Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 33
raufst á vegginn, ekki nógu stórt
til þess að þessi unga kona komist
þar út?“
„Jú,“ sagði Gracchus. „En þið
eruð enn á bak við þessar grindur
og þetta er ekkert vírnet. Lítið
bara á þá. Þeir eru álika sverir og
úlnliður á barni.“
„Heyrðu mig nú, kalli minn, ef
þú hættir ekki að masa þetta um
prísundina okkar og fangaverðina
gef ég þér einn á nasirnar hér út á
milli rimlanna. Sérðu ekki, að
konan er lasin, og verður að
komast héðan eins fljótt og auðið
er.“
„Verið ekki svona harður við
hann,“ sagði Marianne. „Ég veit
að hann hefur einhver ráð með
það.“
„Hvers vegna hefði ég annars
átt að leggja allt þetta erfiði á
mig?“ sagði Gracchus-Hannibal
önugur. „Hins vegar er ekkert
hægt að gera í málinu í kvöld. Það
er orðið of áliðið. Ætli klukkan 5é,
ekki að verða fimm. Auk þess
þarf ég að ná í almennileg verk-
færi. Góð þjöl kæmi sér vel, nema
nema hægt sé að losa um einn eða
tvo rimla.“
„Löa brjóta mður vegginn,"
sagði Arcadius í hæðnistón. „Þú
ert víst enginn lásasmiður. Sæktu
einhver verkfæri lásasmiðs og
komdu svo aftur annað kvöld, ef
þú getur. Þú hefur rétt fyrir þér,
það er orðið of áliðið.“
Marianne reyndi hvað hún gat
að dylja vonbrigði sín. Þegar hún
hafði séð strákinn koma fannst
henni frelsið vera innan
seilingar, en nú yrðu þau að bíða í
einn sólarhring. Gracchus-
Hannibal klóraði sér í höfðinu."
„Verkfæri lásasmiðs?" sagði
hann. „En hvar á ég að ná í þau?
„Hlustaðu á mig,“ sagði
Marianne, en henni hafði dottið
dálítið í hug. „Ef þú þarfnast
aðstoðar, þá veit ég um mann,
sem getur veitt þér hana, ef hann
er þá enn í París.
„Hver imam'selle?
„Farðu á Hotel l’Empire og
spurðu eftir Jason Beufort, en
það er ameríkani. Manstu þetta?
Jason Beaufort."
Strákurinn dró blað og blýant
undan húfu sinni. „Bíðið
andartak," sagði hann. „Eg ætla >
að skrifa þetta hjá mér. Já...
svona. Hvað á ég að segja við
hann?“
,,Að þú sért sendur frá
Marianne og að hún sé i vanda
stödd. Segðu honum síðan hvar ég
er.“
„En ef hann er farinn?
„Þá er ekkert við því að gera,“
sagði hún döpur. „Komdu þá.
aftur og láttu mig vita.“
„Þér viljið ekki, að ég hafi
samband við fólkið að Rue de
Varennes?”
,,Nei...ekki í bili að minnsta
kosti. Við skulum fyrst komast að
hvort M. Beaufort er farinn.”
Marianne gerði sér ekki al-
mennilega grein fyrir því, hvers
vegna hún óskaði eftir aðstoð
Beauforts. Hann hafði sært til-
finningar hennar og jafnvel núna
treysti hún honum ekki til fulls.
En i honum sá hún þrátt fyrir allt
tækifæri til þess að flýja þá
ógæfu, sem hafði elt hana allt frá
því hún giftist Francis Cranmere.
. Framhald í nxsta blaði.
UR EIK , TEAK OC PALESANDER
STOFUNNI SKIPT
Ruykjavíkur hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940
Snyrtivörur [ miklu úrvali.
Gjafavörur, herravörur, sólgleraugu nýjasta sumartlskan,
varalitir og naglalakk nýkomiö f miklu úrvali.
Gjörið svo vel aö Kta inn.
REGNHLÍFABÚÐIN,
Laugavegi 11, sfmi 13646.
EINNI & PINNI
hef ætlö sagt, aö þar sem
reykur er, leynist eldurl
26. TBL. VIKAN 33