Vikan - 23.09.1976, Qupperneq 23
,,í kvöld, þegar þú varst í
burtu,” sagði hún, ,,lét Jiri ein-
hvern hringja í mig.”
,,Ég veit það. Og ef ég hefði verið
við, hefðu þeir hætt við simtalið og
reynt aftur seinna. Aftur og aftur,
þangað til þeir hefðu hitt á þig
eina.”
„Vissirðu það?” Þarna var stór
munur á David og Jiri. Ef Jiri hefði
vitað um svona simtal, hefði hann
beðið eins og David þangað til hún
bryddaði upp á því sjálf. En hann
hefði aldrei játað, að hann hefði
vitað það allan tímann. Hann hefði
leynt því til þess að geta notað það
gegn henni seinna.
„Þeir eru útsmognir þessir þorp-
arar. Fyrirgefðu, en ég er allur á
nálum þessa stundina. Fjandinn
hirði það, að ég láti reka mig á
flótta. Þeir ógnuðu þér auðvitað.”
„Nei, þeir voru mjög vingjarn-
legir.”
„Haaa?” Hann var næstum því
kominn út af vegirium, en rétti
bílinn af og ljósin lýstu aftur auðan,
myrkan veginn. „Og þess vegna
varstu hrædd?” Hún var þá ekki
eins mikill einfeldningur og hann
hafði haldið, þegar hann var sem
lengst niðri.
„Já, að sumu leyti. En fyrst og
fremst vegna þess, hversu auðveld-
lega þeim tókst að hafa upp á
okkur. Og við sem fórum svo
gætilega.”
„Þeir ætluðust til að þú drægir
einmitt þessa áiyktun. Mundu það,
að Jiri var sérfræðingur í áróðri,
áður en hann var færður yfir í rusla-
deildina. Og hvað er áróður? Það er
að fá einhvem á sitt band.”
„Þeim tókst næstum þvi að
sannfæra mig.” Hún rétti höndina
út í myrkrið og snerti handlegg hans
sem snöggvast. „Þeir kváðust hafa
áhyggjur vegna mín. Þess vegna
myndu þeir veita mér eftirför, svo
að ég gæti verið örugg um mig.”
„örugg fyrir hverjum, ef ég má
spyrja?”
„Krieger. Þú ert aðeins peð,
segja þeir, og einnig Jo. Krieger er
sá, sem ekki er treystandi.”
„Treystandi fyrir hverju?”
„Að koma mér heilu og höldnu á
áfangastað. Hann vill ekki að ég
komist á fund föður mins og fái
honum skilaboð Jiris.”
Andartak leit David af veginum
og starði undrandi á hana. Hann
hugsaði um vegabréfið hennar og
það hvernig henni hafði tekist að
flýja. Hvergi i Tékkóslóvakíu
mættu henni nokkur einustu vand-
ræði. „Gerðuð þið Jiri Hrádek
samning ykkar í milli?”
„Ekki samning,” sagði hún
fljótt. „Aðeins samkomulag. Hann
gaf mér eftir skilnað og útvegaði
mér vegabréfið. Og hann lofaði að
leyna flótta mínum eins lengi og
unnt væri. Ég átti i staðinn að biðja
föður minn að snúa aftur til
Tékkóslóvakiu. Það var allt og
sumt.”
„Áttirðu ekki að telja föður þinn
á að snúa aftur?”
„Nei, aðeins biðja hann um það.
Þú verður að trúa mér David.”
Framhald í næsta blaði.
Nýjasta nýtt frá París
Simca 1100
LX
Nýjasta nýtt frá París SIMCA 1100 LX
Þetta er nýjasta gerðin af hinum vinsælu Simca 1100 bílum
frá Chrysler France. Allur frágangur er samkvæmt nýjustu
frönsku tískunni. Simca 1100 GLS og Simca 1100 LE til
afgreiðslu strax. Hafið samband við okkur. Sími 84366 - 84491
Ifökull hf.
ÁRMÚLA 36,REYKJAVÍK
39. TBL. V/IKAN 23