Vikan - 24.06.1976, Side 12
ÞM
- fisléttur og hlýr, fóðraður með dralon eóa ull.
Ytra byrói úr vatnsvörðu nyloni, innra byrði úr bómull.
Hann má nota sem sæng og það fylgir honum koddi.
Hægt er að renna tveimur pokum saman og gera úr
þeim einn tvíbreiðan.
Gefjunar svefnpokinn
fyrir sumarið.
GEFJUN AKUREYRI
31. FEBRÚAR ER EKKI TIL.
Komdu sæll Póstur góður!
Ég ætla að spyrja þig nokkurra
spurninga:
1. Eru Sheila Douglas og Carl
Douglas systkini?
2. Hver er utanáskriftin til
þáttarins: Lög unga fólksins?
3. Hvernigeigafiskurinr (kvk.) og
ljónið (kk.) saman?
4. Ein fyrir vinkonu mína: Er
óeðlilegt, að þrettán ára stelpa, sem
er 159 sentimetrar á hæð, sé 53 kíló.
118. tölublaði 29. aprílstendur, að
Gillian Blake og Steve Hodson eigi
sama afmælisdag og hann sé 31.
febrúar. Ég vil leyfa mér að vekja
athygli Póstsins á því, að 31. febrúar
er ekki til.
Jæja og svo er þetta vanalega:
Hvernig er skriftin og hvað heldurðu
að ég sé gömul?
Fröken afskiptasöm.
Pósturinn þakkar þér fyrir þá
ábendingu, aðil. febrúarerekkitilí
okkar dagatali. Hklega hefur Póstin-
umbaraþóttnógum,þegarhann var
spurðuraðþví, hvenærþetta blessað
fólk veeri fætt. Hann hefur ætlað að
vera fyndinn og láta jafnframt íþað
skína, að ekkiætti bréfritarinú beint
gáfulegáhugamál, úrþvíaðhann gat
ekki látið sér detta neitt annað í hug
aðsþyrjaum. OgPósturinn verðurað
játa, aðhonum finnstfyrsta sþurning
þtn nákvœmlega jafnlítilfjörleg.
Honum dettur ekki einu sinni í hug
aðsvarahenniíálvöru og segirþví, að
þau séu samfeðra. Utanáskriftin til
óskalagaþáttarins Lög unga fólksins
er: Lög unga fólksins/ Ríkisútvarp-
inuI Skúlagötuál Reykjavtk. Fiskur-
inn og Ijónið eiga bærilega saman, ef
fiskurinn gœtirþess að fylgja Ijóninu
eftir. Ekki sér Pósturinn neitt
óeðlilegt við líkamsþyngd vinkonu
þinnar. Skriftin er ósköp bágbortn,
og þú ert þrettán ára.
SJÁLFSFRÓUN OG FORELDRAR.
Kæri Póstur!
Ég sendi þér þessar línur I þeirri
von, að þú getir veitt mér aðstoð og
hjálpað mér að létta á huga mínum.
Fyrst langar mig að leggja fyrir
þig spurningu, sem ég vona að þú
getir svarað fyrir mig.
Ég las fyrir nokkru síðan bók,
sem heitir „Ungbarnið”, eða eitt-
hvað svipað. Svo þegar ég kom að
kafla, sem fjallar um barnið á
unglingsárunum, stóð að sjálfs-
fróanir stöfuðu af taugaveiklun á
háu stigi. Er þetta satt?
Hver er ástæðan fyrir því að sumir
unglingar gera þetta, en aðrir ekki?
Er talið að þetta sé eitthvað
óeðlilegt fyrirbæri?
Og svo er það annað. Ég hef
áhyggjur af kynltfi foreldra minna,
(þér finnst það e.t.v. eitthvað
fyndið, en það finnst mér ekki).
Það er að segja, mér finnst þau
stunda það of mikið, en aðalástæð-
an fyrir því, að ég er að skipta mér
af þessu, er sú að það truflar mig.
Ég er alltaf að hugsa um þetta og
þar að auki er svefnherbergið mitt
við hliðina á herbergi foreldra
minn.
Til hvers er fólk að þessu lon og
don, úr því að það vill ekki eignast
börn? (Því að ég veit, að þau vilja
það ekki).
Vinkonur mtnar kvarta ekkert
undan þessu, (það gæti þó verið að
þær vilji bara ekkert segja), svo að
mér finnst ég alltaf vera eitthvað
óeðlileg, eða þá foreldrar mínir. Af
hverju þarf ég allan tímann að
þjást? Ég er viss um, að þú skilur
vandamál mitt og að það er heldur
óskemmtilegt að vera stskælandi,
þegar enginn er heima.
Vertu svo góður að leysa úr
vandamálum mínum, Póstur minn.
Með fyrirfram þökk.
Ein 15 ára.
I bókinni 16 ára eða um það bil,
þar sem fjallað er um kynlíf
unglinga, er kafli, sem heitir
SJÁLFSFRÓUN ER EDLILEG. Bðk
þessi er skrifuð af þekkingu og
vandvirkni og ættiþví að vera óhætt
að treysta þvt, sem þar segir.
Fyrrnefndur kafli hefst svo: ,,Á
unglingsárunum, þegar áhugi
vaknar á hinu kyninu, er mjög
algengt að fólk reyni að fróa sér
sjálft." Og stðar t sama kafla:
,,Þetta er nefnt onani eða mast-
urbation á máli fræðimanna, en á
tslensku nefnist það sjálfsfróun eða
sjálfsþæging." Og enn segir svo t
kaflanum: ,,Það er ekki svo afar
langt síðan menn litu á sjálfsfróun
sem eitthvað óeðlilegt. '' Og enn
skal vitnað til kaflans: ,,En vísinda-
menn hafa slegið þvt föstu, að nærri
hver einasti karlmaður reyni sjálfs-
fróun, og að þrjár af hverjum
12 VIKAN 26. TBL.