Vikan - 19.02.1976, Page 23
húfuna og lagði hana á stólinn
við hliðina á hurðinni.
Hann gekk að brúðuhúsinu og
opnaði alla gluggana. — Sjáðu,
sagði hann. — Allir gluggarnir
eru opnir. Nú loka ég þeim öll-
um. Hann lyfti upp framhliðinna
á brúðuhúsinu, skipti allt í einu
um skoðun, lét vegginn detta í
gólfið, og gekk aftur að borðinu.
Hann teygði sig I pelann. — Ég
vil sjúga pelann, sagði hann.
— Finnst þér gott að sjúga
pelann? spurði ég — og reyndi að
gera allt til þess að missa ekki
sambandið við hann.
— Já, sagði hann. Hann saug
pelann þegjandi lengi og fylgdist
með mér á meðan. Svo lagði hann
pelann frá sér, gekk að skápnum,
opnaði hann og gægðist í hann.
Hann tók upp tóma öskju undan
kubbum. — Kubbarnir eiga að
vera í þessu, sagði hann. — Þetta
er askjan. Það stendur hér. Hann
benti á orðið, sem stóð utan á
öskjúnni.
— Já, ég veit það, sagði ég.
Mér fannst athyglisvert, hvernig
Dibs bar sig að við að sýna hæfni
sína I Iestri og lausn annarra
verkefna. En af hverju ætli hann
hafi gert allt til að dylja hæfni
sína I hvoru tveggja, bæði heima
og á barnaheimilinu? Gat það verið
vegna þess, að umfram allt langaði
hann að vera elskaður fyrir alla
sína eiginleika? Hvernig gat barn
leynt greind sinni svona vandlega
undir því yfirborði, sem það sýndi
flestum, undir allri andstöðu sinni
og óvild til umheimsins? Hvernig
hafði hann orðið sér út um alla
þessa þekkingu? Hann var miklu
betur læs en flest börn á hans
aldri. Hvernig hafði hann orðið það
án þess að sýna nokkur merki þess,
að hann hefði tök á erfiðum orðum
og hugtökum? Skarpskyggni þessa
barns var með ólíkindum. Hvernig
gat barnið hafa haldið þessum eig-
inleikum sínum leyndum fyrir for-
eldrum sínum, ef hann hafði þá
gert það?
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma, lágu margar og flóknar
orsakir til þess, að samband Dibs
og foreldra hans var svona slæmt.
Það hefði komið að miklu gagni að
fá svör við öllum þeim spurning-
um, sem þutu um hug mér, meðan
ég horfði á Dibs ýmist sjúga pela
eins og smábarn, eða leika að litum
og lesa af ótrúlegri hæfni.
Dibs sat á stólnum og tottaði
pelann ánægður. Hann var rólegur
og hæglátur, en horfði á mig allan
tímann. Ég hugsaði um ósvöruðu
spurningarnar, sem fóru um huga
hans. Allt I einu settist hann upp
teinréttur, tók túttuna af og drakk
úr flöskunni.
Hann benti á hnappana tvo á
veggnum. — Þetta eru klukkur að
dyrunum, sagði hann.
— Já, eins konar dyrabjöllur,
svaraði ég.
Hann tók upp túttuna, tuggði
hana og saug, og horfði stöðugt
á mig. Loks benti hann á fætur mér.
Ég var I rauðum bomsum. Hann
otaði fingrinum að mér.
— Farðu úr bomsunum mínum,
sagði hann.
— Áttu við, að ég eigi að fara
úr bomsunum mlnum? spurði ég.
— Já, alltaf, inni I húsi, svaraði
hann.
Ég beygði mig, fór úr bomsun-
um, og setti þær út I horn.
— Hvað segirðu nú? spurði ég
— Betra, svaraði hann. Hann
reyndi að setja túttuna á pelann
aftur, en tókst það ekki. Hann kom
til mín með hana.
— Ég get ekki, sagði hann.
— Hjálpaðu mér.
— Allt I lagi, ég skal hjálpa þér,
sagði ég, og setti túttuna á pelann
fyrir hann. Hann tók við honum,
tók túttuna strax af aftur og hellti
vatninu úr pelanum I vaskinn.
Hann sneri sér að mér og sýndi
mér tóman pelann.
— Tómur peli, sagði hann.
— Já, þú tæmdirhann.
Dibs stóð við vaskinn, hélt tóm-
um pelanum þétt að brjósti sér, og
horfði lengi á mig. Ég horfði á
hann og beið þess hann hefði sjálf-
ur frumkvæðið, annað hvort I
orðum eða gjörðum. Hann gat líka
staðið þarna og hugsað, ef hann
kærði sig um.
— Ég er að hugsa, sagði hann.
•— Jæja? svaraði ég.
— Já, ég er að hugsa.
Ég sagði ekki við hann, að hann
skyldi segja mér, hvað hann hugs-
aði. Ég vildi, að hann kynntist
fleiru en æfingum I spurningum
og svörum. Ég vildi, að hann fyndi
og reyndi sitt eigið ég, allt sitt ég,
I sambandinu milli okkar. Ekki, að
hann kynntist þessu sambandi bara
með einu móti. Ég vildi, að hann
kæmist að þvl, að hann var
margræð persóna, manneskja, sem
gat verið I slæmu eða góðu skapi,
sem elskaði og hataði, sem bæði
var hrædd og hugrökk, sem tók
upp á ýmsu barnalegu, en hafði
einnig þroskaðar hugmyndir. Framh
Barist í hafinu undan
ströndum Eden. Skuggi og
höfrungarnir gegn i
hákörlunum...
8. TBL. VIKAN 23