Vikan - 24.04.1980, Blaðsíða 16
Ferðalög
Elias skyggnist um fró mastrinu i Crinan skipaskurðinum, Skotlandi.
Bonný ó siglingu.
16 Vikan 17. tbl.
Belle lle, Frakklandi.
— Við vorum þrjá daga í Brest en
héldum þaðan til Bordeaux. Á leiðinni
tókst svo illa til að við fengum band í
skrúfuna með þeim afleiðingum að vélin
stöðvaðist. Þetta kom sér afar illa þar
sem við vorum inni á þröngum firði og
rak okkur fljótt að landi. Var þá ekki um
annað að ræða en þrifa upp segl og
krussa frá aftur. Við komum svo
akkerinu út og gátum sofið áhyggjulaus
til morguns, en þá var auðvitað
vandamálið með bandið í skrúfunni jafn-
óleyst og áður. Við vissum að kafari yrði
okkur dýr og ákváðum þvi að bjarga
þessu sjálf. Við grófum upp gömul sund-
gleraugu og skipperinn dýfði sér
hriðskjálfandi í iskaldan sjóinn. Hann
hafði þó erindi sem erfiði, eftir um
kortérs busl í sjónum var allt komið i
lag.
— Næsta dag var svo aftur lagt af
stað til Bordeaux með viðkomu á Ile de
Yen og Les Sables-D’Olonne. Bordeaux
liggur 60 mílur uppi i landi og þar sem
við vissum að við yrðum að fella möstrin
áður en lengra yrði haldið fórum við að
Frá radíóinu bárust
stöðug neyðarköll,
Mayday, Mayday, og
neyðarástandi var lýst
yfir á svæðinu.
svipast um eftir hentugum stað til þess.
Fljótlega fundum við skútulægi þar sem
öli aðstaða var hin besta og var það
fyrsta verk áhafnarinnar að kasta sér í
koju eftir sólarhringsvöku á siglingu. En
ekki var okkur ætluð hvildin því eftir
aðeins tíu minútur fór stór dráttarbátur
fram hjá okkur með svo miklum látum
að Bonný sleit sig lausa að aftan. Við
gátum því afskrifað hvíldina að sinni og
réðumst í að fella möstur og reiða. Við
þurftum að leigja okkur litinn hifikrana
og kostaði það 15.000 krónur.
Þegar þessu var lokið var komið fram á
miðjan dag og orðið of seint að leggja af
stað inn i Canal du Gironne. sem var sá
fyrsti af þremur skurðum sem við ætluðum
i gegnum. Við áttum enn eftir 30 mílur