Vikan - 25.08.1977, Blaðsíða 42
þessu stigi málsins. Daginn eftir að
frú Fennan gerði játningu sína flaug
Mundt úr landi og notaði til þess
falskt vegabréf. Yfirvöld á flugvell-
inum veittu honum enga sérstaka
athygli, en eftir á þekkti ein flug-
freyjan hann á lýsingu, sem af
honum var gefin. í öðru lagi var
nafn og símanúmer Dieters Frey
skráð í vasabók Fennans en það er
vitaskuld ein mesta skyssa, sem
nokkur njósnari getur gert.
Það er erfitt að skilja, hvers
vegna Mundt, eftir að hafa myrt
Adam Scarr, beið í þrjár vikur í
Englandi. En þó er ennþá erfiðara
að skilja starfsemi Fennans, eins og
henni hafði verið lýst af konu hans
og svo hitt, að þau mál, sem hann
tók heim með sér úr skjalageymsl-
unni, voru að mestu algjörlega
þýðingarlaus. Endurmat á stað-
reyndunum leiddu til þessarar
niðurstöðu: Eina sönnunin fyrir
því, að Fennan hafi verið njósnai
kóm frá konu hans. Ef hún hafði
skýrt rétt frá staðreyndum, hvers
vegna höfðu þeir Mundt og Frey þá
ekki rutt henni úr vegi likt og
öðrum, sem bjuggu yfir hættulegri
vitneskju varðandi starfsemi
þeirra?
En væri það á hinn bóginn ekki
líka hugsanlegt, að hún hafi sjálf
verið njósnari?
Þetta myndi skýra daginn, sem
Mundt valdi til brottfararinnar.
Hann fór um leið og frú Fennan
hafði sannfært hann um, að ég hefði
tekið hina snjöllu játningu hennar
gilda. Það væri einnig skýring á
því, hvers vegna Fennan hafði
skrifað nafn Dieters i vasabók sína:
Frey var einungis maður, sem hann
hafði hitt á skíðaferðalgi og sem
kom stöku sinnum i heimsókn til
þeirra í Walliston. Það myndi
einnig varpa ljósi á það, hvers
vegna Fennan tók eingöngu svona
lítilvæg mál heim með sér. Úr því
að Fennan tók einungis smámál
heim með sér einmitt þegar hann
hafði greiðan aðgang að þýðingar-
miklum skjölum, þá gat skýringin
aðeins verið ein: Hann var farinn að
gruna konu sina. Það væri einnig
skýringin á því, að hann skyldi hafa
boðið mér til hádegisverðar, daginn
eftir að við höfðum ræðst við.
Fennan hafði ákveðið að skýra mér
frá grun sínum og hafði í því skyni
tekið sér frí þennan dag, en raunar
án þess að segja konu sinni frá því.
í ljósi þessa myndi nafnlausa bréfið
einnig vera skiljanlegra. í því hafði
Fennan ókært sjálfan sig til þess að
komast í samband við okkur, en
síðan ætlað að fletta ofan af konu
sinni.
Ef við höldum ófram röksemda -
færslunni, þá var það merkilegt, að
hvað snerti tæknibrögð var það frú
Fennan, sem bjó yfir dugnaði og
hæfni. Aðferðir hennar og Mundts
minntu á þær, sem Frey hafði notað
í stríðinu. Þessi varaóætlun að
póstleggja fatageymslumiðann, ef
þau næðu ekki að hittast, var
einkennandi fyrir nákvæm vinnu-
brögð hans. Kunnáttusamleg við-
brögð frú Fennan voru varla í
samræmi við þá fullyrðingu hennar,
að hún hafi tekið þátt í sviksemi
eiginmanns síns á móti eigin vilja.
Það var ekki nema eðlilegt, að
grunur félli á frú Fennan um
njósnir, en þó var engin ástæða til
þess að ætla að frásögn hennar af
því, sem gerðist kvöldið er maður
hennar var myrtur, hafi verið
ósönn. Ef hún hefði vitað um
fyrirætlun Mundts um að myrða
eiginmann hennar hefði hún ekki
farið með fiðlukassann í leikhúsið,
né hefði hún póstlagt fatageymslu-
miðann.
Engin leið virtist að sanna sekt
hennar, nema sjó til þess að hún og
stjómandi hennar hittust. í stríðinu
hafði Frey fundið upp snjallt
dulmálskerfi og notaðist i þvi
sambandi við ljósmyndir og póst-
kort. í myndinni ó póstkortinu
fólust skilaboðin. Trúarleg mynd,
svo sem af heilagri guðsmóður eða
kirkju, þýddi að fundum yrði að
koma á hið bráðasta. Sem svar átti
móttakandinn að senda bréf og
gæta þess að dagsetja það. Stefnu-
mótið átti síðan að fara fram á
fyrirfram ákveðnum tima og stað
nákvæmlega fimm dögum síðar.
Vinnubrögð Freys almennt virt-
ust lítið hafa breyst siðan á stríðs-
árunum. Það var þvi ekki svo
fráleitt að ætla, að hann hafi haldið
í þetta fyrirkomulag, sem þegar ó
allt var litið, þyrfti einungis sjaldan
að gripa til. ! trausti þess póstlagi
ég því kort til frú Fennan með mynd
af kirkju framan á.
Framhald (naesta blaði.
Vel húið baðherbergi
fráBYKO
Það fæst bókstaflega allt í BYKO, a. m. k. allar bygg-
ingavörur sem nöfnum tjáir að nefna.
Við gætum t. d. nefnt hreinlætistæki, blöndunartæki, veggflís-
ar. Það fæst líka í BYKO.
Hreinlætistækin eru af ýmsum gerðum í mörgum litum og úr-
valið af blöndunartækjum og keramikflísum er satt að segja
ótrúlega mikið.
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yóur óhætt
BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO
KÓPAVOGS SF
NÝBÝIAVEGI 8 SIMI:41000 'JLr
42 VIKAN 34. TBL.