Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 38

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 38
Smásaga eftir Vic Suneson. STRAUMROF Hann ætlaði að myrða Elsu. Þetta var ekki ný fyrirætlun; hann hafði velt þessu fyrir sér lengi, en hann hafði ekki gert sér ákveðnar hugmyndir um það fyrr hvernig ætti að hrinda því í fram- kvæmd. Nú vissi hann það. Það var afar einfalt. Elsa fór í bridsklúbbinn á hverju fimmtudagskvöldi og kom heim um ellefuleytið. Þá settist hún fyrir framan arininn — þótt aldrei kveikti hún upp í honum — og kveikti á rafmagns- ofninum. Það var oft æði kalt í íbúðinni þeirra, enda voru glugg- arnir óþéttir og vindurinn frá höfninni stóð beint upp á þá. Svo las hún nokkra stund í viku- blöðunum sínum, þvi að hún gat ekki sofnað strax eftir æsinginn við spilaborðið. Loks lagðist hún þó til svefns. En ekki i sömu rekkju og hann. Hjónaband þeirra var ekkert orðið nema formsatriði. Hún var bara ráðskona hjá honum. En hún hafði meira en meðalráðskonu- laun. Pelsinn, sem hún fékk í fyrra, var ekki af ódýrari gerð- inni. Hann var rafvirki í stóru fyrir- tæki og lagði rækt við starf sitt. En hann var ekki metnaðargjarn og vrði aldrei neitt sérstakt. Elsa vildi ekki eignast barn. Hún vildi ekki sofa hjá honum. Hann benti henni á, að þau gætu ættleitt barn. Þá hló hún. — Þú getur ekki fullnægt kven- manni, sagði hún. — Hvernig faðir yrðir þú? Þú ert einskis nýtur. Snáfaðu út úr herberginu mínu. Og þar með var það afgreitt. Hjónaband þeirra var engu líkt. Elsa annaðist hússtjórnina af frábærum myndarskap, sem ekk- ert varð að fundið, og hann strit- aði til að myndarskapurinn á heimilinu léti ekki á sjá. Svo hitti hann Maríu. Hún var framreiðslustúlka í litla veitingahúsinu, þar sem hann borðaði hádegisverð. Þau tóku tal saman. Með tímanum urðu þau góðir kunningjar, og hann varð hrifinn af henni. Hún var utan af landi og þekkti engan í borginni. Einn daginn hafði hann sig upp í að bjóða henni að borða með sér um kvöldið. Hún hikaði svolítið, áður en hú.n sagði já. Þetta varð yndislegur kvöld- verður. Hann hringdi til Elsu og sagði henni að hann yrði að vinna eftirvinnu. Hann hafði aldrei kynnst stúlku eins og Maríu. Hún var síbrosandi náttúrubarn með spékoppa. Hann gat ekki staðist hana. En María bjó með tveimur öðrum stúlkum, og þegar þau komu að útidyrunum, varð ekki haldið lengra. En þrátt fyrir það vissi hann, að María var konan í lífi hans. Tíminn, sem í hönd fór, var fullur af skröksögum og lygum, sem ekki tókust allt of vel. Hann gat ekki sagt Elsu, að hann hefði kynnst annarri konu. Hún virtist vera fullkomlega ánægð með líf sitt, og skilnaður því óhugsandi. Það var þá, sem hann ákvað að drepa Elsu. Hann hafði fengið stórkostlega hugmynd. Rafmagnsofninn, sem hún notaði svo oft, var orðinn gamall og tengillinn orðinn léleg- ur. Það var enginn vandi fyrir rafvirkja að ganga þannig frá ofn- inum, að sá sem stingi honum í samband fengi sterkt raflost. Og Elsa var veik fyrir hjarta. Það hafði læknirinn sagt honum fyrir löngu. Raflost riði henni áreiðan- lega aó fullu. Hann hélt áfram að hitta Mariu meðan hann lagði á ráðin um morðið. Það var óþægilegt að hún skyldi búa með tveimur öðrum stúlkum. Honum tókst að útvega henni litla íbúð skammt frá veit- ingahúsinu, sem hún vann á. Þar gátu þau hist án þess aó eiga á hættu að verða ónáðuð. Hann bar mikla virðingu fyrir Maríu, og hann gerði enga tilraun til að „misnota” traust hennar. Þau kysstust annað veifið — það varð hann að láta sér nægja. En inni í honum var glóandi eldur. Hann varð að bíða. Hann lagði til, að þau giftu sig. Þegar hann væri laus við konuna sína. María brosti bara sinu bliðasta og sagði, að þetta væri ágætt svona. Hún hafði bein í nefinu og var ákveðin í því að láta hann ekki skerða frelsi sitt. Hjá því varð ekki komist, að Elsa tæki eftir því, að hann vann miklu meiri yfirvinnu en venju- lega og var miklu skapbetri en hann átti vanda til. t stuttu máli sagt — að eitthvað hafði komið fyrir. En hún var svo ánægð með sjálfa sig, að engin ástæða var til þess að hana grunaði neitt, enda gerði hún öll húsverkin janóað- finnanlega og vant var og hitti fátt fólk. Einu undantekningarn- ar voru fimmtudagskvöldin, þegar hún spilaði brids. María fór aftur á móti að fá alls konar flugur í höfuðið. Hún vildi ekki sitja innilokuð í litlu, snotru ibúðinni á hverju kvöldi. Hún vildi fara út og skemmta sér, hitta fólk og vera frjáls. Hann skildi hana og bauð henni út að borða á MALLORCA 30. maí 15 dagar — Fáein sæti laus 13. júní 22 dagar — Fáein sæti laus 4. júlí 22 dagar — Laus sæti 25. júlí 15 dagar — Fáein sæti laus 1. ágúst 15 dagar — Upppantað 8. ágúst 15 dagar — Upppantað 15. ágúst 15 dagar — Upppantað 22. ágúst 15 dagar — Upppantað 29. ágúst 15 dagar — Upppantað 5. sept. 15 dagar — Fáein sæti laus 12. sept. 15 dagar — Fáein sæti Iaus 19. sept. 15 dagar — Laus sæti 26. sept. 22 dagar — Laus sæti 17. okt. 15 dagar — Laus sæti MERflASKRIFSTOFAN SUNNA COSTA PEL SOL 15. maí 20 dagar — Laus sæti 5. júní 15 dagar — Fáein sæti laus 19. júnl 22 dagar — Laus sæti 10. júlí 22 dagar — Fáein sæti laus 31. júlí 15 dagar — Fáein sæti laus 7. ágúst 15 dagar — Fáein sæti laus 14. ágúst 15 dagar — Uppselt 21. ágúst 15 dagar — Fáein sæti laus 28. ágúst 15 dagar — Uppselt 4. sept. 15 dagar — Fáein sæti laus 11. sept. 15 dagar — Fáein sæti laus 18. sept. 15 dagar — Laus sæti 25. sept 22 dagar — Laus sæti 16. okt. 15 dagar — Laus sæti COSTA BRAVA 13. júní 22 dagar — Laus sæti 4. júlí 22 dagár — Laus sæti 25. júlí 22 dagar — Laus sæti 15. ágúst 22 dagar — Upppantað 5. sept. 22 dagar — Fáein sæti laus 26. sept. 22 dagar — Laus sæti 16. okt. 15 dagar — Laus sæti Þúsnndir ánœgðra viðskiptavina9 er okkar besta auglýsing UEKJARGDTU 2 SIMAR 16400 12070 38 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.