Vikan


Vikan - 29.01.1981, Qupperneq 13

Vikan - 29.01.1981, Qupperneq 13
4. hluti Framhaldssaga Sá hlær best ■ ■ ■ . . Ef eitthvað gengur úrskeiðis þá verðið þið ungfrú Glenda ekki til lengur. Það er þitt mál að sjá um þetta.” Hann hló. „Og ég er viss um að þú vilt ekki láta Benny stúta öðru hvoru ykkar.” A morgni sjöunda dagsins gekk Thomson lögreglustjóri að mér þar sem ég var að stíga út úr bílnum mínum. „Sæll. borgari!” „Halló, Joe!” Hann strauk á .sér nefbroddinn með handarbakinu og sagði svo: „Glenda Marsh er ekki á sakaskrá. Þú hefur kannski á réttu að standa: kannski er hún tækifærissinni sem notar nafn Fjár festingar til að ná sér i viðtöl en missti svo kjarkinn og kom sér burt." „Prýðilegt,” sagði ég og breytti ekki um svip. „Já, en ég ætla samt að hafa gát á bankanum.” „Herra Brannigan mun verða ánægður með jsað.” „Þú gætir nefnt það við hann næst þegar þú leikur við hann golf.” Hann starði á mig en hélt svo áfram. „Þessi hugmynd mín að ykkur Manson gæti verið rænt er ekki svo fráleit. Hlustaðu nú á mig: Ef þér finnst einhvern tíma að með þér sé fylgst eða að þú sért eltur. láttu mig vita. Ég læt þá verði fylgjast með þér. Ég er búinn að segja það sama við Manson." „Þakka þér fyrir.” Svo notaði ég orða- tiltækið hans og sagði: „Jæja, þú átt annrikt og ég á annríkt. Við sjáumst." og fór upp á skrifstofuna mína. 1 þili, hugsaði ég, er ég laus við Thom- son. En ég vissi að um leið og Klaus léti brjótast inn i bankann væri Thomson kominn aftur á stúfana á eftir mér. Einhvern veginn komst ég í gegnum viðskiptastörf mín þennan sjöunda dag. Um sjöleytið fékk ég mér steik í Howard Johnson-veitingahúsi og fór svo heim í ibúðina mina. Þar sat ég og beið. Klukkan 21.00 hringdi siminn. Ég lyfti símtólinu. Ég heyrði negrasálm leikinn á munnhörpu. „Svarið er já,” sagði ég. „Allt í lagi, maður, sé þig fyrir utan eftir fimm mínútur,” sagði Joe. Rykugur chevrolettinn beið eftir mér þegar ég kom út. Joe hallaði sér fram og opnaði dyrnar og ég settist inn. „Maður lifandi! Þú ert sannarlega að gera það rétta,” sagði hann. „Ég var skít- hræddur um að þú færir að reyna ein- hver brögð. Veistu svolítið, herra Lucas? Ég er bara niggarastrákur en mér líkar vel við ungfrú Glendu. Mér þætti það ferlegt ef Benny rifi hana í tætlur og það hefði gerst ef þú hefðir reynt eitthvað svoleiðis.” Ég hikaði andartak og svo ákvað ég að láta mér semja við þennan náunga, fyrst ég yrði að vinna með honum. „Ég hef ekki um neitt að velja, Joe,” sagði ég. „Ég verð að gera eins og mér er sagt.” „Það er rétt, herra Lucas, en vertu ekkert að brjóta heilann unt það. Þú kemst í feitt eins og ég.” „Það segir þú. Kannski Klaus sé ekki eins sniðugur og hann vill vera láta." Enn hló Joe. „Hann er það, herra Lucas. Ég væri ekki að taka áhættu fyrir hann ef ég væri ekki viss um það. Ég er búinn að 5. tbl. Vikan 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.