Vikan

Issue

Vikan - 24.06.1976, Page 27

Vikan - 24.06.1976, Page 27
snögglega og hann hafði myndast. Það næsta sem við sáum voru slökkviliðsmenn inni í flakinu önnum kafnir við björgun farþega. Þegar brúðum hafði verið bjargað úr flakinu, vorum við fluttir á annan stað á flugbrautinni, þar sem hljóðfrá orrustuþota hnitaði hringi uppi yfir, en jafnskjótt og við höfðum komið okkurfyrir, stakk hún sér niður til lendingar og kom síðan með 300 km. hraða eftir flugbraut- inni, þar sem sveinar höfðu komið fyrir svokallaðri „þotugildru", en það er strengur sem strekktur er yfir þvera brautina og krækist í þotuna er hún fer þar yfir og stöðvar hana þannig. Strax og þessu atriði var lokið, fórum við í bílunum að flugskýlinu stóra þarna á vellinum, en það hafði verið tæmt öllum tækjum og allar dyr opnaðar. Það var líka eins gott, því er við höfðum stigið úr bílunum fór slökkvikerfi skýlisins í gang og neðan úr þaki þess steyptist óhemju vatnsflaumur og dreifðist yfir allt, og þykist ég fullviss um, að enginn hundur hefði látið siga sér þar inn. Þessu næst var ekið að einu stærsta samkomuhúsi vallarins og „kveikt í því." En það reyndist skammgóður vermir, því að sveinar Sveins þustu á staðinn og réðu niðurlögum eldsins og dundi við lófatak hópsins fyrir utan, sem hafði staðið þarna áhyggjufullur um stund og hugsað til bjór- birgðanna innifyrir sem biðu þeirra ef vel tækist til. Þær áhyggjur voru sem betur fer ástæðu- lausar, því Sveinn bauð öllum viðstöddum innfyrir að loknu slökkvistarfi, og tóku þar allir ósvikinn þátt í að slökkva sinn eigin þorsta, enda virtust birgðir nægar af slökkviefni. Slökkviliðsmenn, sem sátu ráðstefnuna og sáu þessa sýningu, voru sammála um að hún hefði tekist frábærlega og verið einstaklega fróðleg, og sjálfur get ég borið að skipulag hennar hafi í alla staði verið mjög gott. Ég hefi margar sýningar séð, bæði hér heima og erlendis, en aldrei fundið hjá mér löngun til að hrósa framkvæmd slíkra sýninga fyrr en nú. Þarna var hver einstakur liöur fyrirfram Farþegaflugvél í björtu báli. Þotan er að setjast og stefnir á ,,gildruna, sem strekkt er þvert yfir brautina. ákveðinn og tímasettur, jafnt hvort sem um var að ræða að kveikja og slökkva í þúsundum lítra af bensíni, lendingu herþotu á sérstakan hátt eða íkveikju í samkomuhúsi. Allir hlutir gerðust á nákvæmlega réttum tíma og á nákvæmlega réttan hátt. Og hvert atriði var útskýrt og því lýst af fagmönnum af rósemi og festu. Slíkt öryggi í framkvæmd fæst ekki nema með nákvæmri áætlanagerð og skipulagn- ingu, og til framkvæmdanna þarf vel þjálfaða menn, góð tæki og síðast en ekki síst gott samband milli allra aðila með öruggum fiarskiptatækjum. Einmitt á þeim vettvangi sýnist mér mikið mega gera og jafnvel gjörbreyta öllu slökkvistarfi hjá íslenskum slökkviliðum. Góð og örugg „walkie-talkie" tæki, öflugir hátalarar og annað slíkt gera einum manni auðvelt að stjórna jafnvel flóknu slökkvistarfi og nýta menn og verkfæri til fulls, eins og glögglega kom fram á þessari sýningu. Yfirmenn flugvallarins kunna líka sýnilega vel að meta gott skipulag og stjórn, því slökkvi- liðið hefur tekið að sér ýms öryggismál þar syðra eins og snjóhreinsun á flugbrautum og umsjón með öðrum öryggisútbúnaði á braut- um, en slíkt dregur auðvitað úr hættu á slysum eða öðrum óhöppum. Einkunnarorð Sveins og sveina hans eru líka: — Fyrirbyggjandi aðgerðir eru betri en frábært slökkvistarf. KAFILSSON. & - og margt annað sem er þess virði að líta á. Vörur fyrir alla - Verð fyrir alla TÉKK'- KRMAIl Laugavegi 15/ sími 14320. Mikið og vandað vöruúrval. Handskorinn kristall Mótaður kristall Litaður kristall Glervörur í miklu úrvali Onix vörur mjög fallegar Styttur í fjölbreyttu úrvali Keramik frá Glit 26. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.