Vikan - 24.04.1980, Síða 6
veitingahú
FÉLAG
ÍSLENZKRA
HLJÓMLISTAR
MANNA
útvegar yður
hljóðfœraleikara
og hljómsveitir
við hverskonar
tœkifœri
Vinsamlegast
hringid í
20255
milli kl. 1 og 5
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk
Nuddað
saman
hnjám
Skútan í Hafnarfirði er hinn sómasam-
legasti matstaður í miðjum lægri verð-
kantinum. Matreiðslan er frambærileg
að sósum undanskildum, snyrti-
mennskan er i lagi og þjónustan er ósköp
vingjarnleg. Skútan stenst vel saman-
burð við hliðstæðar matstofur í Reykja-
vik.
Helsti galli staðarins eru þrengslin við
borðin. Seturnar eru of stuttar til
hnésins og of þröngt er milli borðs og
baks. Þetta getur þó komið sér vel fyrir
elskendur, sem fá tækifæri til að nudda
saman hnjánum að vild.
Þrengslin stafa þó ekki af plássleysi,
því að myndarlegt torg er á miðju gólfi.
Vandað flisagólf er undir fótum manna.
Innréttingin er næstum nákvæm stæling
Skop
Komdu nú heim Byron. Tími til að
þvo fölsku tennurnar.
hefði langað I slagsmál þá hefði ég
verið heima í kvöld.
á súlum og bitum Halta hanans en hér er
notaður trönuviður. Skreytingar eru í
fiskveiðastil.
1 hádeginu er hægt að fá súpu og rétt
dagsins, en á kvöldin gildir fastaseðillinn
einn. Hann er skynsamlega stuttur, telur
aðeins tólf rétti. Flesta þeirra er hægt að
fá í hálfum skömmtum, þannig að
upplagt er að fá sér tvo hálfa rétti og ís á
eftir og raða þannig í þriggja rétta
máltíð.
Soðið lamb
Soðið lamhakjöt var réttur dagsins I
hádeginu, þegar Vikan heimsótti Skút-
una. Kjötið var rétt soðið með örlitlum
roða, merkilega vel gert, alls ekki þurrt.
Hvitu kartöflumar voru í tæpu meðal-
lagi. Hvít hveitisósan var einkar vond.
Dósabaunir voru hóflega soðnar. Verðið
var 2.700 krónur heill skammtur og
2.300 krónur hálfur.
Körfukjúklingur
Körfukjúklingur á fastaseðlinum var
ekki góður. Hann var ofsteiktur.
Hjúpurinn var of þykkur og
brauðmylsnan var of yfirgnæfandi.
Sveppasósan úr hveiti var þykk með
skán. Frönsku kartöflurnar voru ljósar
og frambærilegar. Dósagulræturnar
voru ekki of linar. Hrásalatið var fjöl-
breytt og hafði meira að segja að geyma
ferska ávexti. Þá fylgdi ferskur tómatur,
ánægjuleg nýbreytni, svo og salatblað.
Verðið var 3.800 krónur heill skammtur
og 2.600 krónur hálfur skammtur.
Turnbauti
Turnbautinn var rétt steiktur,
semsagt hálfhrár, góð matreiðsla á góðu
hráefni. Disæt kryddsósan ofan á var
ekki við minn smekk. Þarna voru sömu
frönsku kartöflurnar, hrásalatið,
tómaturinn og salatblaðið, sem getið var
hér að ofan. Ennfremur ýmislegt úr
dósum, belgbaunir, sveppir og paprika.
Verðið var 5.600 krónur heil! skammtur
og 3920 krónur hálfur, óneitanlega
óvenjulega góðkjör.
Djúpsteiktur fiskur
Djúpsteikti fiskurinn var fersk ýsa,
sæmilegasti fiskur. Skorpan var nokkuð
hörð, en án feitibragðs. Hrisgrjónin, sem
fylgdu, voru með hinum bestu, sem ég
hef fengið hér á veitingahúsi, enda rétt
mátulega soðin. Hrásalatið var í
remúlaðisósu rheð karríbragði. Salatið
var gott, en sósan var of mikil. Frönsku
kartöflurnar voru í lagi, sem fyrr segir.
Salatblaðið var innlend, góð framleiðsla.
Kokkteilsósan var i lagi. Verðið er 2.400
krónur heill skammtur og 1.680 krónur
hálfur.
Spánarkjúklingur
Kjúklingur Spanja var aldeilis
Ijómandi góður, að engu leyti ofgerður,
hvorki í kryddi né steikingartíma, enda
meyr og bragðgóður. Um franskar
kartöflur og hrásalat hefur áður verið
rætt. Dósagrænmetið var eftir vonum,
paprika, belgbaunir ofsoðnar og dósa-
sveppir, sem ekki voru eins slepjulegir og
venja er til. Með fylgdi nánast hræðileg,
kekkjótt, brún hveitisósa, ofboðslega
þykk. Verðið var 4.600 krónur heill
skammtur og 3.220 krónur hálfur.
Skútusteik
Skútusteik hét nautavöðvi, tæplega
„medium” steiktur, rauður og blóðugur
að innan, frambærilegur matur, Krydd-
smjörið hafði lítið kryddbragð og var
fremur væmið, en alténd betra en sósur
staðarins. Áður hefur verið getið
franskra kartaflna, hrásalats, sveppa,
belgbauna, salatblaðs og papriku.
Verðið var 5.400 krónur heill skammtur
og 3.780 krónur hálfur.
Sjómannssteik
Sjómannssteik hét sérkrydduð sneið
af lambahrygg, einkar hófsamlega steikt
og rauð að innan, sannarlega
herramannsmatur. I kryddinu virtist
einkum vera piparkrydd og sítróna. Því
miður var helmingur sneiðarinnar fita,
en hana mátti skera frá. Með fylgdu
skemmtileg karríhrísgrjón með svipuðu
kryddi og í kjötinu. Einnig vond brún
hveitisósa með þremur sveppasneiðum.
Ennfremur áðurnefndar franskar
kartöflur, hrásalat, paprika og salatblað.
Verðið var 4.200 krónur heill skammtur
og 2.940 krónur hálfur.
Kaffi
Kaffið eftir matinn var vel þolanlegt,
en fremur þunnt.
Meðalverð á súpum og hálfum réttum
var 2.400 krónur á Skútunni, á heilum
aðalréttum 4.100 krónur. Þetta er svona
eins og meðalverð á hliðstæðum grill-
stöðum í Reykjavik. Kaffi eftir mat
6 Vikan 17. tbl,