Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 24.06.1976, Qupperneq 11

Vikan - 24.06.1976, Qupperneq 11
ÆTTARMÓT í SUMARBÚSTAÐ Sumarbústaður við Þingvallavatn er matgra draumur, sem færri geta látið rætast. Einn hinna lánsömu er Gunnar Ásgeirsson, sem á veglegan bústað við vatnið fagra og notar hann óspart. En hann kærir sig ekki um að sitjaeinnaðdýrðinni,ogoft er gestkvæmt á Heiðarbakka Blaðamaður Vikunnar brá sér I heimsókn þangað um hvítasunnuna, og bar þá vel í veiði, því þar var athafnamaðurinn Gunnar umkringdur nokkrum tugum ættingja, sem undu þar við tþróttir og leiki í góða veðrinu. Sjá næstu Viku. I NÆSTU lflKU SUMARGETRAUN 1976 Sumargetraun Vikunnar er orðinn árviss viðburður, sem lesendur Vikunnar hafa alltaf sýnt mikinn áhuga, enda góðir vinningar í boði. í næsta tölublaði hefst sumargetraun 1976, og að þessu sinni verður hún með nýstárlegu sniði, sem áreiðanlega margir hafa gaman af. Birtar verða myndir af nokkrum íslenskum einkennisbúningum, sem lesendur eiga svo að spreyta sig á að þekkja. Fylgist með frá byrjun, og 1 næstu Viku fáið þið að vita, til hvers cr að vinna. FEDDI OG FLÍSARNAR Aumingja Feddi fúskari. Hann er búinn að ganga í gegnum margt 1 sambandi við höllina sína, eins og lesendur hafa fengið að fylgjast með. Við höfum það fyrir satt, að margir hafi séð sjálfa sig í sömu aðstæðum, þegar þeir lásu þættina af Fedda. Vonandi eru þeir þó ekki margir, sem þekkja sig í sporum Fedda í þættinum, sem birtist I næstu Viku, en þar segir af því, þegar Feddi ætlaði að fara að fltsaleggja hjá sér. MYNDIRNAR LIFA HÖFUND SlNN „Islenskar konur eru svo áhugasamar og laghentar, að ég held það sé einsdæmi”, segir Ellen Kristvins, sem 1 rúm tuttugu ár hefur kennt flos og listsaum, en í næstu Viku birtist viðtal við hana. Þar segir hún einnig, þegar hún er spurð, hvort þetta sé ckki dýrt tómstunda- gaman: ,,AUt efni til handavinnu er dýrt, því verður ekki neitað. Hitt er svo ánnað mál, að myndirnar lifa þann, sem gerir þær, og sé litið á þær frá þvl sjónarhorni, held ég þær hljóti að teljast ódýrar.” VIKAN Otgefandi Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Trausti Ólafsson, Hrafnhildur Schram, Guðmundur Karlsson. Otlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing í Síðumúla 12. Símar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 300. Áskriftarverð kr. 3.350 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 6.320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 11.700 í ársáskrift. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst. 26. tbl. 38. árg. 24. júní 1976 GREINAR: 16 Svtn eru ekki svín. Sagt frá heimsókn á svínabú Þorvaldar Guðmundssonar á Minni- Vatnsleysu. 24 Sveinasöngur á Heiði. Sagt frá störfum og sýningu slökkvi- liðsins á Keflavlkurflugvelli. 34 Fingrum bjargað. Ný aðferð við skurðlækningar. VIÐTÖL: 2 Addlitslyfting án hnífs. Viðtal við Fannevju Halldorsdóttur snyrtisérfræðing. SÖGUR: 20 Skilaboð frá Absalom. Fram- haldssaga eftir Anne Armstrong Thompson. Sögulok. 28 Marianne. 32. hluti framhalds- sögu eftir Juliette Benzoni. 38 Straumrof. Smásaga efitr Vic Suneson. FASTIR ÞÆTTIR: 9 Krossgáta. 12 Póstur. 14 Á fleygiferð í umsjá Árna Bjarnasonar. 19 Tækni fyrir alla. 23 Meðal annarra orða: Ó S vors lands. 30 Stjörnuspá. 40 Draumar. 41 Matreiðslubók Vikunnar. ÝMISLEGT: 7 Aflakóngar fagna. 37 I leiðinni. 26. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.