Vikan - 25.08.1977, Blaðsíða 2
vikan
34. tbl. 39. árg. 25. ágúst 1977
Verö kr. 400
GREINAR:
2 Vikan kynnir verksmiðjufram-
leidd hús.
VIÐTÖL:
12 Erum endanlega komin heim. Viðtal við Harald Guðbergs- son i Höfnum.
44 í Reykjavík ertu bara eitt lítið núll. Viðtal við Margréti Jóhannesdótturá Höfn i Horna- firði.
SÖGUR:
18 Dóttir milljónamæringsins. Áttundi hluti framhaldssögu eftir Lawrence G. Blockman.
38 Dauðir tala ekki. Þrettándi híuti framhaldssögu eftir John Le Carré.
• •' -
46 Ðýrkeyptreynsla. Smásaga eft ■ ir George Goodchild.
FASTIR ÞÆTTIR:
9 1 næstu Viku.
10 Póstur.
16 Mest um fólk.
22 Hvað er á spólunum?
23 Heilabrot Vikunnar.
25 My ndasögublaðið.
35 Tækni fyrir alla
40 Stjörnuspá.
43 Mig dreymdi.
49 Poppfræðiritið: Sweet.
53 Matieiðslubók Vikunnar.
Vikan kynnir
verksmiöju-
framleidd hús
Sífellt færist nú í aukana að
hús séu framleidd í
verksmiðjum, ýmist að hluta
til eða í heild, úr timbri eða
steini. Allmargar
húsaverksmiðjur eru
starfræktar hér á landi og
einnig eru flutt inn hús af
þessu tagi, en sumarhús eru
líka hluti framleiðslunnar.
Svonefnd einingahús
virðast hafa unnið sér fastan
sess í
byggingakapphlaupinu og
hlotið góðar viðtökur hjá
almenningi. Því er haldið
fram, að það sé mun
hagkvæmara að byggja á
þennan hátt, og auk þess
mun hentugra t.d. sé
byggingartíminn ekki háður
veðurfari. Timburhús hafa
líka vissan „sjarma" finnst
mörgum,og því eðlilegt að
framleiðsla þeirra hljóti
góðar viðtökur.
Vikan leitaði upplýsinga hjá
framleiðendum slíkra húsa
og er ætlunin að kynna
framleiðslu nokkurra þeirra
hér. Auðvitað er aðeins
stiklað á stóru, en reynt að
gefa haldgóðar upplýsingar
svo sem um verð og fleira.
Það skal tekið fram, að
verðlag er miðað við júlí
1977, nema annað sé tekið
fram.
i
hefur umboð fyrir dönsk timburhús,
sem heita Ronbo. Þau hafa ekki verið
flutt hingað til lands enn sem komið
er, en áætlað verð á þeim fullfrá-
gengnum, með öllum innréttingum og
hreinlætistækum, er sem hér segir:
90 m2 hús kr. 5,4 millj.
111 m2 hús kr. 6,0 millj.