Vikan - 25.08.1977, Page 40
STJÖRMJSPA
llnilurinn 2l.mjr\ 20. J iril
Þú átt í vændum
skemmtilega daga í
góðum vinahópi. Þú
ferð í ferðalag til
staðar, sem þig hef-
ur lengi langað til að
koma á, en ekki
orðið úr fyrr. Þó er
hætt við að þú verðir
fyrir vonbrigðum.
kr. lihinii 22. júni 2.Vjú!í
Þessi vika verður
óvenju viðburarík
og skemmtileg. Þú
kynnist persónu,
sem vekur hjá þér
andúð í fyrstu, en
mun síðar eiga eftir
að reynast góður
vinur þinn.
\uiiin 2!.\L'pi. 2\»kl.
Þú ert óvenju svart-
sýnn þessa dagana,
en í rauninni hefurðu
enga ástæðu til þess.
Láttu ekki skapið
bitna á fjölskyld-
unni, gerðu upp við
þig, hvað það er sem
veldur þessu hugar-
angri.
Viuiirt 21. ipriI 2l.m«ii
F j árhagsörðugleik -
ar steðja að þér um
þessar mundir og þú
ert heldur svartsýnn
á tilveruna. Þetta
mun þó aðeins vera
tímabundið ástand,
og með þrautseigju
og elju ætti þér að
takast þetta.
Ttihurjrnir 22.mai 2l.júni
Alvarlegt deilumál
mun rísa upp milli
þín og eins vinar
þíns, og verðurðu að
sætta þig við að bíða
lægri hlut. Vertu
ekki of staðfastur á
skoðunum þínum, of
mikil ákveðni gæti
aðeins gert illt verra.
I jmiiO 24. júli 24. .ai>ú«I
I vændum eru mikl-
ar breytingar til hins
betra, hjá þeim, sem
eru fæddir í ljóns-
merkinu. Þér bjóð-
ast óvænt tækifæri
til að auka fjárhag
þinn og skaltu ekki
hugsa þig um tvisv-
ar.
Sporúilrckinn 24.okl. 2.4.nó%.
Þér gefst kærkomið
tækifæri til að jafna
leiðindamál, sem
kom upp milli þín og
kunningja þinna
ekki alls fyrir löngu.
nú getur þú sýnt það
svart á hvítu, hver
hafði rétt fyrir sér.
SicinCcilin 22.dcs. 20. jan.
Ástamálin blómstra •
hjá þeim, sem eru
fæddir í fyrri hluta
steingeitarmerkis-
ins og allt virðist
ætla að ganga þeim í
haginn. — öllu
steingeitarfólki er þó
hætt við of mikilli
eigingimi
\alnshcrinn 2l.jan. I*>.fchi.
Gamall maður kem-
ur þér á óvart með
einkennilegu uppá-
tæki. Þú skalt láta
sem það fái ekki á
þig og reyna að vera
ekki svona óskap-
lega tilfinninga-
næmur.
Nú er kominn tími til
að framkvæma hlut-
ina. Láttu ekki áætl-
anir þínar detta upp
fyrir af einskærri
leti. Hrintu málun-
um í framkvæmd
strax, að hika er
sama og tapa.
HogmaAurinn 24.nós. 2l.dcs.
Á vinnustað kemur
upp rigur milli þín
og undirmanns þíns.
Þú hefur öll tromp á
hendi þér, svo þú
skalt leita réttar þíns
i þvi máli. Láttu ekki
athugasemdir frá ó-
vinveittum manni
hafa áhrif á þig.
liskarnir 20.íchr. 20.mars
Heldur dauflegt er
yfir umhverfi þínu
þessa vikuna. Þú ert
heldur eirðarlaus og
finnst þér ofaukið á
flestum stöðum.
Hristu af þér þessa
eymd, og líttu á
björtu hliðar lífsins.
1. Kl. 7.55 kvöldið sem Fennan
dó hafði hann hringt í miðstöð í
Walliston og beðið um að láta vekja
sig kl. 8.30 næsta morgun.
2. Fennan hafði lagað kakó handa
sér stuttu áður en hann lést, en ekki
drukkið það.
3. Svo virðist sem hann hefði
skotið sig í forstofunni. Bréfið
fannst hjá likinu.
4. Það var hálfgert ósamræmi í
því, að hann skyldi vélrita síðasta
bréf sitt, þar sem hann notaði
sjaldan ritvél. Hitt var þó öllu
furðulegra, að hann skyldi hafa haft
fyrir því að fara ofan stigann til
þess að skjóta sig.
5. Daginn sem hann lést póst-
lagði hann bref til mín, en í þvi bað
hann mig um að snæða með sér
hádegisverð hjá Marlow næsta dag.
6. Seinna kom það einnig fram,
að Fennan hafði beðið um eins dags
frí miðvikudaginn 4. janúar. Það
var ljóst, að hann hafði ekki minnst
á þetta við konuna sína.
7. Rannsókn sýndi, að Fennan
hafði vélritað sjálfsmorðsbréfið á
sína eigin ritvél, en i því komu fram
nokkur sérkenni, sem höfðu einnig
fundist í nafnlausa bréfinu. Ná-
kvæmari rannsókn sýndi hins
vegar, að brefin tvö höfðu ekki verið
vélrituð af sömu manneskjunni,
þótt þau hafi verið skrifuð á sömu
ritvélina.
Frú Fennan hafði verið í leikhús-
inu kvöldið, sem eiginmaður hennar
lést. Hún var beðin um að gefa
skýringu á símahringingunni kl.
8.30, en hún hafði ranglega sagst
hafa beðið um að láta hringja í sig.
Konan á miðstöð var viss um, að frá
Fennan hafði ekki beðið um að láta
vekja sig. Frú Fennan hélt því
fram, að eiginmaður hennar hefði
verið taugaóstyrkur og þunglyndur
eftir viðtalið við hann og að það
væri skýringin á sjálfsmorðinu.
Eftir að hafa verið í heimsókn hjá
frú Fennan eftirmiðdaginn þann 4.
janúar, fór ég heim til mín í
Kensington. Ég þóttist sjá manni
bregða fyrir inni í húsinu og hringdi
bjöllunni. Maður opnaði dymar, en
seinna hefur komið í ljós, að hann
var starfsmaður Austur- þýsku
leyniþjónustunnar. Hann bauð mér
inn fyrir, en ég hafnaði boðinu og
snéri aftur að bílnum mínum. Á
leiðinni lagði ég á minnið númerin á
fáeinum bifreiðum, sem hafði verið
lagt i götunni.
Þetta sama kvöld heimsótti ég
litla bílageymslu í Battersea til þess
að spyrjast fyrir um einn af þessum
bílum, en hann var skráður á nafn
eiganda þessarar bilageymslu. 0-
kunnur maður réðst á mig og ég var
laminn til óbóta. Þremur vikum
seinna fannst eigandinn sjálfur,
Adam Scarr, drukknaður í Thames
nálægt Battersea Bridge. Hann
hafði verið undir áhrifum áfengis er
hann drukknaði. Likið bar þess
engin merki að ofbeldi hefði verið að
beitt, en það var vitað að maðurinn
hafði verið vínhneigður í meira lagi.
Það kom fram að Scarr hafði
undanfarin fjögur ár veitt ónafn-
greindum útlendingi afnot af bíl og
hafði þegið fyrir það állálitlegar
upphæðir. Þetta fyrirkomulag var á
haft til þess að leyna því, hver
maðurinn var, og það jafnvel fyrir
Scarr sjálfum. Hann þekkti við-
skiptavin sinn eingöngu undir
gælunafninu Blondie, og gat ekki
haft samband við hann öðruvísi en í
gegnum síma. Simanúmerið er
mikilvægt, en það var hjá austur-
þýsku Stáliðjunefndinni.
Könnuð hafði verið fjarvistar-
sönnum frú Fennan kvöldið, sem
morðið hafði verið framið, og mikil-
vægar upplýsingar kom fram í þvi
sambandi.
1. Frú Fennan var vön að fara í
Weybridgeleikhúsið tvisvar í mán-
uði, fyrsta og þriðja þriðjudag
hvers mánaðar. (Takið vel eftir, að
viðskiptavinur Adam Scarr hafði
einmitt sótt bílinn fyrsta og þriðja
þriðjudag hvers mánaðar.)
2. Hún hafði ávallt fiðlukassa
meðferðis og skildi hann eftir í fata-
geymslunni.
3. Þegar hún fór í leikhúsið sat
hún ævinlega við hliðina á sama
manninum, en útlitið á honum kom
heim og saman við lýsinguna á
manninum, sem réðst á mig og var
viðskiptavinur Scarrs. Einn af
starfsmönnum leikhússins hélt
meira að segja, að hann væri eigin-
maður frú Fennan. Hann hafði
einnig fiðlukassa meðferðis og skildi
hann líka eftir í fatageymslunni.
4. Kvöldið, sem morðið var
framið, hafði frú Fennan yfirgefið
leikhúsið snemma þ.e.a.s. eftir að
það kom í ljós, að vinur hennar
myndi ekki mæta. Fiðlukassanum
gleymdi hún hins vegar. Seint þetta
sama kvöld hringdi hún i leikhúsið
og spurði, hvort sækja mætti
fiðlukassann undireins. Hún hafði
týnt geymslumiðanum. Vinur frú
Fennan sótti fiðlukassann.
Á þessu stigi málsins kom í ljós,
að þessi náungi var starfsmaður
Austur-þýsku Stáliðjunefndarinnar
og hann hét Mundt. Aðalmaðurinn í
nefndinni var herra Dieter Frey,
samstarfsmaður okkar í striðinu.
Hann bjó yfir mjög víðtækri
reynslu. Eftir stríðið hafði hann
ráðið sig í þjónustu ríkisins á
sovéska yfirráðasvæði Þýskalands.
Það er vert að geta þess, að Frey
hafði starfað með mér í óvina-
svæðum í striðinu, og það hafði þá
sýnt sig, að hann var mjög liðtækur
og hugmyndaríkur njósnari.
Ég ákvað nú að eiga þriðja
40 VIKAN 34. TBL.