Vikan - 23.09.1976, Blaðsíða 3
Á
FLEYGI
FERÐ
fannst bara ekki neitt fyrir hol-
unum. Einhvernveginn fannst mér
þetta ekki geta verið rétt, svo ég
jók hraðann, en allt fór á sömu
leið, það bara fannst ekki fyrir því,
að ekið væri á holóttum og
slæmum vegi. Og svo lá bíllinn
alveg frábærlega vel á malarveg-
inum, svo ég varð alveg stórhrif-
inn. Það var alveg sama hvernig
ég þrælaði bílnum fram og aftur
eftir slæmum malarveginum,
hann stóð sig eins og hetja.
Bíllinn, sem ég prófaði, var
sóttur til Frakklands og var því
gerður fyrir evrópskan markað, en
þeir bílar, sem munu koma hingað
í framtíðinni, verða gerðir fyrir
afrískan markað, sem þýðir, að
þeir verða svolítið hærri, með
stífari gorma, hlífðarplötu undir
mótor og stærri þéttilista á hurð-
um. Miðstöðin var afbragðs góð
og loftræsting í bílnum ágæt.
Eins og flestir vita eru frakkar
frægir fyrir sparneytna bíla, og ef
marka má tölur úr danska blaðinu
Bíll ársins 1976 var kosinn
Simca 1307/8 í Evrópu. 49
blaðamenn frá 15 löndum
tóku þátt í að velja bílinn,
en hann hlaut 185 stig
af 517 mögulegum.
Bilen, þá eyðir Simca 1307 9
lítrum á hundraði í bæjarkeyrslu.
Það er óhætt að setja þennan
bíl í lúxusklassa bæði hvað inn-
réttingar og aksturshæfni snertir,
en verðið á dýrustu gerðinni, eins
og ég prófaði, er þó ekki nema 1.9
milljón, sem manni finnst ekki
mikið miðað við marga aðra bíla.
Otkoman á þessum bíl er sú, að
ég varð alveg stórhrifinn, því þessi
bíll hefur svo ótrúlega margt sér til
ágætis.