Vikan - 24.06.1976, Síða 25
að bisa við að draga fjórtán hálfdauðan út úr
henni.
— Talandi rassvasi? sagði hann. Hvað áttu
við Meinarðu vokí-tokí tækið hérna? Svaraði
hann og dró röddina aftur upp úr vasanum.
Við erum allir með svona tæki, hélt hann
áfram. Þau eru orðin okkur öllum bráðnauð-
synleg, eöa hvernig heldurðu að gengi að
stjórna sýningunni í dag til dæmis, ef við
gætum ekki haft beint samband hver við
anna, hvenær sem er?
Og þá fór ég að hugsa. Það gekk að vísu
dálítið erfiðlega svona til að byrja með, en
miðað við æfingarleysið má sennilega telja
árangurinn fram úr öllum vonum.
Ég hugsaði fyrst um matarveisluna, sem
okkur var boðið til við byrjun sýningarinnar;
og fékk vatn í munninn.er ég minntist stóru
steikarinnansem allir fengu á sinn disk,ásamt ofn
bökuðum kartöflum, rósakáli og allskonar græn-
meti, og ekki skemmdi, að glitrandi rauðvín var
til aðstoðar við niðurrennslið og til að dunda við
undir fræðandi erindum um skipulag slökkvi-
liðsins á vellinum og aðrar upplýsingar um
starfsemi þess. Með erindunum sýndu slökkvi-
liðsmenW litskuggamyndir á stóru tjaldi til
frekari útskýringar, og ég trúi því fastlega, að
hver einasti þessa um 100 slökkviliðsmanna
víðsvegar af landinu, sem þarna voru staddir,
hafi þar bæði heyrt og séð ýmislegt nýtt, sem
þeir gætu með góðum árangri notað hver á
sínum stað. Og meira áttu þeir eftir að sjá,
þegar veislunni var lokið, því þá var farið með
alla í bílum til slökkvistöðvarinnar, og þar var
þeim sýndur tækjakostur sá, sem þeir hafa til
umráða.
Hinn dugmikli og stjórnsami slökkviliðsstjóri
vallarins, Sveinn Eiríksson, sem um tima var
gælunefndur Patton vegna ötullar framgöngu í
Vestmannaeyjum, þegar þar gaus, fræddi mig
um það, er ég spuröi, að slökkvilið flugvallar-
ins f Keflavík væri stærsta flugvallarslökkvilið
bandaríkjahers utan Bandaríkjanna og jafn-
framt hið best búna. Þeir hafa nú 48
vélknúnum farartækjum á að skipa, og tveir
slökkvibflar eru væntanlegir innan skamms til
viðbótar. Slökkviliðsmenn á sjálfum vellinum
eru um 100, en þá eru ótaldir ýmsir smærri
hópar, sem eru undir stjórn Sveins, en
staðsettir annarsstaðar en á vellinum sjálfum.
Það kom fram í ræðu yfirmanna vallarins, að
verðmæti það, sem slökkviliðið þyrfti að verja,
væri um 54 billjón króna virði á hverjum tíma.
Ekkert tryggingafyrirtæki fæst til að tryggja
hergögn né annan búnað herstöðvar, og
S/ökkvi/iðsst/órinn Sveinn R. Eiríksson.
Kristjðn Þórðarson skrifstofustj.
26. TBL. VIKAN 25
Halldór Ha/ldórsson dei/darstf. þotugi/dru-
dei/dar.
Magnús O/afsson deildarstj. sn/óruðnings-
dei/dar.