Vikan - 20.07.1978, Qupperneq 24
íslenskuferðafólki iKaupmannahöfn leiðbeint ímat: lO.grt
Froskalœri, Gazpacho oí
Stórkostlegt ævintýri er að fá
sér Miðjarðarhafsrétti á veit-
ingastofunni Papas í Kaup-
mannahöfn. Froskalœrin, kol-
krabbarnir og köld súpan flytja
með sér andrúmsloft frá Ítalíu,
Frakklandi og Spáni. Þar á ofan
gerir högun veitingahússins í
hverjum kjallaranum inn af
öðrum sitt til að ná upp léttri og
skemmtilegri stemmningu.
Dyrnar snúa út að Kolatorg-
inu nyrst í gamla latínuhverfmu.
Við gengum niður tröppur og
komum í þétt setinn kjallara.
Þaðan var okkur vísað um göng
og upp og niður tröppur innst
inn ífmmta kjallarann, þar sem
voru einu tveir auðu stólarnir í
öllu veitingahúsinu.
ALLT FULLT AF ÚTSKOTUM
OGRANGÖLUM
Papas er einmitt í kjöllurum
fmm húsa frá átjándu öld. Dyr
hafa verið höggnar á veggina
milli húsanna, og tröppurnar
stafa af því, að kjallararnir eru
ekki allir í sömu hæð. Þarna var
allt fullt af útskotum og rang-
ölum. Kertaljós á veggjum og
borðum mögnuðu andrúms-
loftið.
Aðaleigandi Papas er danski
arkitektinn Anders Dyrup, og er
þetta annað veitingahúsið hans.
Hið fyrra er Ristorante Italiano í
Fiolstræde 2, sem hann opnaði
árið 1971. Sú matstofa er
hreinnar íalskrar ættar. Papas er
hins vegar almennrar Rivieru-
ættar.
Innréttingarnar á Papas
minna á Marseilles á frönsku
Rivierunni og Genova á hinni
ítölsku. Maturinn minnir einnig
á þessar borgir, en hefur líka
þætti frá hinum spánska hluta
Rivierunnar. Upphafega átti
veitingahúsið líka að heita Café
Mediterrano.
EINSMETRA LANGIR
MATSEÐLAR
Gaman var að bera saman
Papas og St. Gertruds Kloster,
sem áður hefur verið lýst í
þessum greinafokki. Bæði veit-
ingahúsin hafa frábæran mat á
boðstólum. Bæði eru þau í kjöll-
urum frá gömlum tíma, þar sem
sérstök áhersla hefur verið lögð
á að búa til matarstemningu.
Klaustrið erfágaður staður og
dýr, sem Danir mundu kalla
„smart." Papas er hins vegar
hrár og ódýr, væntanlega
„ægte” á máli Dana. Viðskipta-
vinirnir voru líka ólíkir. í
klaustri Geirþrúðar var mest af
vel klæddu fólki á miðjum aldri.
A Papas var hins vegar mest af
ungu fólki, lítt formlega klœddu.
Við fengum matseðlana um
það bil eins metra langa og
rýndum í þá í hálfrökkrinu.
Valið var erftt, því að þar var
margt að sjá óvenjulegt, sem
okkur langaði til að prófa.
FROSKALÆRIERU
FRÁBÆR M ANNA-
MATUR
Annar forrétturinn, sem við
völdum, var Gazpacho An-
daluz. Þetta er fræg, spönsk
súpa, sem jafnan er borin fram
ísköld. Hún er byggð á söxuðum
tómötum, olífuolíu og hvítlauk.
Venjulega er líka í henni gúrka,
svartar olífur, hrár laukur,
rauður pipar, ýmislegt annað
kryddogegg.
IGISSOR
GULLRA55
Dlf B/LL KA/ANAGU l
FRANK FLETCUER
Ég vaknaði um miðnætti og sofnaði ekki 1
en um þrjú. Og ekki heyrði ég
hana gelta þá.
Jæja, Hún hefur þá ekki byrjað fyr þjófarnir
voru farnir.
24VIKAN 29. TBL.