Vikan - 24.04.1980, Blaðsíða 9
Stúlka nr. 2. HILDIGUNNUR HILMARSDÓTTIR:
Spítalalíf og
íþróttir
Hildigunnur Hilmarsdóttir er 17
ára og vinnur sem stendur á Land-
spítalanum. Reyndar á hún að
vera í Fjölbrautaskó/anum í
Breiðholti, var þar í haust en
ákvað að hvíla sig eina önn og fá
sér vinnu svona til tilbreytingar.
Strax næsta haust œtlar hún að
taka upp þráðinn að nýju og
setjast hress og kát á skólabekk.
Vlkan, HljómplötuútgáEan, Feröa-
skrifstofan Úrval kynna:
FULLTRÚI UNGU
KYNSLÓÐARINNAR
1980
8 stúlkur taka þátt í keppninni —
krýning í lok maí — slgurvegarinn
tekur þátt í alheimskeppninni á
Filippseyjum í haust — Ejöldi glæsi-
legra verölauna aó auki.
Aðaláhugamál Hildigunnar eru
íþróttir og þá sérstaklega körfu-
bolti. Núna leikur hún með
meistaraflokki ÍR og munaði bara
engu að hún yrði íslandsmeistari á
síðasta ári, nema hvað KR-ingar,
sem leika áttu úrslitaleikinn á móti
Hildigunni og félögum hennar,
mættu ekki til leiks. En hvað sem
því /íður þá varð Hildigunnur
íslandsmeistari 3 ár í röð meðan
hún lék í öðrum flokki.
Hildigunnur er staðráðin í því
að gerast íþróttakennari, læra til
þess hér heima, en bætir svo við
að ekki vœri verra að mennta sig
enn betur í faginu erlendis og þá
helst í Bandaríkjunum.
Foreldrar HUdigunnar eru
Rannveig Laxdal og Hilmar
Ingólfsson.