Vikan - 25.12.1980, Blaðsíða 19
Áramótauppgjör
SIGURÐUR ÞORLÁKSSON:
„Það er allt jafnfáránlegt, þessii
eilifi eltingaleikur við hækkanir
er kannski langfáránlegastur af
öllu.”
GUÐRUN MATTHÍAS
DÓTTIR
(vinnur í bókabúð):
Ut-SS r *T1 " ,,/%l
1 '.J]
MAGNÚS KARL
ANTONSSON í tóbaksverslun-
inni Bristol minntist margra
skemmtilegra tilvika frá árinu.
Ekki síst hvað fólk spyrði um
ótrúlegustu hluti í búðinni. „Það
er komið hingað og spurt um
hvað sem er, meira að segja
grænmetisskera!” sagði Magnús.
En , það sem hann sagðist
persónulega vera mest að furða
sig á væri að á hverjum morgni
þegar hann færi í buxurnar sæi
hann eftir ístrunni sem hann
væri búinn að missa.
Hverju myndir þú svara ef blaða-
maður gengi að þér, þegar þú átt
þör einskis ills von, og spyrði hvað
þör fyndist furðulegast af þvi sem
gerst hefur á þessu ári? Ætli þör
yrði ekki orðfall. En svo, þegar
betur er að göð, er alltaf eitthvað
furðulegt að gerast í kringum þig.
Og það kom upp úr dúrnum, þegar
blaðamenn Vikunnar fóru á stúf-
ana, að heilmargs var að minnast
frá liðnu ári, og flestir voru alveg til
i að veita lesendum blaðsins hlut-
deild í þvi. Hvernig vœri að lita yfir
árið 1980 sömu augum og þetta
ágœta fólk og spyrja sjálf ykkur og
vinina: Hvað finnst þör
furðulegast. . .?
Sonur minn er búsettur úti ú
landi og eitt sinn skrapp ég i
heimsókn til hans. Ég hafði frétt
að fyrir dyrum stæði árshátið
hestamannafélagsins svo að ég
hafði sparikjólinn með. Ég fór á
ballið og dansaði tjútt við
heiðursgestinn. Nú, konan hélt
að hún væri svo ung og herrann
líka, og hann bara niissti konuna
og hún skall í gólfið og hand
leggsbrotnaði!
Ég fór í myndatöku upp á
spítala og það kom í Ijós að
brotið hafði skekkst eitthvað.
Mér fannst læknirinn vera
heldur svifaseinn að sinna mér.
hann virtist hafa í mörgu öðru
að snúast. Mér leiddist biðin svo
að ég hafði á orði að það væri
ekki furða þótt brotið skekktist.
niér hefði verið sagt að fara
strax að vinna aftur. Jæja. spyr
læknirinn, og hvað gerir þú? Ég
sel Auði Haralds, svaraði ég.
Eftir það fékk ég alveg fyrir
taks þjónustu.
52. tbl. Vlkan 19