Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 24.06.1976, Qupperneq 26

Vikan - 24.06.1976, Qupperneq 26
þessvegna tekur Bandaríkjastjórn á sig sjálfa að „tryggja" allan útbúnað sem best fyrir hverskonar skemmdum. Hún hefur falið Sveini Eiríkssyni, sem hvorki er verkfræðingur, lögfræðingur né annað slíkt, heldur aðeins frábær elju- og dugnaðarmaður, að sjá um allar þessar varnir þeirra hér. Tíu sinnum hefur verðlaunum verið úthlutað fyrir frábær slökkvi- störf innan bandaríska sjóhersins. Sveinn og menn hans hafa fengið þau verðlaun ÁTTA SINNUM í RÖÐ. Slíkur árangur kemur ekki af sjálfu sér. Hann krefst einstaks dugnaðar, árvekni og stjórn- semi. Hann kostar líka öfund og gagnrýni annarra þegar færi gefst. Hann kostar það einnig, að vandasamara er að fá menn til að vinna hjá honum. Það eru nefnilega aðeins dugmiklir áhugamenn, sem þola þann aga og þá stjórnsemi, sem þarna hlýtur að vera. Sjálfur hef ég unnið á launadeild varnarliðsins á vellinum, en þar eru m.a. færðar allar fjarvistir starfsmanna. Mér er kunnugt um, að enginn starfshópur innan vallarins kemst í hálfkvisti við slökkviliðsmenn, hvað viðkemur mætingum til vinnu. Enda er sú saga oft sögð, að Sveinn hljóti að láta flytja slökkviliðsmenn til vinnu í sjúkrabíl, ef þeir þjást af einhverjum kvilla. Ég veit líka, að Sveinn er með kauphæstu mönnum þar. Óeðlilegt? Ég held ekki. Ég held, að hann vinni fyrir hverjum eyri, jafnvel þótt meira væri. En ég ætla að lýsa að nokkru sýningunni, sem sett var á svið þama á vellinum fyrir slökkviliðsmenn víðs vegar að af landinu, og var kominn þar sem verið var að skoða slökkvistöðina og tækin þar. Sú skoðun hófst raunverulega með því að við vorum leiddir að herþotu, sem stóð þar fyrir framan. Í þotunni sat amerískur flugmaður, sýnilega albúinn að fljúga henni af stað. Við þotuna var stigi, og í honum stóð slökkviliðsmaður með hátalara og fór nú að lýsa því sem gerðist, en það var sýning á björgun flugrnann úr slíkri þotu, ef voði steðjaði að. Sumir kynnu að halda að nægði að rífa í manninn og kippa honum út í einum grænum hvínandi hvelli, en svo einfalt er málið ekki. Flugmaðurinn er margreyrður ofan í sætið með ýmiskonar ólaútbúnaði, og þar að auki er á hann fest fallhlíf. að lokum er sætið, sem hann er festur við, ákaflega viðsjárvert, því rakettuútbúnaður er í því, sem gæti sent flugmanninn með sæti og öllu saman langt upp í himingeiminn, ef rangur takki væri snertur. Sennilega mundu björgunar- maðurinn taka þátt í ferðinni, en óvisst er um endalok þeirrar ferðar, hvort hún endaði á sjúkrahúsi eða líkhúsi. Þessvegna verður að fara að öllu með sérstakri gát og ekkert gera né snerta nema fullkomin vissa sé fyrir því að þar sé ekki farseðillinn út í bláinn falinn. Eftir björgun flugmannsins voru önnur tæki skoðuð utan og innan, síðan farið aftur í bílana og ekið út á völl þar sem flugvélaflök stóðu og biðu endalokanna. Þau komu með okkur, því jafnskjótt og við vorum búnir að koma okkur fyrir, var eldur borinn að einu þeirra, sem áður hafði verið bleytt í með sjö þúsund lítrum af bensíni og sátu þar nú inni nokkrir ,,menn" eða öllu heldur dúkkur. Eldurinn magnaðist auðvitað á einu augnabliki og varð að miklu báli eins og myndin ber með sér. Sveinar Sveins sýndust samt hvergi smeykir, því þeir þustu að í tækjum sínum og drápu eldinn jafn Þessi krani tekur upp f/ugvélar af brautum, ef meö þarf, og flytur þær / burtu. Þotan kemur meö 300 km hraöa eftir brautinm og er aö komast að giidrunni þar sem hún krækir króknum í. Krókurinn séstþar sem hann kemur niður úr véiinni aö aftan. Nýlegur slökkvibíll, aðallega ætlaður viö hús- bruna. ,,Drekmn'', einn ný/asti og stærsti slökkvibíllinn. 26 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.