Vikan - 24.06.1976, Side 40
V
SVIPUR Á VEITINGAHÚSI.
Kæri draumráðandi!
Ég sendi þér hér stuttan draum, sem ég
vonast eftir að fá ráðningu á.
Mér fannst ég vera stödd á veitinghúsi og
haði fengið borð við gluggann.
Þegar ég svipaðist um í salnum, kom ég
auga á mann við eitt borðið skammt frá
mér. Þessi maður var náfrændi minn í
lifanda lífi, en þegar ég ætlað að fara að
heilsa honum, hætti ég við það, því að þá
mundi ég eftir því, að hann var dáinn. Þess í
stað fer ég að segja konunni, sem gekk um
beina, frá þessu, því að hún stóð viö borðið
mitt.
En í sömu svipan hafði okkur dottið það
sama í hug, nefnilega, að þetta væri
svipurinn mannsins míns. Leit ég þá strax
við, en þá var hann horfinn.
Ég vissi, að hann gat ekki hafa haft tíma
til að fara neitt, þvl þarna leið ekki nema
andartak. i
Maðurinn var klæddur í dökkbláan
rykfrakka, og var heldur unglegri í útliti en
þegar hann dó.
Með kæru þakklæti fyrir ráðninguna, sem
ég vona, að birtist sem fyrst.
Kona í Kópavogi.
Þessi draumur er fyrir einhvers konar
misskilningi. Þér bregður mjög við einhverj-
ar fregnir, en kemst svo að því síðar, að þær
eru byggðar á misskilningi. Þó gæti verið
um einhvern annan misskilning að ræða, en
hann verður áreiðanlega þess eð/is.
MEÐ FANGELSISVIST YFIR HÖFÐI SÉR.
Kæri draumráðandi!
Fyrir stuttu dreymdi mig draum, sem mig
langar að biðja þig að ráöa.
Draumurinn hófst með því, að mér fannst
ég vera að aka í vinnuna. Þaö var dimmt og
mikil rigning. Kom ég þá að stóru húsi, sem
mér fannst ég vinna í, en hef aldrei séð
__ áður. Þetta var stórt og mikið hús, í
Ikringum níu hæðir eða svo. Er inn kom, var
fólk þar, sem sagði, að ég ætti að fara í
fangelsi og gerði ég mér þá Ijóst, að þetta
hús varfangelsi. Við að heyra þetta varð ég
mjög hrædd og hljóp í burtu. Ég hljóp inn í
lyftu og setti hana á efstu hæð. Ein stelpa
var frammi, þegar þetta gerðist. Hún var
með talstöð og um leið og ég hljóp inn í
lyftuna, sendi hún þau skilaboð til hinna
varöanna að hafa gætur á öllum lyftudyr-
um, því ég hefði sloppið þangað inn.
í lyftunni var ég orðin örvæntingarfull,
--------------------------------------
því að á hverri hæð heyrði ég mannamál,
svo að ég hélt áfram að fara upp og niður I
lyftunni. Svo var ég að hugsa um að gefast
upp, þegar mér datt allt í einu ( hug, að það
var op efst í lyftunni.
Fór ég þá I örvæntingu að reyna að opna
það, en allt í einu fannst mér lyftan orðin að
fangaklefa, og núna var það gluggi, sem ég
var að reyna að opna.
Þá fannst mér sem systir mín og mágur
væru þarna hjá mér, og voru þau mjög
róleg. Hún var að lesa blað, og voru þau
alltaf að segja mér, að þetta þýddi ekki
neitt, því að það myndi aðeins lengja
dóminn, þ.e. bæta á fangelsisvistina. Varð
ég þá reið og sagðist vilja komast út, og
sagði, að ég skildi ekki, hvernig þau gætu
verið svona róleg á meðan ég hamaðist við
gluggann.
Þegar þarna var komið, var ég búin að
opna gluggann og ætlaöi að fara út, en
uppgötvaði þá, að það var allt rétt, sem þau
voru að segja. Kom þá yfir mig mikil ró og
ég hætti við að fara út.
í því var barið að dyrum og mágur minn
opnaði. Fyrir utan stóðu verðirnir, sem voru
stúlkur um tvítugt, og þegar þær sáu mig,
sagði ein þeirra: Nú, ertu þá þarna! Þá er
allt í lagi. Svo fóru þær. Ég varð mjög glöð
yfir þessu, settist niður og horfði út um
gluggann. Fannst mér þá alveg eins og ég
væri á fyrstu hæð en ekki níundu.
Úti var mikið sólskin og var skátahópur á
blettinum, og var hópurinn að draga fána
að húni. Þar var einn fullorðinn maður,
dökkhærður, og hélt hann á dökkhærðum
dreng, eins til tveggja ára að aldri. Allt hitt
voru unglingar.
Þegar fáninn var dreginn að húni, gerðu
þau skátamerki og svo hneigðu stelpurnar
sig og fannst mér það ákaflega óviðeigandi.
Svo var barið að dyrum og inn kom
strákur, sem ég þekkti fyrir nokkrum árum.
Hann var í brúnni lopapeysu og var einn
vörður með honum. Hann virtist ekki þekkja
mig.
Sagðist hann eiga að setja fyrir glugg-
ann, og sýndi mér bréf. Fór hann síðan að
festa fyrir gluggann aftur. Ég varö þá reið
og sagðist vilja hafa loft þarna inni, og hver
gæti svo sem séð mig þarna uppi á tólftu
eða þrettándu hæð, og ekki gæti ég stokkið
niöur.
En hann sagði bara, að hann yrði að gera
þetta.
Og við það vaknaði ég.
Þakka fyrirfram ráöninguna, sem ég
vona, að birtist.
Bestu kveðjur.
B.S.
Þessi draumur er fyrir því, að þú /endir /
einhverju klandri, sennilega fyrir fljótfærni,
en vinir þínir vilja hjálpa þér úr klípunni. Þér
gengur illa að viðurkenna, að þér hafi orðið
eitthvað á og vilt þess vegna ekki þiggja
hjálp þeirra. Það er ákaflega misráðið af þér
og þú skalt reyna að brjóta odd af oflæti
þínu og þiggja framrétta hjálparhönd þeirra.
I SKIRISSKÓGI.
Kæri draumráðandi!
Þegar ég var barn að aldri, las ég af mikilli
áfergju ævintýrin um Hróa hött og kappa
hans í Skírisskógi. Þetta voru mínar
eftirlætis bókmenntir eins og svo margra
jafnaldra minna. Ekki hef ég þó litið í þessar
bækur í mörg ár, og skil þess vegna hreint
ekkert í, hvernig á því stóð, að um daginn
dreymdi mig, að ég var á ferð um þennan
ágæta skóg. Ráðast þá allt í einu á mig
grænklæddir menn og taka mig höndum.
Skipti engum togum, að þeir drógu mig inn
í skóginn, þar sem ég vaknaði, þegar ég var
dreginn fyrir Hróa sjálfan.
Mér þætti fengur að því, draumráðandi
góður, ef þú sæir þér fært að ráða þennan
draum fyrir mig.
Kær kveðja.
H.H.
Þessi draumur er fyrir þvl, að þú lendir i
óvenju skemmtilegum félagsskap. Góða
skemmtun.
MIG ÐREYMDI
40 VIKAN 26. TBL.