Vikan - 24.04.1980, Síða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Viggó litli er kominn upp í rúm
og mál til komið að frændi gamli
komi og segi eina góða sögu fyrir
svefninn. Sagan á að fjalla um
vonda úlfinn sem át ömmuna og
frændi gamli — það er ég.
— Þetta er svo óhugnanleg
saga að það kemur ekki til mála
að ég segi þér hana, er það fyrsta
sem ég segi um leið og ég tylli
mér niður við rúmstokkinn hjá
Viggó litla. — Viltu ekki frekar
að ég segi þér söguna um Nýju
fötin keisarans?
— Ég get ekki sofnað nema ég
fái að heyra úlfasöguna!
Það er þrjóska í svip Viggós,
þrjóska og viljastyrkur.
— Ókey, segi ég, þú færð
þessa hryllingssögu þína en
hlustaðu nú vel:
— Einu sinni var lítil stúlka
sem hét Rauðhetta. Hún átti
ömmu sem var bæði gömul og
veik og bjó langt úti í stóra
ÞEGAR
ÚLFURINN
ÁT ÖMMU...
skóginum. Dag einn segir móðir
Rauðhettu við hana: — Elsku
Rauðhetta mín! Geturðu ekki
skotist með ellilífeyrinn, nokkur
vínarbrauð og flösku af Egils-
appelsíni til hennar ömmu
þinnar úti í skóginum? Jú, jú,
Rauðhetta fór út í skóg en þar
varð á vegi hennar ógurlega stór
úlfur með augu á stærð við
undirskálar....
— Hægan nú, vinur, skaut
Maríanna inn í. Þetta er úr
Eldfærunum, þú mátt ekki rugla
þessu öllu saman.
— Hvers vegna ekki? Það sem
skiptir máli er að drengurinn fái
réttan skilning á sögunni —
hann má ekki halda að þetta
hafi verið einhver smáhundur
sem Rauðhetta hitti . . . annars,
það væri líklega betra að hafa
hund í sögunni, drenginn
dreymir illa ef honum eru sagðar
hræðilegar úlfasögur svona rétt
fyrirsvefninn!
— Góðan daginn, sagði
hundurinn, hvert ert þú að fara
með þessa vinflösku?
— Þú varst nýbúinn að segja
að Rauðhetta hefði verið með
vínarbrauð og Egilsappelsín
meðferðis.
— Jæja þá! Vínarbrauð og
appelsín ... skárra væri það líka
ef gamla konan væri að drekka
vín, alein úti í skógi! Leggðu frá
þér þetta myndablað og
hlustaðu, drengur! Úlfurinn —
hundurinn á ég við —
hundurinn hljóp af stað og dró
ekki af sér fyrr en hann var
kominn alla leið að litla
pönnukökuhúsinu þar sem
amma gamla bjó. Hann var
ekkert að hika við það heldur
tókst á loft og stökk inn um einn
gluggann á pönnukökuhúsinu
og gelti svo hátt að amma gamla
varð hrædd, hljóp inn á klósett
og læsti að sér. Hundurinn
lagðist þá upp í rúmið hennar,
dró sængina upp að eyrum og
svaf í 100 ár eins og Þyrnirós...
— Hvað segirðu eiginlega,
maður? Maríanna leit illilega á
mig. Svaf í 100 ár? Vitleysa er
Stjörnuspá
llrúiurinn 2l.mars 20. jifiríl Naulifl 2l.upríl 2l.mai
Vinur þinn gerir þér
ómetanlegan greiöa.
Virtu það við hann því i
raun og veru áttir þú
þetta ekki skilið vegna
framkomu þinnar, sem
hefur verið i meira lagi
ámælisverð.
Mikill lífsleiði hefur
hrjáð þig að undanförnu
og hefur haft slæm
áhrif á framkomu þína
gagnvart nánustu
vinum og ættingjum.
Hresstu þig við því betri
tímar renna upp innan
tiðar.
Ttíburarnir 22.mai 21. júni
Varastu að gera þér of
háar hugmyndir um
vináttu og ást því það
gæti valdið þér sárum
vonbrigðum seinna.
Reyndu að njóta sem
mestrar útiveru því
heilsan er ekki sem best.
hr.-'hhinn 22.júni 2.V júli
Hafðu vakandi auga
með öllu sem gerist í
kringum þig. Auknar
líkur eru á þvi að þig
hendi eitthvert happ
sem gerir ýmislegt
léttara en verið hefur á
síðustu vikum.
I.jonið 24. juli 24. ii<ú*l
Rólegir tímar fara i
hönd og þú nýtur lifsins
í ríkum mæli. Reyndar
hefurðu átt við nokkra
erfiðleika að stríða
undanfarið og átt því
hvíldina fullkomlega
skilið að lokum.
Mcjjiin 2-í.;iiíúsl 2.Vu-pl.
Skipuleggðu tima þinn
eins vel og þú getur því
mikið annriki er fram-
undan. Allt er að vísu
með betra móti innan
fjölskyldunnar og skapið
því léttara en oft áður.
\»líin 24.\cpc. 2.V«hl.
Hroki og kæruleysi eru
ekki bestu hjálpartækin
við að ná árangri i
lífinu og afla nýrra
vina. Reyndu að lita
atburði og fólk öðrum
augum og gleymdu ekki
að taka tillit til annarra.
Sporúclrckinn 24.«kl. !í.\.n«\.
Andlegt ástand þitt er
ekki upp á marga fiska
enda rökrétt afleiðing af
heilabrotum í einveru
og volæði. Hertu þig
upp og farðu út að hitta
annað fólk, enda ýmis-
legt óvænt í vændum.
Ilntíiiiaúurinn 24.n«\. 2l.úcs
Dugnaður þinn og
áhugi er ódrepandi,
enda vikan viðburðarík
og spennandi. Flest
gengur sinn vanagang
heima fyrir en likur á
hreyfingu þar þegar
helgin nálgast.
Slcingcilin 22.úcs. 20. jan!
Eitthvað sem þú hafðir
undirbúið fer á annan
veg en þú ætlaðir og þú
tekur það allt of nærri
þér. Vandinn leysist
með timanum og engin
ástæða til að láta sér
fallast hendur.
\alnshcrinn 2l.jan. lú.fchi. Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars
Hvar sem þú ferð
vekurðu athygli fyrir
dugnað og jákvæð
framkoma þín hefur
áhrif á fólk í kringum
þig. Berðu höfuðið hátt
þótt rógburð beri að
eyrum, þvi undirrótin er
öfund.
Vikan byrjar með
ýmsum áföllum og þér
virðist sem ekkert muni
ná fram að ganga. Láttu
þetta ekki ná of sterkum
tökum á þér því siðari
hluta vikunnar verður
hamingjusólin hátt á
lofti.
34 Vikan 17. tbl.