Vikan - 23.09.1976, Side 14
Bitbein
Tværaf frægustu konum heims
berjast með kjafti og klóm um
ríkan og myndarlegan 47 ára
gamlan diplómat. Það eru þær
Elizabeth Taylor og Jaqueline
Onassis — önnur kvikmyndaleik-
kona, hin ekkja tveggja manna,
annars bandaríkjaforseta, hins for-
ríks grísks skipakóngs.
Bitbeinið er fyrrum tengdasonur
sjahsins af Persíu. Sjahinn sá veit
ekki aura sinna tal, eins og margir
þar eystra, en tengdasonurinn
heitir Ardeshir Zahedi og var eitt
sinn sendiherra irans í Washing-
ton.
Sá hefur stundað það nú um
sinn að bjóða þeim út með sér
Jackie og Liz, einni í einu, að
borða á ríkmannlegum veitinga-
stöðum, þar sem hann hefur
dansað við þær fram á rauða nótt.
Báðar hafa þær fengið senda
risastóra rósavendi, og ekki nóg
með það, heldur hefur blóma-
sendillinn einnig haft meðferðis
stóran skammt af heimsins besta
kavíar í listasmíðuðum postulíns-
krukkum, allt frá sendiherranum
fyrrverandi.
Á krukkulokin eru málaðar eftir-
líkingar af frægu listaverki frá
átjándu öld, sem sýnir tvo sam-
biðla stara hvor á annan og
guðinn Amor glottandi að öllum
saman.
Millum Zahedi og sjahsins ríkir
góð vinátta þrátt fyrir skilnaöinn.
Zahedi er þekktur fyrir auðæfi sin
og glæsilegar veislurnar, sem hann
heldur auðmönnum og frægu fólki
14 VIKAN 39. TBL.
SAGT FRÁ SENDIHERRANUM, SEM VEFUR
EFTIRSÓTTUSTU KONUM HEIMS UM FINGUR SÉR.
Hvor þeirra hreppir að iokum fyrrum
tengdason sjahsins af Persíu —
Liz Tayior eða Jackie Onassis?
Samkvæmisfó/k í Washington brýtur
gjarnan hei/ann um þetta um
þessar mundir, en enn er ekkert
hægt að segja hvað verður,
og enginn þorir að veðja á aðra
hvora þeirra.
Jackiar og Liz
Washingtonborgar og gestir hans
eru óþreyttir við að slúðra um
daður fyrrverandi tengdasonar
sjahsins við þær Liz og Jackie.
BÁÐAR VILJA ÞÆR GIFTA SIG.
Sem dæmi má nefna, að hann
fylgdi Liz, þegar verið var að frum-
sýna nýjustu myndina, sem hún
lék í ,,The Bluebird", og í sam-
kvæminu, sem haldið var af því
tilefni, mátti sjá þau dansa saman,
svo að ekki gekk hnífur á milli
þeirra. Þegar því var lokið bauð
hann henni með sér í flugtúr til
Teheran með Air Iran flugfélag-
inu, hvar hann kynnti hana fyrir
sjahinum og keisaraynjunni Farah.
Þetta þýddi þó ekki, að hann hætti
að sinna Jackie, síður en svo.
Diplómatinn lét sig ekki muna um
minna en fljúga til New York bara
til þess eins að fara út með henni
kvöld eitt, og Jackie hefur lýst því
yfir, að hún muni hunsa heim- eða
útboð hvers sem er, hvenær sem
Zahedi vill heiðra hana með
nærveru sinni.
Vinir, sem þekkja konurnar
báðar, halda því fram, að hvorug
þeirra hefði neitt á móti því að
giftast þessum fjárlúsuga persa.
Hann á völina. En einn af ættingj-
um Zahedis lét hafa það eftir sér í
veislu i sendiráðinu í Lundúnum,
að Zahedi karlinn væri dæmigerð-
ur glaumgosi og áreiðanlega
ekkert á þeim buxunum að gifta
sig í bráð.
HANN TÖFRAR ALLAR KONuT
UPP ÚR SKÓNUM.
— Hann kemur hverri konu,
sem hann býður út með sér, til að
halda, að hún sé eina konan í lífi
hans. Þær halda því statt og stöð
ugt fram, að hann sjái ekki sólina
fyrir þeim. Ekki er þó svo að skilja,
að hann segi þeim þetta berum
orðum, neei, til þess er hann allt
of klókur. Það er sko alveg áreið-
anlegt! Hann gefur það bara til
kynna með því að stara djúpt í
augun á þeim, meðan hann talar
við þær um allt og ekkert.
— Aristoteles Onassis hafði yfir
sömu hæfileikum að ráða, og það
má heita furðulegt, að Jackie hafi
enn ekki gert sér þetta Ijóst. Ég
hef séð hann önnum kafinn við
þessa iðju sína, og það segi ég
satt, að ég öfunda hann. Hann
getur töfrað hvern sem er, og það
eitt lýsir einna best töfrum hans,
að þrátt fyrir það að hann gerði
dóttur sjahsins afar óhamingju-
sama og skildi við hana, eru hann
og sjahinn bestu vinir eftir sem
áðui.
— Hans lif og yndi er að
skemmta sér með fögrum,
skemmtilegum og frægum kon-
um, og hann sækist eftir því
framar öllu að vera miðpunktur
alls.
— Þegar hann er í Lundúnum
flýtur kavíarinn og vínið út um öll
borð í veislum hans, og hann
dregur aðalsdömurnar á tálar
hverja á fætur annarri. Margar
þeirra hafa haldið, að þær væru nú
loks búnar að klófesta hann, og
margar hafa verið farnar að heyra
óminn af kirkjuklukkunum í
fjarska. Já, sagan segir, að til séu
þeir eiginmenn, sem með glöðu
geði hefðu reytt fjöður úr hatti
sínum til að koma honum aftur
heim til Teheran — og það á allt
annan hátt en í þægilegu flugvél-
aisæti.
— Hvað um það, ekki veröur
það af Zahedi skafið, að hann er
, sjentilmaður". Hann hefur aldrei
gefið neinum ástæðu til að halda
þvi fram, að hann kæmi ekki fram
af fyllstu kurteisi.
BÁt:AR ERU pÆR
SANNFÆRÐAR UM AÐ EIGA
ÁSr HANS EINAR.
Nú er það svo, að bæði Jackie
Onassis og Liz Taylor eru sann-
færðar um, að hann elski aðeins
sig. Einmitt það er dæmigert fyrir
raunverulegan Don Juan. Hann
lifir sig inn í hlutverkið og skilar því
alltaf n<3ð mestu prýði.
En víst er, að þær eiga báðar
eftir að verða fyrir vonbrigðum, ef
þær halda, að þær geti komið
honum með sér upp að altarinu
eins auöveldlega og að drekka
vatn. Þegar þar að kemur er
fullvíst, að þær eiga eftir að
komast að því, að hann er afar
önnum kafinn maður — eins og
svo margir forverar hans. Án þess
að þær viti hvaðan á þær stendur
veðrið, mun hann smjúga úr
greipum þeirra í fang annarrar
konu.
*