Vikan - 24.04.1980, Page 23
þroska. Orðaforði hans yrði takmarkaðri
og hvað þaðsnerti mundi hann aldrei ná
jafnöldrum sínum. Ted skrifaði út
ávísun á leikskólann „Kisulóru".
Samt létti Jóhönnu ekki til neinna
muna. Stundum klæddi Ted Billy á
morgnana og fór með hann í leikskól-
ann. En Billy kom aftur heim á hádegi
og henni virtist dagurinn endalaus. Allar
mæðurnar voru sammála um „að svona
væru öll þriggja ára börn”. en það var
ekki mikil huggun fyrir hana sem varð
að striða við þá staðreynd að hann
borðaði ekki brauðið sitt nema það væri
skorið á sérstakan hátt, hann drakk ekki
mjólkina sina ef hún var í glasinu með
fílnum á heldur varð hún að vera í
glasinu með myndinni af trúðnum.
Hann neitaði að teikna á pappír ef á
honum sást hrukka og borða ham-
borgara ef á honum sást skorpa. Randy í
leikskólanum átti gult þríhjól með bjöllu
en ekki lúðri og tuttugu mínútum eftir
að hreingerningakonan hafði hirt 20
dalina sína voru gólfin stöm af eplasafa.
Og svo kom Ted heim á kvöldin og
kvartaði undan þvi að allt kostaði svo
mikið, að fyrirtækið gengi ekki nógu vel
og kannski yrði að lækka við hann
kaupið. En að minnsta kosti hafði hann
vinnu til að fara í þar sem fólk ræddi
verð á síðu og lesendafjölda. Ekki bara
teiknimyndasögur. — Nei, Billy, þú
mátt ekki borða issamloku í morgunmat.
Og þó var hann svo indæll líka, svo
yndislegur að horfa á, en það var ekki
nóg.
— Ég er að koma. Ég var á klósettinu.
1 guðanna bænum. geturðu ekki sjálfur
náð í vörubilinn?
— Mamma, ekki öskra á mig.
— 1 guðanna bænum hættu að skæla.
En hann grét enn hærra og hún
tók hann í fangið og huggaði hann. En
hún hafði engan til að hugga sig.
FJÓRÐI KAFLI
Hún lék Mjallhvít i skólaleikriti en sú
Mjallhvít var með útbrot. Þegar hún var
tilnefnd fegurðardrottning á árshátíð i
gagnfræðaskólanum fékk hún útbrot.
Þegar hún fór á fyrsta stefnumótið sitt
við Philip, strák sem var við nám i
Harvard, fékk hún útbrot. Foreldrar
hennar voru ósínkir á að kaupa handa
henni nýjar peysur, skartgripi og annað
sem hún þurfti til að vera samkeppnis-
fær á stórmarkaði hinna fullorðnu. Eða
styrkja hana til að borga húsaleiguna
fyrstu árin i New York. Svo að þau
sendu henni ávísun. .Þegar hún átti i
þriðja ástarævintýrinu með giftum
manni fór hún að brjóta heilann um
hvort slíkt væri orðið hluti af lífsmynstri
hennar og hún fékk útbrot. Hún talaði
við móður sína. Móður hennar fannst
hún eitthvað svo annarleg og sendi
henni þess vegna 25 dala ávisun til að
kaupa sér eitthvað fallegt. I hvert sinn
og eitthvað bjátaði á fékk hún útbrot —
og foreldrar hennar geymdu hana alltaf i
bórvatni.
Þegar hún var að'býrja að læra vél-
ritun og hraðritun fann hún strax til
hins hræðilega kláða. Svo steyptist hún
út af flekkjum sem litu út eins og skor-
dýrabit. Þeir hurfu þó á nokkrum
dögum en hún vár strax farin að hafa
áhyggjur af næs'ta skipti. Hún átti erfitt
með að þola taugaálag. Hún hélt skrif-
borðinu sinu snyrtilegu og gætti.þess vel
að dragast ekki aftur úr með verkefni
svo að hún þyrfti aldrei að flýta sér um
of. Hún gætti þess að láta ekki metnað
sinn hlaupa með sig í gönur. Henni
fannst allt i lagi að vera ritari svo
framarlega sem hún væri góður ritari.
Hana langaði ekkert til að líkjast þeim
konum sem lögðu allan sinn metnað í
frama eins ,og yfirmaður afritunar-
deildarinnar sem hafði að vísu mikil völd
en var taugaveikluð og leitaði huggunar
í ofáti. Eða yfirmaðurinn í fjölmiðladeild
sem deplaði augunum í sifellu. Hún vildi
ekki fá útbrot.
— Hvað er þetta? spurði Ted.
Þau voru háttuð og byrjuð að búa sig
undir að sofa saman en það gerðist ekki
svo oft lengur. Kannski einu sinni í viku.
Þriggja ára barn krafðist mikillar
umönnunar. Þau voru bæði oft svo
þreytt.
— Ekkert. Ég hlýt að hafa borðað yfir
mig af ávöxtum.
Tennis reyndist rétta meðalið. Eftir
nokkurra klukkustunda veru á tennis-
vellinum hurfu útbrotin. Eftir nokkrar
vikur var hún algjörlega orðin háð
tennistimunum sinum. Foreldrar
hennar höfðu greitt fyrir hana tennis-
kennslu á menntaskólaárunum alveg
eins og þau höfðu áður greitt fyrir píanó-
tíma og danskennslu. Hún lék oft tennis
á háskólaárunum og strákarnir sem hún
lék við voru fullir aðdáunar á því að hún
skyldi yfirleitt geta komið boltanum yfir
netið. Hún hafði ekki leikið tennis svo
oft eftir að hún flutti til New York.
Stundum í sumarleyfum áður en hún
hitti Ted. Hún lék aldrei tennis við Ted.
Framhald í næsta blaöi.
LANDSINS STÆRSTA
LAMPAÚRVAL
LAMPASKERMAR
LOFTLAMPAR
VEGGLAMPAR
BORÐLAMPAR
GÓLFLAMPAR
STOFULAMPAR
BORÐSTOFULAMPAR
GANGALAMPAR
ELDHÚSLAMPAR
BLOSSOM
Frábært shampoo
BLOSSOM shampoo freyöir vel, og er fáanlegt
i 4 gerOum.
Hver og einn getur fengiO shampoo viO sitt hæfi.
Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel lika.
Heildsölubirgðir.
KRISTJÁNSSON HF.
Ingólfsstrsti 12. simar: 12800 - 14878
SVEFNHERBERGISLAMPAR
BAÐLAMPAR
ÚTILAMPAR
LESLAMPAR
MÁLVERKALAMPAR
VINNULAMPAR
RÚMLAMPAR
BARNALAMPAR
HRÍSLAMPAR
MÁLMLAMPAR
GLERLAMPAR
KRISTALLAMPAR
TAULAMPAR
MARMARALAMPAR
VIÐARLAMPAR
LJÓSKASTARAR
LJÓS & ORKA
Sudurlandsbraut 12
síini 84488
17. tbl. Vikan 13