Vikan - 24.04.1980, Síða 31
charm, Are you lonesome tonight, It’s
now or never svo einhver þelrra séu
nefnd) sem engu síður urðu feikivinsæl
um heim allan.
Árið 1967 giftist Presley æskufélaga
sínum Pricillu og eignuðust þau eina
dóttur. Hjónabandið stóð stutt eða til
ársins 1973 og má segja að þá hafi
óhamingjan sótt Presley heim.
Þunglyndi og heilsubrestur hrjáðu hann
síðustu ár ævinnar og bar hann þess
greinilega merki í þau tiltölulega fáu
skipti sem hann kom fram. Hann kaus
einveruna fremur en að baða sig í
frægðarljómanum.
Hann lést sumarið ’77 aðeins 42 ára
að aldri. Tugir útvarpsstöðva í
Bandaríkjunum og viðar rufu
útsendingu og sögðu tíðindin — sjálfur
kóngurinn var fallinn í valinn. Þess var
og kirfilega getið í heimsfréttunum.
Útför hans var sem verið væri að fylgja
þjóðhöfðingja til grafar — slíkur var
mannfjöldinn og enn þann dag í dag
flykkjast aðdáendur hans ár hvert að
leiði hans í borginni Memphis og votta
honum virðingu sina.
Með Elvis Presley hófst tlmi
rokksins.
Brautryðjandi rokksins —
sameinaði margt úr dægurmúsík
hvitra jafnt sem svartra og túlkaði á
einstakan máta.
Dáðasti dæguriagasöngvari okkar
tíma.
músík svartra (Blues) sem hvítra (Country
and Westem) og vakti hann þegar athygli
fyrir söng sinn og sviðsframkomu. Hróður
hans óx dag frá degi og árið 1955 komst
hann I kynni við kunnan umboðsmann,
Tom „Colonel” Parker að nafni, sem á
fáum árum gerði Presley
að einu mesta goði dægurtónlistarinnar.
Hann valdi honum aðeins bestu staðina
til hljómleikahalds, kom honum í
stærstu sjónvarpsstöðvarnar, samdi við
kvikmyndafélögin o.fl. — og alltaf fyrir
svimháar upphæðir. Þá hélt hann
„pressunni” alltaf I hæfilegri fjarlægð
frá stjörnunni og svo mætti lengi telja.
Áður en 7. áratugurinn gekk í garð
— Hinn eini sanni konungur rokksins.
Ummæli af þessu tagi hlýtur enginn
nema Elvis Presley. Setningar sem
þessar er alls staðar að finna t ritum um
rokkkónginn fræga og má til sanns
vegar færa, því fáir ef nokkur
einstaklingur hefur haft jafnmikil áhrif í
heimi dægurtónlistarinnar.
Hann fæddist I East Tupelo í
Missisippi og sleit þar barnsskónum í
foreldrahúsum. Fyrstu kynni Presleys af
söng voru í kirkjukór foreldranna en þau
voru mjög trúrækin og fór sonurinn ekki
varhluta af því. Árið 1948 fluttust þau
til borgarinnar Memphis en ' þá þegar
hafði Presley eignast sinn fyrsta gítar og
unnið til smávægilegra verðlauna fyrir
söng og spil. Segja má að Presley hafi
verið uppgötvaður árið 1953, en þá vann
hann sem sendibílstjóri. Dag einn það ár
tók hann sér frí, leigði stúdíó og söng inn
á plötu lagið My happiness, sem hann
ætlaði móður sinni í afmælisgjöf. Þar
vakti hann athygli nokkurra þefvísra
umboðsmanna, sem voru fljótir að átta
sig á hæfileikum hans og komu honum
þegaráframfæri.
Fyrstu lög Presleys voru jafnt sótt í
kvikmyndum sem hann lék f — King
Creole.
hafði Presley sungið öll sín bestu
rokklög inn á plötur (Blue suede shoes,
All Shook up, Hound dog o.fl.) —
orðinn heimsfrægur og hafði þá runnið
sitt merkasta skeið sem dægurlaga-
söngvari. Eftir það sneri hann sér að
rólegri oghugljúfari lögum (Good luck
Unglingurinn Prcsley fyrir 23 árum.
Popp_________________
HINN EINI SANNI
KONUNGUR ROKKSINS
Nýgift og alsæl — en sælan stóö stutt.
17. tbl. Vlkan 31