Vikan - 23.09.1976, Blaðsíða 40
HVÍTUR OG SÍÐUR KJÓLL.
Sæll og blessaður draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir
mig draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu,
hann er svo skýr í huga mínum. Hann er
svona:
Ég var að fara í búðir með systur minni og
ætlaði skipta á kjól, sem ég var með og
fannst ég ætti. Hann var hvítur og síður og
með gyllingu neðst, en hálsmálið og
ermarnar úr mjúku efni. Ég vildi fá einu
númeri stærra, en systir mín fann bara
stutta Ijóta kjóla. Ég sagði, að ef ég fengi
ekki einu númeri stærra, þá vildi ég bara
eiga þennan, hann væri svo fallegur. Svo
fór ég að hugsa um, að þetta væri nú
fallegur brúðarkjóll, og ég vildi alls ekki
skipta á honum. Svo vaknaði ég og mundi
þetta svo vel, og ég ákvað að leita til þín og
vona, að þú ráðir drauminn fyrir mig. Þakka
svo fyrir allt gott, sem þið eruð með.
Lilja.
Hvít og þröng föt í draumi boða sorg og
sjúkdóma. Blessuð sendu mér annan
huggu/egri fljótlega.
ALLTAF SAMI MAÐURINN.
Mig langar að vita, hvort þú getur ekki
hjálpað mér, ég hugsa ekki um annað en
fyrir hverju þetta sé. Mig dreymir oft mikið
og dreymir fyrir því, sem gerist. Mig er alltaf
að dreyma sama karlmanninn, og svo sé ég
hann daginn eða næsta dag. Ég þekki
manninn ekkert, ég hef reyndar talað við
hann, en ekki mikið. Ég rekst oft á hann á
dansstað. Nafn hans erfyrir góðu en það er
misjafnt, hvort draumarnir eru fyrir góðu
eða vondu. Og nú langar mig til að spyrja:
Á ég eftir að kynnast honum eitthvað? Eða
á eitthvað eftir að koma fyrir hann eða mig?
Eða er það ekki fyrir neinu sérstöku að
dreyma sama manninn mjög oft? Með
fyrirfram þökk.
ein í vanda.
Ekki held ég, að hér sé neitt dularfullt á
seyði, heldur þykir mér /ík/egt, að þú hugsir
kannski meira um þennan mann en þú vilt
vera láta. Sé nafn hans fyrir góðu, eins og
þú segir, er ágætt fyrir þig að vita af honum
í draumum þínum, hvað svo sem þeir
snúast um að öðru /eyti.
FJALLGANGA OG FIÐLA.
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða eftirfarandi
draum fyrir mig:
Mér fannst ég vera ófrísk, en ég gat með
engu móti gert mér grein fyrir því, hver var
faðirinn. Mér fannst meira að segja að ég
hefði ekki komiö nálægt neinum karlmanni.
Svo hitti ég einn vin minn (við erum mjög
góðir vinir), og við ákváðum að fara í
fjallgöngu. Ég var komin langt á leið og var
því heldur þung á mér. Við löbbuðum upp
stórt fjall, þetta fjall var allt úr sandi, svo
það var erfitt að komast upp það. Svo
vorum við alveg að komast upp á topp, þá
fann ég fiðlu og þyrjaði að spila á hana (ég
hef aldrei séð fiðlu berum augum), en þá
hrasaði ég og rann á rassinum alla leið
niður, og þá fannst mér, eins og ég væri
stödd í fjöru. Þá henti vinur minn reipi til
mín og ætlaði að reyna að draga mig upp,
en ég var svo þung, að það þýddi ekkert.
Svo ég varð bara að dúsa þarna það sem
eftir var. Þá kom hjúkrunarkona, og hún
skammaði mig mikið fyrir að hafa farið að
spila á þessa bölvaða fiðlu. Og þá vaknaði
ég-
Jæja, ég vona, að þú getir ráðið þennan
draum fyrir mig. Með fyrirfram þökk.
O.S.
Þú átt eftir að eiga mikið saman við vin
þinn að sæ/da, og það munu sannar/ega
skiptast á skin og skúrir hjá ykkur.
MINNISVARÐAR OG MESSA.
Kæri draumráðandi!
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en datt í
hug segja þér frá nokkuð merkilegum
draumi, að mér finnst.
Mig dreymdi, að ég, ásamt fjölskyldu
minni, átti að fá húsnæði á kirkjustað, sem
við skulum nefna Á. Þar var í draumnum
nýtt hús í byggingu (þar er í rauninni aðeins
fárra ára gamalt hús), og var það ekki nema
hálfbyggt, en þó var þúið aö búa þarna. Ég
skoðaði allt húsið, sem var mjög stórt, en
alls staðar hálfklárað eða varla þaö. Þarna
voru margar tækninýjungar og tæknilegar
geymslur fyrir búvélar.
Svo fór ég að skoöa mig um úti og fór
þangaö, sem gamla húsið var, en gamli
kirkjugarðurinn er þar beint niður undan. Ég
sá lítið af garðinum, nema í norðaustur-
horninu voru minnisvarðar tveir, annar
mjög stór og blómum prýddur, mig minnir
rauðum rósum, en yfir þessum minnisvarða
var glerkúpull til hlífðar. Hinn var minni, en
samt nokkuð stór og hvítur og minna
blómskreyttur.
Ég ætlaði að athuga þetta betur, en
heyrði þá eins og verið væri að messa og
tók að hlusta eftir því. Þá var verið að gifta,
að mér fannst úti í lægð beint fyrir neðan
kirkjugarðinn, og fannst mér þá komið
hálfgert myrkur, svo að ég greindi ekki,
hvaða fólk var þarna, en ég sá, að
mannfjöldi var mikill, og ég sá brúðhjón og
prest í hempu, því ég sá hvíta kragann, en
allir, sem þarna voru, voru svartklæddir,
nema það var lítils háttar hvítt í fötum
brúðarinnar. Mér fannst ég ekki eiga að
vera þarna, en mega hlusta, svo ég var
þarna í leyni og heyrði lítið, nema að
brúðhjónin voru gefin saman. Mig langaði
mikið til að vita, hver þau væru, en komst
ekki að því, nema að þau væru frá stað,
sem við köllum H.
Þá sneri ég mér að húsinu, mér fannst
það vera svo stórt, að hægt væri að hafa
þarna góðgerðarstarfsemi fyrir börn, og ég
sneri mér að því verkefni. Þarna fékk
aðsetur læknir, sem við skulum kalla D,
ásamt hjúkrunarkonu, sem ég man ekki
hver var, en þau störfuðu þarna að
ákveðnum lækningum, sem mér fannst vera
gerðar með því að skera hér og þar. Ég man
til dæmis eftir einu barni meö stóran skurð á
höföinu, en það blæddi ekkert úr þessum
skurðum. Síðan tók ég við þessum börnum
og hafði ofan af fyrir þeim, mest spilaði ég á
plötuspilara ýmsa músík fyrir þau, og svo
þurfti ég að gæta þess, að þau lentu ekki
þarna í pyttum eða annarri hættu, sem
þarna var fyrir hendi. Þetta var mjög erfitt
verk og ábyrgðarmikið, en tókst samt.
Svo þakka ég fyrir ráðningu, sem ég
vona, að ég fái.
Anna.
O
Því miður boðar þessi draumur allur
erfiöleika í sambandi við veikindi, sem þó
tekst að sigrast á að /okum. fíétt er að taka
fram, að það er fyrir langllfi að flytja í stór
og góð húsakynni, og nafn læknisins boðar
ekki nema gott eitt, og þetta hvort tveggja
dregur mjög úr hinum slæmutáknum, sem'
annars eru svo áberandi I draumi þínum.
MIG BREYMEU
40 VIKAN 39. TBL.