Vikan - 24.06.1976, Side 16
SVIN
EKKISVÍN
— Bölvað svín getur þú veriðl
— Þetta er nú meiri svínastíanl
Slíkar og aðrar svipaðar upphrópanir hafið
þið vafalaust heyrt ótal sinnum og leggið í þær
ákveöinn skilning, sem byggist á þeirri skoðun,
að svín séu á allan hátt sóöalegar og and-
styggilegar skepnur.
Ég get fullvissað ykkur um að hvort tveggja
er alrangur skilningur og á alls enga stoð (
veruleikanum.
Svín eru hreint ekki sóðalegri skepnur en
gengur og gerist meðal dýra, sem enga
hugmynd hafa um hugtakið sóðaskapur eða
hreinlæti. Það eru tiltölulega hýleg hugtök hjá
manninum, og hafa myndast með aukinni
þekkingu á gildi hreinlætis til heilsuverndar.
Þessvegna eru engin dýr sóðalegri eða
hreinlegri en önnur. Ef við þykjumst verða vör
við meira hreinlæti hjá einni dýrategund en
annarri, þá kemur það einungis af eðlislægri
hvöt dýranna og af einhverjum öðrum ástæð-
um en þeirri, sem við köllum hreinlæti.
Kettir eru t.d. alls ekki þrifnir, þótt þaö sé
almenn skoðun okkar mannanna. Þegar þeir
eru að sleikja feldinn, þá er það alls ekki vegna
hreinlætis, heldur til að losa sig við aðskota-
hluti, sem orsaka kláða eða önnur óhreinindi.
Eða finnst ykkur kannski hreinlæti að liggja
uppi í stól og dunda við að sleikja á sér
loppurnar eða endaþarminn? Það kemur
heldur alls ekki til af hreinlæti hjá köttum að
róta með löppunum yfir saurinn, sem þeir hafa
skilið eftir. Það er einungis eðlislæg hvöt til að
fela hann, svo að önnur dýr finni ekki lyktina
og komist þannig á slóð kattarins. Slík eru
aðeins ósjálfráð viðbrögð kattarins. Ef hann
gerir þarfir sínar á stað, þar sem engin laus
jarðvegur er fyrir, eins og t.d. á steinsteypta
hellu, þá breytir það engu hegöun kattarins,
hann klórar ofan í helluna og rótar, alveg eins
og hann væri í moldarflagi.
Svín eru rétt eins og önnur dýr. Þau klóra sér
með því að nudda sér utan í það, sem „hendi
er næst", hvort sem það er skítugur planki,
eða dauðhreinsaður rörbútur. Slíkt hefur alls
enga þýðingu hjá þeim. öll dýr, (að undan-
teknum nokkrum húsdýrum eins og kúm,
kindum og hestum) fara aöeins afsíðis til að
leggja frá sér saur. Svín eru þeirra á meðal.
Sjálfseignarbuio ad Minni- Vatns/evsu.
Á svínabúi Þorvaldar Guðmundssonar
sja/fseignarbónda að Minni- Vatns/eysu eru
að jafnaði um 2000 svín, sem a//s ekki
eru nein svín...
Sjálfvirkur fóðurskammtari fyrir kalda gæja.
16 VIKAN 26. TBL.