Vikan - 19.02.1976, Qupperneq 12
HVERNIG GETUM VIÐ VAKIÐ
ATHYGLI?
Kæri Póstur!
Við erum hér tvxr í vanda og
langar því að spyrja þig nokkurra
spurninga.
Hvað er best að gera til að vekja
á sér athygli?
Hvernig eigum við að ná I tvo
stráka sem við erum hrifnar af?
Hvernig eigum við að losna við
feita rassa?
Hvernig eiga saman nautsstelpa
og drekastrákur og tvíburastelpa og
meyjarstrákur?
Þökkum fyrirfram svörin.
Tvær píur.
AðferÓir til að vekja á sér athygli
munu fjölmargar, en mismunandi
œskilegar þð. Ein leiðin vœri að
klceðast mjög glœsilega, önnur að
mála skotskífu á naflann á sér■
og jafnvel vceri reynandi að venja
sig á að ganga alltaf afturábak og
í öfuga átt við áfangastað. Síðustu
aðferðinni fylgja þó nokkrar óþcegi-
legar hliðarverkanir.
Ahhh, viðvíkjandi strákunum.
Bíðið bara þangað til gott tœkifæn
gefst til að reyna við þá. Aðferðir
við það kunnið þið lijtlega fjöl-
margar. Ef það hrífur ekki, þá
væri reynandi að þykjast ekki taka
eftir þeim á mjög áberandi hátt.
Sky/di ekkert af þessu bera árangur
gerir það ekkert til, því þá eruð
þið örugglega orðnar hrifnar af ein-
hverjum öðrum_____og þá getið þið
reynt sama leikinn á nýjan leik og
svo koll af kolli.
Um feitu rassana er það að segja,
að þetta fer allt eftir því á hverjum
þeir eru. Séu þeir á einhverjum
kunningja, slítið þið að sjálfsögðu
kunningsskaþnum. Ef hann er hins
vegar blýfastur á ykkur sjálfum fer
málið að vandast, jafnvel gœti það
reynst óleysanlegt.
Stjömuspá ástarinnar varð heldur
fýld yfir sambandi nautsstelpu og
drekastráks. Taldi þau of miklar
andstæður til að það gæti blessast.
Heldur taldi hún málið leysanlegra
fyrir tvíburastelpu og meyjarstrák,
en þó ekki of álitlegt.
Já, á meðan Pósturinn man.
Ykkur tðkst bærilega að vekja
athygli á bréfinu ykkar. Litskrúð-
ugra bréf hefur honum aldrei
borist.
AÐ KOMAST ÚT 1 LÖND.
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær vinkonur og
okkur langar mjög mikið til þess að
komast út I lönd I sumar sem
barnfóstrur, til dæmis til Frakk-
lands. Þess vegna datt okkur I hug
að skrifa þér og athuga hvort þú
gætir ekki útvegað okkur einhverjar
upplýsingar, eins og til dæmis
hvert við ættum að snúa okkur I
þessu.
Jæja, nú hættum við og vonumst
eftir svari fljótlega.
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
Vinkonur.
Það ætti að vera árangursríkast
að þið leituðuð til viðkomandi
sendiráða. Þar er allar haldbestu
upplýsingar að fá um hvert land
fyrirsig. Pósturinn ráðleggur ykkur
að svara alls ekki auglýsingum í
dagblöðum um bamfóstrustöður t
ýmsum löndum án þess að hafa
samráð við sendiráðið áður. Þær
auglýsingar virðast oft mjög glæsi-
legar, en hafa í sumum tilfellum
reynst stórvarasamar.
Pósturinn vonar, að þessar upp-
lýsingar verði ykkur að einhverju
haldi___og munið nú, að ekki er
allt gull, sem glóir.
EF ÞÚ EKKI BIRTIR ÞETTA, ÞÁ...
Sæll Póstur minn!
Ja, hérna, nú get ég ekki setið
12 VIKAN 8. TBL.