Vikan - 24.04.1980, Qupperneq 30
Draumar
Giftingarhringur
födur míns
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða þennan draum er mig
dreymdi. Hann er svona:
Mér fmnst ég vera komin
heim til skólasystur minnar, er
við köllum M. Mér er illa við
þessa stelpu. Ég banka á dyr og
Skop
kemur hún til dyra. Ég spyr
hvort bróðir hennar sé heima,
því ég þurfi að tala við hann.
Hún segir að hann sé inni í
herbergi hjá sér og segir mér að
fara inn. Þegar ég kom inn
segir hann mér að setjast á
rúmið sitt og geri ég það. (Þessi
strákur í draumnum er ekki
bróðir þessarar stelpu í alvöru.
Ég man vel eftir andlitinu á
honum en ég hef aldrei séð
hann áður.) Þá segi ég að mér
hafi verið sagt að hann hafi
giftingarhring föður míns og ég
segi líka að ég vilji ekki að
móðir mín viti að hann hafi
selt hann fyrir brennivín. Þá
stakk hann upp á því að við
skyldum ganga út og tala
saman. Nœst þegar ég man
erum við komin að búð langt
frá húsinu sem ég var fyrst í.
Þá verður mér litið út á sjóinn
og sé ég þá flokk hreindýra
hlaupa inn eftir flrðinum og
tvœr stelpur á eftir þeim. Þá
kemur hraðbátur á eftir þeim
og í honum voru tveir strákar
á bláum nærbuxum. Meðan á
þessu stóð var ég alltaf að biðja
strákinn að láta mig hafa
hringinn því ég vildi ekki að
móðir mín vissi að faðir minn
hefði látið hringinn. Ég var að
tuða þetta þegar ég vaknaði.
Sporðdreki.
Til þess að ráða þennan draum
svo nokkurt mark sé á takandi
hefði draumráðandi þurft að
vita nafn stráksins í draumnum
og stelpunnar líka. Líklegt má
telja að draumurinn boði þér
einhver vonbrigði í ástamálum
en þó varla langvinn.
Táknin eru fremur ógreinilega
og ruglingsleg og ekki ólíklegt að
þú gleymir einhverjum mikils-
verðum atriðum í draumnum,
sem þér finnst að skipti litlu sem
engu máli.
Eitthvað kemur draumurinn
inn á fjárhagsafkomu sem
verður venju fremur í góðu lagi.
Hópur fólks
ruddist
inn í bílinn
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig um
að ráða þennan draum fyrir
mig því mér flnnst hann
merkja eitthvað sérstakt. Og
hér er hann:
Ég átti að fara með skipi
eitthvað út í lönd og fór ásamt
fleirum niður eftir í bíl, þar á
meðal var pabbi. Hann
stoppaði bílinn niðri ísand-
fjöru og hann og hitt fólkið
gengu niður í skipið.
Einhvern veginn vildi það
svo til að ég fór ekki strax úr
bílnum (sat frammi í). Þá réðst
allt I einu hópur fólks inn í
bílinn og ætlaði að stela
honum. Ein kona í bleikri
dragt og með sólgleraugu
ruddist inn til mín og ætlaði að
keyra af stað en ég náði
lyklunum að bílnum. Á
lyklakippunni voru lykill og
blýantur.
Ég hljóp út úr bílnum en þá
sá ég að bíllinn fór af stað. Þau
höfðu verið með lykil sem gekk
að bílnum. Síðan labbaði ég
niður í skip og fór um borð.
Lagt var af stað skömmu síðar.
1 draumnum hafði ég enga
káetu en fór að skoða mig um
og sá hóp fólks við einhvers
konar hreinsunarvinnu, þó ekki
neins konar venjulega skips-
vinnu heldur gólfskúringar og
fleira.
Allt fannst mér þetta gerast
sama daginn og síðar þann dag
tók ég eflir því að ég var orðin
barnshafandi. Þá hræddist ég að
mamma eða einhver tæki eftir
þessu og það gerði hún einmitt
en lét eins og þetta væri ósköp
eðlilegt.
Síðar sit ég uppi á einhvers
konar spýtu og þá kemur til
mín strákur, X að nafni, semég
þekki vel.
Hann segir: Við skulum
engan láta frétta þetta. Þá
sagði ég: Af hverju viltu það
ekki, ekkert átt þú í barninu.
„Jú, ” sagði hann, „ég á það. ”
En ég sagði honum að það
gæti ekki passað að ég væri
ólétt því ég hefði aldrei hleypt
strák upp á mig, þetta hlyti
bara að vera eitthvað annað.
„Nei, ” sagði hann, „þú
manst bara ekki eftir því og ég
rétt man það sjálfur. ” (Ég átti
að hafa verið drukkin þegar
það gerðist.)
Og síðan var þessi strákur
alltaf að aðstoða mig eitthvað,
en mér leið mjög illa.
Meira man ég ekki úr
draumnum en vona að þú getir
ráðið hann fyrir mig.
Takk fyrir.
8879-2068
Flest táknin benda til talsverðra
breytinga á högum þínum og
tengjast þau fréttum sem þér
berast innan tíðar. Farðu mjög
gætilega í allar framkvæmdir og
sérstaklega skaltu gæta þess að
fara varlega með vín í
samkvæmum. Hvernig til tekst
um þessar breytingar á högum
þínum er að mestu leyti undir
þér sjálfri komið og þér væri
happadrýgst að treysta ekki um
of á aðra i þeim efnum. í lokin
verður ýmislegt bjartara og með
réttum viðbrögðum ættirðu að
standa betur að vígi en áður var
og eiga kost á fleiri en einni leið
að settu marki.
30 Vikan 17. tbl.