Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 36

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 36
eins farið með skurðlækna í þessu tilfelli og píanóleikarann. Eftir eina viku án æfingar heyrir píanóleikar- inn það sjálfur, eftir tvær vikur heyra áheyrendurnir það. Ekki þarf að orðlengja frekar snilli læknanna, en ekki líta allir sömu augum á ágæti starfsins, sem þeir inna af hendi. Nýlega var gerð aðgerð á ungri tyrkneskri konu, sem hafði misst fjóra fingur annarrar handar. Að meðferð lokinni grét hún af gleði yfir því að hafa endurheimt fingur sína, en maður hennar grét vegna þess að hann, sem kominn er af mjög strangtrúuðu fólki, átti bágt með að kyngja þeirri smán, sem hann taldi fjölskyldu sína hafa orðið fyrir, vegna þess að konan hans hafði verið látin neyta svínakjöts, meðan á spítaladvölinni stóð. — Ég átti ekki von á því, að honum fyndist nauðsynlegt að koma og búa hjá okkur. — Máttu vera að því að tala við lögfræðinginn þinn augnablik? L o í t L ° I fDUH ( \ ® 0 1 36 VIKAN 26. TBL. blóðið getur aftur farið að renna um liminn. Þá renna blóðlifrarnar sem eftir voru í limnum, úr honum smátt og smátt og æðar hans fyllast tæru blóði. Að því loknu eru sinarnar saumaðar saman og því næst taugarnar. Þá fyrst er bláæðunum skeytt saman og síðast að sjálfsögðu húðinni. Ef fletir sársins eru sléttir, eins og t.d. eftir hníf eða öxi, og komið er fljótt af slysstað, eru mestar líkur til þess að aðgerðin takist. Fyrstu mánuðina var ekki mikið að gera á ágræðsludeildinni. Þeg- ar nokkur tími var liðinn og aðeins einn sjúklingur hafði komið til meðferðar var Ijóst, að við svo búið mátti ekki standa. Mikið upplýsingastarf var sett á laggirn- ar, enda vissu læknar almennt í Þýskalandi nánast ekkert um deildina svo að ekki var vanþörf á. Upplýsingastarfið bar fljótt ár- angur. Eftirtvo mánuði hafði verið gert að sárum 23 sjúklinga, sem misst höfðu lim. Dr. Biemer segir: ,,Á síðustu þremur dögum höfum við grætt á hvorki meira né minna en níu fingur." Það er enginn hægðarleikur að græða fingur á að nýju. Meðaltími við slíka aðgerð eru fjórar til fimm klukkustundir. Þarna sitja tveir skurðlæknar hvor á móti öðrum allan tímann og rýna í smásjá, alveg að sligast undan álaginu, og í kringum þá snúast hjúkrunar- konur og annað aðstoðarfólk. Alltaf er það sama fólkið, sem vinnur saman, og ef það vill tryggja góðan árangur verður það að vera í stöðugri æfingu. Þvi er nýja ,, afró" hárgreiðslu syngur Barbara Streisand fyrir 45.000 aðdáendur sína í Arizona, síðhærð og bedæruð í myndinni ,,Ugian og kettlingurinn" og í nýjustu mynd sinni ,,Ný stjarna er fædd" iét Streisand ekki nægja að teika aðalhlutverkið heldur er hún einnig framleiðandi. BORGAÐ FYRIR BARBÖRU Hefðu allir statistarnir, sem not- aðir voru sem bakgrunnur í nýj- ustu framleiðslu kvikmyndafyrir- tækisins Warner Brothers, farið fram á greiðslu er hætt við að tómahljóð hefði komið í kassann. Settir voru á svið útitónleikar með fjörutíuogfimmþúsund áhorfend- um, sem allir vildu fúslega greiða fyrir að fá að sjá og heyra Barböru Streisand syngja með sínu nefi, því að nú fetar ameríska súper- stjarnan syngjandi í fótspor þeirra Janet Gaynor og Judy Garland í hlutverki sínu í kvikmyndinni ,,A Star is Born" (Ný stjarna er fædd). Þar leikur hún stjörnu í blíðu og stríðu og nýtur við það félagsskapar skeggjaða rokk- söngvarans Kris Kristofferson.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.