Vikan

Issue

Vikan - 24.06.1976, Page 17

Vikan - 24.06.1976, Page 17
— Svín eru aldrei svín, nema að svínahirðir- inn sé sjálfur svín, sagði Þorvaldur Guðmunds- son i Síld og Fisk, þegar hann sýndi mér svínabú sitt að Minni-Vatnsleysu, þar sem um 2000 svín af öllum stærðum er samankomin og bíða þess að komast á matborðið hjá okkur. Samkvæmt þeirri kenningu var strax greini- legt aö svínahirðirinn, eða öllu heldur bústjór- inn Gunnar Andersen, er langt frá því að vera nokkurt svín, því hvergi nokkurs staðar var að sjá vínastíu, sem með nokkrum rétti væri hægt að kalla sóðalega né óhreina. Undir svínunum var í flestum tilfellum dálítið af hálmi til að mýkja steingólfiö. Að öðru leyti sáust’engin óhreinindii. Enginn saur — engar matarleifar né slíkt. Við tókum beint úr einni stíunni sinn hvorn grfsinn og héldum á þeim rétt eins og haldið er á hundum eða köttum. Ég skoöaöi þá vandlega. Þeir voru holdfastir og stinnir og Ijósrautt holdið algjörlega laust við það sem í venjulegu tali er nefnt óhreinindi. Litlu greyin skríktu ámátlega hjá okkur og vildu komast aftur til mömmu, sem lá endilöng á gólfinu, svo grísirnir gætu auðveldlega komist að spenunum fullum af mjólk. Af grísunum var sterk lykt, og raunar öllum svínunum þarna inni. En það var greinilega svitalykt, því svin svitna mikið, sennilega vegna fitunnar sem á þeim er. Eins og ég drap á áðan þá eru um 2000 svín á svfnabúinu, en það er það magn, sem búið gefur af sér árlega, samkvæmt upplýsingum Þorvaldar. Hver gylta gýtur aö jafnaði tvisvar á ári og er algengtað lOtil 12grísirkomiíhverjugoti. Gylt- urnar, sem notaðar eru til undaneldis verða 5—6 ára gamlar áður en þær eru taldar of gamlar til þess. Fæða handa svínunum er kornfóður, sem flutt er inn í landið. Mismunandi fóðurblöndur eru notaðar við mismunandi aldur dýranna, en fóðrið hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á gæði kjötsins. Stanslaus barátta er háð við fitu- myndun svínanna, sem verður að vera í vissu hlutfalli við fituminna kjöt til að hæfa markaðskröfum, en Síld og Fiskur hefur, í mótsögn við nafnið, sérhæfingu á sviði svinakjöts og mun vera einasta verslun þeirrar tegundar hér á landi. Nýjar birgðir svínakjöts berast versluninni tvisvar á viku, sagði Þorvaldur, sem gerir það kleift að hafa ávallt nýtt og ófryst kjöt á boðstólum. Slátrun er framkvæmd einu sinni eða tvisvar í viku, og er þá um 30 dýrum slátrað í einu. Slátr- unin fer fram í fullkomnu sláturhúsi á unin fer fram í fullkomnu sláturhúsi á svínabú- inu, og er dýralæknir viðstaddur hverju sinni bæöi til eftirlits og til að gæðamerkja kjötið. Slátrunin fer þannig fram, að dýrin eru fyrst svæfð með rafmagnslosti, áður en aftakan fer fram. Eftir að skrokkarnir hafa síðan verið blóðtæmdir, er þeim dýft ofan í ker, þar sem þau eru kalúnuð, og siðan er húðin rökuð með klippum eða „rakvél". Allir hlutar svinanna eru gjörnýttir. Þekktasti hluti þeirra er líklega „beikon", en þar fjarlægir fyrirtæki Þorvaldar puruna, en úr henni eru búnir til litlir bitar, sem síðan eru seldir tilbúnir til neyslu i litlum plastpokum. Aðra hluta svínanna þekkjum við sem læri, steikur. Stóri-göltur t vígahug. Þorvaldur (Tolli) skoóar upp / ungviðió. Blaðamaðurinn og nafni hans láta vel hvor að öðrum. 26. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.