Vikan - 24.04.1980, Qupperneq 3
Popp
Gamla kempan Bob Dylan hlaut sin
verðlaun fyrir túlkun og flutning ð
laginu Gotta serve somebody.
Töluverðrar íhaldssemi þykir gæta við
val á þeim sem útnefningu hljóta og er
frekar verið að heiðra þá sem lengi hafa
starfað í poppinu, þekktastir eru og mest
áberandi — hinum gleymt. Á þessu eru
þó sem betur fer undantekningar. Þá
eiga þeir, sem hafa övtthvað nýtt fram að
færa, sjaldnas^ upp á pallborðið hjá
dómnefnd sem með OSrum orðum er
r ’ 'i
svifasein g^gnvart nýjungum. Rokkið
sniðgengið, segja sumir og má til sanns
vegar færa þar sem það hefur síðustu
misseri verið í miklum uppgangi í
hliðstæðri mynd og það var fyrir 10-20
árum.
Víst þykir að færi fram hliðstæð
verðlaunaafhending á Bretlandseyjum
kæmu fæstir þeir sem hlutu Grámmy-
útnefningu til greina. Bretar virðast
mun opnari fyrir nýjungum og
breytingum og má i framhaldi af því
spyrja hvað sé orðið af hinni alkunnu
bresku íhaldssemi. Segja má að bresk
popptónlist hafi síðustu ár fjarlægst þá
amerisku og er af sem áður var, þegar
'vöruskipti þessara tveggja höfuðvigja
poppsins stóðu í miklum blóma.
Að vísu tilheyra Doobie bræður og
Billy Joel (hann hlaut að þessu sinni
Grammy-verðlaun sem lagahöfundur)
fekki sætustu deild bandarískrar popp-
^tónlistarj jOg þvi kannski breytinga að
vænfa'á næstu árum, þótt hægfara
verði.
Benda má á að lokum að fyrir 15 árum
eða svo sáust varla rokkhljómsveitir á
listum yfir þá flytjendur sem útnefndir
voru til Grammy-verðlauna.
Kris Kristoffarson tv. og
trompetleikarinn Herb Albert sem
vann til verðlauna fyrir best leikna
lag ársins, þ.e. lag án söngs. Það
heitir Rise.
Mest um fólk
Willy Breinholst
slær í gegn í Japan
Willy Breinholst, sem er lslending-
um að góðu kunnur fyrir skopfram-
leiðslu sína sem birst hefur reglulega á
síðum Vikunnar, tók nýverið þátt í
mikilli bókasýningu í Japan og bar
hún yfirskriftina: Húmor heimsbók-
menntanna. Þar sýndi hann allar 80
bækur sínar, sem út hafa verið gefnar,
og með þeim árangri að japanska stór-
forlagið Graph-Shaf ákvað að gefa
tvær þeirra út: I lykkelige
omstændigheder og Hej mor, hej far,
hej verden. Bækur þessar, sem fjalla
um fyrstu ár barns, reynslu þess og
upplifanir, eru nú gefnar út í milljóna-
upplögum víða um heim. Þær eru
notaðar í ítalska skólakerfinu og
austan járntjalds eru þær prentaðar á
kostnað ríkisins og dreift ókeypis til
þegnanna. Að vísu þurfti að lagfæra
ýmis smáatriði áður en hægt var að
senda bækurnar á japanskan markað,
og það voru teikningarnar sem fylgja
sögunum. Eins og þær voru, og eins og
við þekkjum þær, þá koma þær
Japönum spánskt (danskt) fyrir sjónir.
Japanirnir vildu að sjálfsögðu hafa
aðalsöguhetjurnar með skásett augu
eins og vera ber á þeim slóðum og þvl
varð úr að þarlendur teiknari var
fenginn til að myndskreyta japönsku
útgáfuna. Annars ætti Willy kallinn
vel að vita hvernig japönsk augu lita
út því að þegar hann heimsótti vini
sína i Japan fyrir skömmu birtust
myndir af honum í flestum dagblöðum
þar sem hann sást i fylgd með
Suganomiya prinsessu, dóttur
Hirohitoskeisara.
Willy leggur nú Japan að fótum sér i múnderingu þarlendra, en ekki eru augun enn
skásett.
17. tbl. Vikan 3