst mússíkin í
sjálfu sér ekkert illa flutt, en hún
átti bara alls ekki við í þessu
tilviki.
Jæja, næst voru kynntar tvær
svartar steipur, sem brunuðu inn
á sviðið. Mér datt í hug hvítar
stúlkur ataðar út í sóti. Jæja, þær
áttu að syngja með englaröddum
þessar, en því miður heyrðist
ákaflega illa til þeirra allt ballið.
Ég gat ekki áttað mig á því hvort
magnarakerfi væri um að kenna
eða þær vita raddlausar. Altént
kom mér þetta spánskt fyr'ir
sjónir. (ha, ,,sjónir"?).
Svona þrumaði þetta áfram um
sinn. Þá var tilkynnt að hinir frá-
bæru Stuðmenn kæmu nú fram og
spiluðu smá stund. Jú, þeir birt-
ust í öllu sínu veldi. Mér duttu í
hug uppgjafaindíánar. Aldrei het
ég séð menn, sem voru eins hrifn-
ir af sjálfum sér.
Ég gerðist nú meira og meira
undrandi á því, sem á boðstólum
var. Nú var tilkynnt um súper-
töframann og allir sópuðust út af
senunni. Og fólkið beið í ofvæni
eftir að sjá galdrakallinn. En hvað
gerðist? Það leið og beið og eng-
inn kom töframaðurinn. Ég var
farin að halda að hann hefði
galdrað sjálfan sig upp úr skón-
um. Eftir langa bið birtust þeir,
sem héldu sig ■ súperstjörnur
kvöldsins, og sögðu að því mið-
' ur hefði Baldur týnst eða eitthvað
svoleiðis, ég veit ekki vel hvað
þeir voru að babla, ég heyrði það
ekki nógu vel til að geta farið
rétt með það.
Sumsé enginn töframaður sást
og ekki heldur söngkonan, sem
átti að vera með Stuðmönnum.
Allt svik og prettir að manni
fannst. Ég skil ekki enn af hverju
þessir góðu menn aflýstu ekki
þessum fagnaði fyrst þeir gátu
ekki staðið við áðurgefnar yfir-
lýsingar.
Þessum þrumudansleik ársins
lauk svo með pompi og pragt
klukkan rúmlega tvö, og skelfing
var ég fegin að fá þögn. Ekki
veit ég hver kom því til leiðar
að öllum voru endurgreiddar fimm
hundruð krónur er þeir fóru út,
Kæri Póstur, þetta er aðeins ör-
lítil saga um litla menn úr Reykja-
vík, sem fóru út á land til að
verða stórir, en því miður held
ég að þeir hafi stórrýrnað við
þessa reisu. Þeim hæfir best að
éta grautinn sinn á sínum heima-
slóðum.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
ingu.
Steinunn A. Eiríksdóttir.
Pósturinn þakkar Steinunni fyrir
þessa ágætu sögu. Já satt er þaS
að ekki er allt gull sem glóir.
Jafnvel ekki þó það sé úr henni
Reykjavík. Lifðu heil.
HATTA OG HANNYRÐAVERZLUNIN
Jenný
5
smw»rtll«ll« 13« - Slml H74« ■ PtrthéH Sé • RtyHtvO
Sængur og koddar
Margar stærðir og
gerðir.
Endurnýjum gömlu
sængurnar.
FIÐURHREiNSUNIN
Vatnsstíg 3, sími 18740
(Orfá skref frá Laugavegi)
Þú ættir ekki að verða í vandræðum með að fá tímann þinn
styttan vegna góðrar hegðunar!
DÚN- OG
44. TBL. VIKAN 13