Vikan - 24.04.1980, Side 35
þetta, það vita allir að úlfurinn
át ömmuna.
— Ég hélt að við hefðum
verið sammála um að hafa hund
í sögunni. Svo lengi sem ég segi
þessa sögu þá skal úlfurinn ekki
fá að snerta hár á höfði
aumingja gömlu ömmunnar. Er
ekki nóg að hundurinn reki
gömlu konuna fram úr rúmi
sínu og láti hana skjálfa á blautu
baðherbergisgólfinu? Það fær
mig enginn til að lýsa því
hvernig úlfar fara að því að rífa
hendur og fætur af gamal-
mennum langt frá öllum manna-
byggðum. Það hljóta að hafa
verið sjúkir menn sem bjuggu til
þetta ævintýri í upphafi. Svona
ævintýri geta verið góð fyrir
fullorðið fólk, sérstaklega á
slæmum tímum eins og við
búum við núna. En ef á að fara
að segja þau börnum þá er það
skylda sögumanns að ritskoða
efnið rækilega svo það valdi ekki
varanlegum skaða. Ef ég læt
hundinn fara að gleypa ömmu
gömlu í heilu lagi verður það
einungis til þess að Viggó litli
verður skíthræddur við alla
hunda það sem eftir er.
En Maríanna er ekki af baki
dottin:
— Þú getur ekki skipt á úlfi
og hundi í sögu sem þessari. Og
því get ég lofað þér að ef þú vilt
fá almennilegan endi á söguna
þá kemstu ekki hjá því að fórna
ömmunni í lokin....
— Aldrei! Hún er bæði gömul
og veik og sé þess einhver kostur
þá skal ég halda í henni líftór-
unni þar til yfir lýkur. En hlust-
aðu nú vel á, Viggó minn.
Rauðhetta kom um síðir inn í
pönnukökuhúsið og sagði við
hundinn sem lá í rúmi ömmunn-
ar: — Hvers vegna ertu með
svona löng eyru, amma mín? —
Jú, sjáðu til, svaraði hundurinn,
það er vegna þess að ég er
Cocker spaniel og eins og allir
vita eru þeir með löng, lafandi
eyru. Svo stökk hann fram úr
rúminu, át allt vínarbrauðið og
sullaði í sig Egilsappelsíninu
þannig að Rauðhetta fékk ekki
neitt. Svo er sagan ekki leng...
— Hvernig var það með
veiðimanninn sem fyllti maga
úlfsins — ég meina hundsins —
með grjóti? Maríanna var
óþreytandi við að beina mér inn
á réttar brautir.
— Já, segðu mér allt um það,
frændi!
Nú er mér vandi á höndum.
Ég sit drjúga stund og velti fyrir
mér hvernig ég fari að þvi að
koma þessari vítaverðu meðferð
á dýrum heim og saman við þá
skynsamlegu sögu sem ég tel
óhætt að segja 5 ára snáða.
— Jú, sjáðu nú til.
Veiðimaður einn, sem af
tilviljun átti leið fram hjá
pönnukökuhúsinu, varð þess
var að óþekki hundurinn, sem
alltaf var að stríða kanínunum í
skóginum, var kominn inn í
pönnukökuhúsið til ömmu
gömlu. Að vanda brást hann
skjótt við, flæmdi hundinn út úr
húsinu og írafárið var svo mikið
að vesalings hundurinn féll ofan
í brunn sem var fyrir utan húsið.
Veiðimaðurinn flýtti sér að
byrgja brunninn með grjóti
þannig að öruggt væri að
hundurinn slyppi ekki upp fyrr
en félagar úr dýraverndunar-
félaginu kæmu og tækju á honum
fulla ábyrgð í framtíðinni. Og
þannig endaði þetta allt vel eins
og í öllum góðum ævintýrum.
Amma hresstist öll við og var
sett á elliheimili enda ótækt að
svona gömul kona búi ein síns
liðs langt inni í skógi og í húsi
sem ekki einu sinni er einangrað.
— Hvernig hresstist hún,
frændi?
— Það var þannig .... á svip
Maríönnu sé ég að nú er hún
viss um að ég sé kominn í klípu.
En svo er aldeilis ekki. Ég er
tilbúinn með lausn á öllu saman.
— Amma hresstist vegna þess
að hún át ekki öll vínarbrauðin.
Ef hún hefði gert það þá hefði
henni orðið meira en lítið illt
í maganum. Þú verður að muna
að það borgar sig aldrei að borða
fleiri en eitt vínarbrauð í einu.
Farðu nú að sofa, vinur.
En það er af og frá.
Drengurinn vill fá meira að
heyra.
— Segðu mér söguna um
Litla Kláus og Stóra Kláus.
Ég er harður í horn að taka og
lýsi því yfir að dagskránni sé
lokið í kvöld. Fyrir nú utan að
sagan um Kláusana tvo er svo
grimmúðleg að tæpast er hægt
að hafa hana eftir, hvað þá í
návist lítilla barna. Ef segja á þá
sögu verður að umskrifa hana
frá byrjun og fram á síðasta staf.
Hvernig á maður að geta sagt
litlum börnum frá því að dáin
kona sé drepin í annað skipti
með exi, síðan sett upp á vagn
og ekið með hana á krá þar sem
tilraun er gerð til að drepa hana í
þriðja skiptið. Á maður kannski
að segja börnum umhugsunar-
laust frá því þegar sveitakonan
drekkur, svallar og skemmtir sér
með öllum sem vilja á meðan
bóndi hennar er fjarstaddur.
Eða þá um kúasmalann sem
troðið er í poka og hent í á þar
sem hann drukknar á kvala-
fullan hátt? Er einhver hemja að
segja börnum slíkar sögur 5
minútum áður en þau fara að
sofa? Skoðun mín er sú að slíkt
nái ekki nokkurri átt. — Ef þú
ferð ekki að sofa núna þá kemur
ljóti karlinn og tekur þig!
Ég er orðinn þreyttur og sé
enga ástæðu til að útskýra hver
þessi ljóti karl er. Þýð.: ej
17. tbl. Vikan 35