Vikan - 25.12.1980, Síða 9
Áramótasamkvæmið
Um áramót er til siðs að vinir og ættingjar
safnist saman til hátíðahalda. Þá er gaman
að bjóða upp á góðan mat og drykk. Hér
fara á eftir nokkrar uppskriftir að púnsi
eða bollum svokölluðum, svo og
samkvæmisréttir. Drykkirnir eru bæði
heitir og kaldir, óáfengir og áfengir. Allt
efni til lögunarinnar ætti að fást í stærri
kjörbúðum landsins. Einnig má benda á að
í versluninni Jurtinni við Lækjartorg í
Reykjavík fæst mjög mikið úrval af kryddi,
þar á meðal allt sem notað er í þessar
uppskriftir. Drykkirnir eru einfaldir í lögun.
Athugið að ef óskað er sterkara krydd-
bragðs er ágætt að láta kryddið standa í
leginum yfir nótt í potti með hlemmi. Þar
sem fyrirskipað er að drykkinn eigi að
kæla í nokkrar klukkustundir fyrir fram-
reiðslu er það alveg nauðsynlegt til að allt
blandist vel og hið æskilega bragð náist.
Púns eða bollur er borið fram í stórum
skálum eða jafnvel fallegum pottum og
ausið í glös og könnur.
Hellið yfir ísmola í púnsskál. bætið engi-
feröli saman við. Ef vill má setja ananas-
og appelstnusneiðar i púnsið þegar borið
er fram. Um 7 lítrar, ætti að duga í
a.m.k. 35 glös.
Brúðkaupsbolla
10 flöskur af kampavini
3/4 bolli koniak
3/4 bolli gult Chartreuse
3/4 bolli Cointreau
9 flöskur sódavatn
sneiðar af appelsínum. sítrónum og
ananasef vill.
' Öllu blandað saman, ísmolar settir i
púnsskál og bollunni hellt yfir, síðast eru
ávaxtasneiðarnar settar út í. Um 10
litrar, i að minnsta kosti 50 glös.
Tommi og Jenni
12 egg. aðskilin hvita og rauða
6 msk. sykur
steytt múskat
2 bollar romm
2 1/2 bolli viskí eða brandí
heit mjólk eða sjóðandi vatn
Þeytið eggjarauður og sykur í hrærivél
þar til þlandan . er þykk og ljósgul, bætið
við 1 tsk. múskat. Stífþeytið eggja-
hvíturnar og setjið varlega saman við.
Bætið rommi út í, hrærið í og kælið í
nokkrar klukkustundir. Setjið í skál.
Setjið um 1 msk. i heitar könnur, setjið
skvettu af viskíi eða brandíi í hverja
könnu og fyllið með sjóðándi mjólk eða
heitu vatni. Hrærið í og setjið smávegis
af steyttu múskati yfir. Fyrir 12.
Ananasbolla
1 fl. vodka (kláravín)
2 fl. sætt hvítvin
2 1 síeíurananassafi
sykur (ef vill)
vatn (ef vill)
Blandið saman vodka (kláravini), hvít-
víni og ananassafa. Kælið í nokkrar
klukkustundir. Ef óskað er eftir sætari
drykk *má setja nokkrar msk. af sykri
saman við. Hrært vel svo sykurinn
leysist upp. Setjið vatn eða sódavatn
saman við til þynningar ef vill. Borið
fram með ísmolum og ananaskurli.
Nægiríum 15-20 glös.
Sangría
4 fl. rauðvín
4 glös brandi
4 glös portvýi
1 1 sítrónulímonaði (lemonade)
nýir. brytjaðir ávextir — appelsinur.
epli. perur, vinber
Blandið öllu í stóran pott og blandið vel
saman. Berið fram vel kælt með
ísmolum. Nægir í 20-30 glös.
Ávaxtabolla
4 flöskur hvítvín eða ávaxtavín
4 glös brandi
200gsykur
sódavatn (ef vill)
nýir, brytjaðir ávextir
Setjið ávextina i skál og stráið sykri yfir
og þá þrandii. Gerið þetta daginn áður
en drekka á bolluna svo að ávextirnir
marínerist í brandíinu í 12-24 klst. Bætið
kældu víninu þá saman við. Þynnið með
sódavatni ef vill. Borið fram ískalt.
Nægirí 15-20 glös.
Appelsínu-ananas-
drykkur
(óáfengur)
1/2 1 ananassafi
3 1 vatn
3 I hreinn appelsinusafi
Öllu blandað saman, ísmolar og ávaxta-
bitar settir saman við. Nægir í um 30
glös.
Glögg
(óáfengt)
6 dl sólberjasaft
6 dl eplamauk
1 dl rúsínur
20 afhýddar möndlur
2 stk. negulnaglar
1 stk. heill kanill
sykur
Blandið öllu saman i pott. Hitið og
bragðbætið með sykri. Berið drykkinn
fram með fleiri möndlum og rúsínum. í
um 6 glös eða könnur.
52. tbl. Vikan 9