Vikan - 22.01.1981, Síða 38
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Jæja,
hvað finnst þér
þá?
Eg er alltaf fyrsti maður til að
viðurkenna að ég er ekki full-
komnasti eiginmaður í heimi.
Hver er alveg gallalaus? Frá
náttúrunnar hendi er fullt af
göllum innbyggðir í hvern
einasta eiginmann. Sem betur
fer eru gallarnir í mínu tilfelli
ekki tiltakanlega alvarlegir en
ég hef þó einn mikinn galla,
það viðurkenni ég án þess að
reyna að réttlæta mig á
nokkurn hátt, og þennan galla
hef ég haft alla mína
hjúskapartíð.
Gallinn er sá að ég hef ekki
augu í kollinum. Eða ef maður
orðar það alþýðlega: Ég tek
ekki eftir því þegar Maríanna
er búin að kaupa eitt eða annað
nýtt til heimilisins, hvort sem
það er eitthvert smáglingur,
blómstrandi begónía, nýr
skermur á gólflampann eða
hvað það nú annars getur
verið. Kannski er það lítil,
falleg svunta, nýir skór, lítill
sætur hattur eða hvað annað
sem húsmóður getur dottið í
hug að nota aurana í. Þá sem
hún klípur af heimilispening-
unum.
Ég bara sé það ekki, ég get
ómögulega komið auga á það.
Jú, auðvitað get ég það en ég er
bara ekki þannig gerður. Ekki
fyrr en athygli min er vakin á
því, ekki fyrr en ég er beinlinis
dreginn upp að hlutnum.
Maður hefur um ýmislegt
annað að hugsa og svo sest
maður bara niður með dag-
blaðið eða fer beint að borða
og hefur ekki rænu á að líta
fyrst í kringum sig í stofunni og
athuga hvort maður komi auga
á eitthvað nýtt. Maður teygir
sig bara í kjötbollurnar og
borðar með góðri lyst, þar til
allt í einu hljómar:
— Jæja, hvað finnst þér þá?
Þú ert ekki farinn að segja
neitt. Líst þér kannski ekki á?
Og maður hefur nóg að gera
við að líta í kringum sig. Ef
maður er heppinn kemur
maður strax auga á þetta nýja
en ef lánið leikur ekki eins við
mann kemur maður alls ekki
auga á það og situr bara eins og
klessa með bjánalegt glott á
andlitinu og veifar gafflinum.
Maður sér ekki aðra undan-
komuleið en að spyrja gætilega
til að þrengja hringinn.
— Finnst, hvað áttu við?
— Hamingjan hjálpi mér,
sérðu ekkert. Ég er búin að
kaupa nýja silkiskerma á vegg-
lampana. Ég kveikti meira að
segja á þeim svo þú sæir þá
betur.
Svo lítur maður á það. Það
er alveg stórfurðulegt að manni
skuli hafa yfirsést.
— Þeir eru ljómandi
fallegir. Alveg stórfínir. Að
ég skuli ekki hafa komið auga á
þá fyrr.
— Þú ert alltaf nógu fljótur
að koma auga á kjötbollurnar.
Hún hefur rétt fyrir sér. En
maður rennur líka á lyktina. Á
ég að taka annað dæmi? Það
gerðist líka yfir kvöldmatnum.
Ég var kominn með hnífinn
hálfa leið í meyra, safaríka
Stjörnuspá
llníiurinn 2l.mars 20.april
Þér finnst of margt sett
á herðar þínar um þess-
ar mundir og ættir að
athuga hvort ekki er
hægt að dreifa verk-
efnum á fleiri. Þú veldur
að vísu verkefnunum.
en engin ástæða er til
að þú gerir allt sem gera
þarf.
\auiiA 21.tipral 2l.mai
Þreyta og amstur
siðustu vikna virðist nú
vera að baki. Njóttu
lífsins, þú átt þaðsvo
sannarlega skilið. Og
ekki væri úr vegi að
gera öðrum glaðan dag í
leiðinni. Þér berast
fréttir sern ef til vill
breyta lífi þínu.
Sporðdrekinn 24.okl. IMiiói.
lÁihurarnir 22.mai 21.júni
Samviska þin er ekki
engilhrein þessa dagana
Þú þarft að tala við
ýmsa og leysa úr
flækjum sem seinna
gætu orðið illviðráðan-
legar. Mannlegt eðli er
miklu betra en þú býst
við. svoþérer óhætl.
lloi<madurinn 24.nói. 2Ldcs
Þú hefur hingað til talið
þig heldur lipran samninga
mann, en nú ber svo við
að þér finnst þér hafa
mistekist. Ekki er það
nú alls kostar rétt. en
hins vegar hefur orðið
talsverður misskilningur
sem þarf að leiðrétta
fyrr en síðar.
Leitað verður ráða hjá
þér og þú gætir freistast
til að gefa ráð að
vanhugsuðu máli. Að
þessu sinni ættir þú þó
að vanda vel til málsins
því töluvert mikið er i
húfi. Kannaðu vel mála-
vöxtu áður en þú talar.
Velvild og ánægja
virðist einkenna þessa
daga hjá þér og það
þrátt fyrir talsvert álag
og þreytu. Þér verður
mikið úr verki og nýtur
mikillar hjálpar, jafnvel
svo að þú ferð að hafa
áhyggjur af. Það er
ástæðulaust.
kr. hhimi 22. joni 2.4. júli
Sýndu mikla sanngirni i
samskiptum við þér
minni máttar andlega
eða líkamlega. Þér
virðist eitthvað hætta til
valdbeitingar meðan
stjörnurnar eru i þessari
stöðu.
Muingcilin 22. dcs. 20. jan.
Nú er komið að
nokkrum kaflaskiptum i
lífi þínu sem lengi hafa
verið i aðsigi. Miklu
varðar að þú farir þér i
engu óðslega og takir
rétta ákvörðun. Taktu
tillit til hagsmuna
annarra. einkum þeirra
sem minna mega sín.
I.jóniri 24. júli 24.Í|>ÚM
Bjartsýni og gleði er
rikjandi í kringum þig
en einhvern veginn
hikarðu við að taka þátt
i þvi. Hvað er að? Þú
og þinir nánustu eiga
heimtingu á að þú
reynir að hrista þennan
doða af þér. Ástæðan er
léttvæg þegar til kernur.
\alnshcrinn 2l.jan. I'í.fchr.
Margar freistingar verða
á vegi þinum þessar vik-
urnar og ástæðulaust að
standast þær allar.
Reyndu að halda þeirri
reglu þinni að særa
aldrei aðra vísvitandi og
þá mun þér nokkuð
óhætt, þó þú fallir fyrir
einhveriu.
Fróðleiksþorsti þinn er
takmarkalaus og þú
verð miklum tima til að
afla þér upplýsinga
núna. Láttu það ekki
valda þér hugarangri
þótt þú hafir ekki tima
til að gera allt sem þig
langar. Seinna koma
tímar sem nýtast betur.
Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars
Þú mátt ekki láta þér
sárna kæruleysislegt tal
i einhverjum þér
nákomnum. Það er alls
ekki illa meint, en hins
vegar væri ekki úr vegi
að vekja athygli þess-
arar manneskju á tillits-
leysinu. Hún mun taka
þvi Ijúflega.
38Vikan4. tbl.