Vikan

Eksemplar

Vikan - 24.06.1976, Side 21

Vikan - 24.06.1976, Side 21
ANNE ARMSTRONG THOMPSON Svo var dirfsku hans fyrir að þakka að það tókst.“ „Er hann þá sloppinn?" „Já, hann er sloppinn. Hann mun aidrei aftur fara til Rússlands." „Það má auðvitað ekki komast upp hver hann er.“ „Að sjálfsögðu." Forsetinn þagði. „En ég hafði hugleitt hvort þú viidir hitta hann sem fulltrúi minn. Það virðist einhvern veginn fara vel á þvi. Hann kem- ur í kvöld.“ Súsanna var undrandi. „Jú, auðvitað, mér væri það mikill heiður.“ „Gott. Það er ágætt. En ég ætla að vara þig við að þreyta hann. Bjóddu hann velkominn, en mundu að hann er særður, illa særður." Hann hreyfði sig órólega til í sætinu. „Það var ekki auðvelt að ná Absalom úr landi. Það komu upp.... vandamál." Forsetinn ræskti sig og hélt ákveðinn áfram: „Það mun verða farið með þig héðan í þyrlu að flugvelli, sem við notum stundum. Þar munt þú hitta Adam Ross. Absalom þekkir hann. Ross mun fara með hann til sveitaseturs í eigu CIA, og hann mun verða skorinn upp við sárum sínum eins fljótt og mögulegt er, en eitrun er komin i þau. Ef hann lifir þetta af, mun hann fá nýtt andlit og nýtt nafn. „Hann hefur búið í Austur- Evrópu, en ferðast um Vestur- lönd. Hnn mun eiga auðveldara með að aðlaga sig en flestir aðrir. Þó mun hann ávallt verða rússi. Frelsið gæti jafnvel gert hann órólegan." Forsetinn brosti tii hennar. „Spurningin verður sú, hvort hann fær áhuga á að að- lagast umhverfinu.” „Já,” svaraði Súsanna. En hún vissi ekki hvað hann átti við. Henni skildist það ekki fyrr en seinna. Forsetinn leit á klukkuna. „Nú held ég að tími sé til kominn að þú farir að leggja af stað. Þú munt koma alveg mátulega til að taka á móti honum þegar hann lendir. Þakka þér fyrir að koma.“ „Það er ég sem ætti að þakka fyrir, hr. forseti. Ég er þakklát fyrir að hafa verið sagt frá þessu.“ SÖGU- LOK „Ég vildi segja þér frá þessu af tveim ástæðum. Fyrst og fremst áttir þú skilið að fá að vita hve mikilvæg skilaboðin voru. Þú hefur gert mikið til að hjálpa föðurlandi þínu, og við getum ekki veitt þér neina viður- kenningu fyrir. ’* „Önnur ástæðan er persónuleg fyrir manninn Absalom. Eg vildi segja þér frá þeim atriðum ævi hans, sem hann hefði aldrei getað sagt þér sjálfur.“ Hann brosti að undrunarsvip hennar, en sagði þó ekki meira. Hann tók úrið hennar upp úr vasa sínum, og bar hana saman við klukkuna á borðinu. „Þetta er vist þitt, frk. Clarke.“ Forsetinn brosti og gekk með henni að lendingarstað þyrlunn- ar. Hann tók í hendi hennar þegar þau komu að stiganum. „Þakka yður fyrir upp- lýsingarnar hr. forseti.11 „Það er ekkert að þakka. Ég er þér þakklátur, og ég er mjög hreykinn af þér.“ Hann hjálpaði henni inn í þyrluna, steig síðan til baka og beið meðan hreyfill þyrlunnar jók hraðann. Hann leit þreytulega út. Höfuðið var beygt, og hendurnar krepptar fyrir aftan bak. Súsanna starði út, þar til myrkrið var það eina sem hún sá. Síðan hugleiddi hún hvernig Absalom hefði það. Þyrlan lenti með Susönnu á auðu engi. „Bíddu augnablik," sagði flugmaðurinn. „Þetta lítur út eins og einskismannsland, en ég er viss um að það kemur ein- hver til að hitta þig.“ Susanna veifaði til hans um leið og hún hljóp með höfuðið beygt undir spöðunum, sem snérust með ofsa- hraða. Þyrlan tókst á loft og hvarf. Eina hljóðið sem heyrðist var niður vindsins í grasinu. Dökk vera birtist allt í einu. „Frk. Clarke?” kallaði manns- rödd. „Já.“ „Komdu með mér hingað til hlöðunnar.“ Að utan leit húsið út eins og tóbakshlaða. Inni var það flug- skýli. Maðurinn hló að undrun hennar. Tóbaksbagginn þarna er raunverulega sendistöð," sagði hann. „Við munum ekki þurfa að bíða lengi. Ég er Adam Ross. Viltu sígarettu?" Þau reyktu saman í vingjarn- legri þögn. Ross vildi ekki tala um flóttamanninn. Eina svarið, sem Susanna fékk við spurningum sín- um var: „Við sjáum nú til.” En hann var ákafur, óþolinmóður og spenntur. næstum eins og lítill drengur. „Hvernig hafið þið hugsað ykkur að koma vini okkar héðan?” spurði Susanna, og gerði aðra tilraun tii að koma af stað samræðum um manninn sem var að koma. Ross benti henni á grænan og hvítan bíl, sem lagt hafði verið fyrir utan hlöðuna. Á hann var skrifað „Þvottastöð White’s”. „Þetta er sjúkrabíll,” sagði hann. „Er hann ekki vel málaður?” „Hann er sjálfsagt ágætur, svo lengi sem hann er ekki stöðv- aður,” svaraði hún og glotti. „Það er engin hætta á því.” Vélarhljóð heyrðist að utan. Komdu og sjáðu,” bauð Ross henni, og leiddi hana að litlum dyrum. Hann flýtti sér að loka þeim aftur og slökkti ijósið. Þau stóðu með bakið að vegg hlöðunn- ar, sem var enn volgur eftir hita dagsins. Ljósin kviknuðu aðeins einu sinni, á meðan flugvélin sveif yfir trjátoppunum. Vélin lenti síðan auðveldlega í grasinu og stansaði að lokum. Hún ók með annað ljósið kveikt inn í hlöðuna. Súsanna og Ross stóðu inni þegar flugmaðurinn slökkti á vél- inni. Ljósið var kveikt aftur. Flugþjónn opnaði vélardyrnar, en gekk síðan aftur inn. „Eigum við að fara inn?” spurði Súsanna. „Þeir munu koma með hann hirtgað,” svaraði Ross. Hann virtist áhyggjufullur. Fljótlega kom flugþjónninn niður úr vélinni með hjúkrunar- konu á hælunum. Þau komu til Ross. „Hann heimtar að fá að ganga,” sagði hjúkrunarkonan. ,,En..” byrjaði Ross. „Ég veit það, en það er engu tauti við hann komið.” „Maðurinn er brjálaður,” sagði flugþjónninn. Súsanna sagði ekki neitt. Henni fannst hún skilja flóttamanninn. Þau biðu augnablik í viðbót — í skugganum svo aö honum fyndist ekki að sér þrengt. Þá birtist maðurinn í dyrunum og hann tók sín fyrstu hægu skref niður tröpp- urnar. Hann virtist veiklulegur, og hann hreyfði sig eins og maður, sem finnur mikið til. Hann var grár, gugginn og magur. En munnsvipur hans var ákveðinn. Skref fyrir skref gekk hann áfram niður þrepin. Þegar hann var hálfnaður niður snéri hann andlitinu að ljósinu. „Almáttugur," hvíslaði Súsanna. Adam Ross sagði eitthvað, en Súsanna heyrði ekki til hans. Hún starði fram fyrir sig og reyndi að sjá betur andlit flóttamannsins. 26. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.