Vikan - 29.01.1981, Side 23
Fegrun
minnst fimm skipti til að góður
árangur néist.
Annað undratæki og ekki siður
merkilegt er notað til háreyðing-
ar. Háreyðing með þessum út-
búnaði er örugg og vita
meinlaus.
Helstu orsakir óæskilegs hár-
vaxtar eru annars vegar ójafn-
vægi í hormónastarfsemi og hins
vegar aukið blóðstreymi til
húðar. Óæskilegur hárvöxtur
þarf engan veginn að vera óeðli-
legur. Eðlileg röskun, ef svo má
að orði komast, á hormónastarf-
semi likamans á ýmsum
umbrotatímum, svo sem á
gelgjuskeiði, við meðgöngu eða á
breytingaskeiði, veldur þessum
aukna hárvexti. Einnig getur
hárvöxtur í andliti eða á útlimum
gengið í erföir og verið nokkurs
konar ættareinkenni. Óæskilegur
hárvöxtur er fyrst og fremst
félagsleg skilgreining. Ekki þykir
fint að kvenfólk hafi hárvöxt i
andlíti. Aðrir ganga enn lengra
og vilja fjarlægja hár af
útlimum sinum. Hefðbundnar
leiðir til að nema burt hár eru
plokkun, rakstur og háreyðingar
lyf. Rakstur hefur engin áhrif á
Vilborg Aradóttir eyðir hárum. Kostnaður far eftir umfangi, frá 35 kr. upp
f 100 kr.
hárvöxt til eða frá, en plokkun og
háreyðingarvax geta þvert á
móti örvað hann. Það stafar af
því að blóðstreymi eykst og rót
og hárslíður styrkjast.
Háreyðing með háreyðingarvél
(thermolysis, diathermy) felst i
því að lágur straumur framleiðir
hátiðnibylgjur sem aftur mynda
hita. Við þetta rofnar sambandið
milli hárslíðurs og hárfruma
annars vegar og héræðanets hins
vegar. Háreyðing með raf-
straumi er langtimameðferð. Hvert
einstakt hár er meðhöndlað og
sum hárin oftar en einu sinni.
Sum eru við það að losna, önnur
hafa nýskotið upp kollinum og
enn önnur eru undir yfirborði
húðarinnar og sjást því ekki.
Vaxtartimi hára (annarra en
höfuðhára) getur verið allt frá
einum mánuði (þau grófustu)upp
í nokkra mánuði. Það er þvi í
fyrsta lagi að liðnum einum til
tveimur mánuðum sem vænta
má árangurs, sifellt færri hár
vaxa aftur.
En það er ekki aðeins
háreyðing sem fengist er við á
snyrtistofunum. Þar fer einnig
fram hárígræðsla. Engum vélum
er beitt, aðeins nákvæmum
handahreyfingum. Hér er átt við
nýjung í gerð gerviaugnhéra.
Notuðeru finleg, handgerðaugn-
hár og þau limd við eigin augn
hár viðkomandi, eitt og eitt í
senn. Augnhár þessi eru mjög
eðlileg að sjá og endast jafnlengi
og eigin augnhár eða i 4-6 vikur.
Þau standast vel böð, sund og
eðlilegt hnjask. Gerviaugnhár af
þessari gerð henta vel þeim
konum sem viðkvæmar eru fyrir
augnháralit þvi ofnæmisáhrif eru
mjög sjaldgæf.
Allar upplýsingar eru frá
Ingunni Þórðardóttur á snyrti-
stofunni Ásýnd, Garðastræti 4 í
Reykjavík, þar sem þessar
aðgerðir standa til boða.