Vikan - 20.05.1976, Síða 18
Læknar nota sérstakt mál,
sem kunnugt er, því að þeim er
nauðsynlegt að hafa sérstakt
tæknimál, sem læknar um víða
veröld eiga hægt með að skilja,
og þar sem þetta mál er
hvergi talað (latína) og útdautt
mál, eru líka minni líkur til að
aðrir skilji það, nema þeir sem
hafa lagt sérstaka stund á að
læra það.
Það er því ekki nema eðlilegt,
að almenningur skilji yfirleitt
ekkert í þessu læknamáli, en oft
kemur það fyrir að menn langar
til að vita, hvað við er átt, t.d. á
lyfseðlum og í öðrum tilfellum,
þar sem fólk rekst á þetta
furðulega mál. Ekki er það
meiningin að gera fólk fullnuma
í latínu með þessari stuttu
grein, en vafalaust hafa sumir
gaman af að heyra eitthvað um
málið og kynna sér algengustu
forskeytin eða endingarnar, svo
maður hafi einhverja hugmynd
um við hvað er átt.
Læknar notað orðið CHRON-
IC um sjúkdóm, sem er lang-
varandi í andstæðu við orðiö
ACUTE sem þýðir stuttur og
skarpur. Endingin -ITIS þýðir
bólga. Með orðinu BRONCHI
er átt við helstu loftpípurnar í
lungunum, sem á íslensku hafa
verið nefndar „berkjur". Að
þessu athuguðu mundi BRON-
CHITIS þýða berkjubólga og
CHRONIC BRONCHITIS er
langvarandi berkjubólga, sem
getur orðið mjög þrálát og erfið
viðureignar en ACUTE BRON-
CHITIS er þá bráð berkjubólga,
sem oftast er hægt að lækna
með ANTIBIOTISKUM lyfjum
eða fúkalyfjum.
Eins og áður er sagt merkir
endingin -ITIS bólgu, en orð-
byrjunin ARTH- táknar liðamót.
Þessvegna merkir orðið ART—
HRITIS liðabólgu, sem stund-
um er jafnvel liðagikt. (ART—
HRITIS RHEUMATISM).
Orð, sem enda á -OSIS eða
-IASIS, þýða venjulega, að
breytingar hafi átt sér stað
vegna veikinda. Litlir hnútar,
sem myndast í sjúklingum, sem
hafa berklaveiki, eru nefndir
TUBERCLES. Þannig er orðið
TUBERCULOSIS myndað.
Sem dæmi um endinguna
-IASIS má benda á orðið
ELEPHANTIASIS, en sjúkling-
ar með þá veiki hafa gjarna
ákaflega gilda fótleggi. Á svip-
aðan máta erorðið PSORIASIS
myndað.
Endingin -RHOEA merkir
fljótandi eins og í oröinu Dl-
ARRHOEA, eða fljótandi
hægðir.
Orðið AEMIA merkir blóð, en
orðiðTOXIC er eitraður. TOXA-
EMIA á læknamáli þýðir þannig
blóðeitrun.
SCLEROSIS merkir hersla
eða kölkun, en ARTERIA þýðir
slagæð. Á þann .hátt verður til
oröið ARTERIOSCLEROSIS,
samansett úr orðunum ARTER-
SCLER- OG ENDINGUNNI
-OSIS, en ARTERIOSCLER-
OSIS þýðir æðakölkun.
Endingarnar -TOMI — STO-
MY og -ECTOMY geta ver-
ið dálítið ruglandi, en end-
ingin -TOMY merkir skurð, eins
og í orðinu LAPAROTOMY,
sem merkir aðgerð, þar sem
skurðurer gerður í magavöðva.
-STOMY þýðir nánast
,,gat", sem skilið er eftir á
líkamanum eftir uppskurð til að
hleypa út vessum. COLON
þýðir ristill, en þannig þýðir
orðið COLOSTOMY, að op hafi
verið skilið eftir á líkamanum til
að hleypa út vessum eftir
uppskurð á ristlinum.
-ECTOMY nefnist það, ef
líffæri erfjarlægt. APPENDEC-
TOMY merkir því aðgerð, sem
fjarlægirbotnlangann, en botn-
langinn nefnist APPENDIX.
Líkamshlutar, sem oft er
minnstá íforskeytum, eru magi
(GASTR-), nýru (NEPHR-), lif-
ur (HEPAT-) og hjarta (CARD).
Orðið CHIR þýðir hönd en
DACTYL er fingur.
Auðvelt er að rugla saman
orðunum HYPO (minni) og
HYPER (meiri). Mismunurinn
er samt mikill, því að hver sá,
sem hefur HYPERTENSION, er
með of háan blóöþrýsting og
þarf gjörsamlega frábrugðna
meðferð þeim, sem er með
H'/DOTENSION, eða of lágan
biuðprýsting.
Sálfræðilegar truflanir eru
nefndar PSYCHOLOGICAL, en
slíkar truflanir geta auðveldlega
haft bein áhrif á sjálfan líkam-
ann (SOMA) og því orðið að
PSYCHOSOMATískri veiki.
(Endingin -ísk er þarna tekin úr
íslensku).
PEPTIC á við maga, en
ULCER er sár. Þannig þýðir
Peptic ULCER hreinlega maga-
sár sem er gjarna ein PSYC-
HOSOMATÍskrar veiki. En ef
sárið hefur myndast af völdum
aspirins, sem læknir hefur ráð-
lagt við einhverju öðru, mundi
sárið vera IATROGENIC eða af
læknisvöldum.
Oft sér maður á lyfseðlum
eða utan á pilluglösum stafina
NO.XXX. Þarna merkir No.
númer eða fjölda, en XXX er
rómversk tala og þýðir 30.
No.xxx mundi þá þýða30stykki
pillur.
Skammstöfunin TABL. þýðir
töflur eða pillur, MIXT. merkir
lyfjablanda. AMP. er sprautu-
hylki, INJ. merkir til sprautu-
gjafar og SUPP. þýðir stauta
eða stikkpillur.
Skylt er að setja dagsetningu
á öll lyf, sem afgreidd eru úr
lyfjabúðum, svo og upphafs-
stafi þess læknis, sem gaf út
lyfseðilinn fyrir þeim.
Og nú getið þið reynt að taka
próf!
KAfíLSSON
18 VIKAN 21. TBL.