Vikan - 29.01.1981, Side 25
Fagurkerar
fyrir él, í Otúrdúr". Þetta
myndverk, sem verður veitt í
verðlaun á Stjörnumessu Vikunn-
ar og Dagblaðsins, er semsé
táknrænt fyrir tónlist. Það verður
steypt úr áli og þótt það sé ekki í
moll, þá er það þó í dúr — meira
að segja í útúrdúr ! ! !
Gling! Eftir þetta gekk viötalið
eins og í lygasögu, við hlógum að
ýmsum og mismunandi
viðvikum, og öðru hvoru var
stigið niður á plan alvarleikans.
Magnús og Árni héldu nýlega
sýningu í Djúpinu, og i lok
hennar ákváðu þeir að grynna á
myndverkaforðanum, sem var
farinn að valda húsnæðisvanda,
með því að gefa nokkur mynd-
verk. Þeir leituðu til Listasafns
íslands, Hjálpræðishersins og
Listasafns Kópavogs og buðust til
að gefa þeim listaverk.
Þeim mætti aðeins áhugaleysi
og deyfð. Aðilarnir sem fengu
þetta kostaboð sýndu engin
viðbrögð. Svöruðu ekki einu sinni
með nei-i. Það hefði þýtt að þess-
ir aðilar væru á lifi . . . .
— Þetta minnir á stórgjöf sem
Listasafn íslands hafnaði
nýverið, þið hafið fengið ámóta
útreiö?
Nema það að við erum í
húsnæðishallæri.
Viðfengum árslaun til að
smíða útiskúlptúr, en þarsem
veður leyfir ekki að verkið sé
unnið úti vantar okkur húsnæði.
Við erum með morð af hugmynd-
um, en vantar húsnæði.
Um áramótin var ákveðiö að
láta myndlistarmenn að
Korpúlfsstöðum borga leigu fyrir
vinnuaðstöðu þar. Áður var
ekkert tekið fyrir húsnæðið, núna
þurfa menn að borga hátt í
þúsund nýkrónur á mánuöi. Þetta
er það sem kommarnir eru að
gera í borgarstjórn.
Skipta má myndlistarmönnum
í tvo hópa: þeir sem eru nógu
efnaöir (selja nógu vel) og vilja
því ekki vinna á Korpúlfsstöðum,
og þeir sem komast ekki á
Korpúlfsstaði vegna kostnaðar.
Maður er snapandi útum allan
bæ, segja félagarnir. Við tókum
að okkur þetta Stjörnumessu-
verkefni vegn$ peningaskorts, en
einnig vegna þess að þetta var
skemmtilegt viðfangsefni sem að
líkindum mætti læra heilmikið af.
Enda varð raunin sú að við
lærðum mest af fólkinu sem
vinnurhjá málmsteypunni Hellu.
Þeir menn sem þar vinna eru
alveg sérlega þolinmóðir, liprir
og elskulegir.
Árni Páll vill koma á framfæri
hugmyndum sínum um lausn
fjárhagsvanda myndlistar-
manna: ríkið láti reisa grafík-
eða skúlptúrverkstæði hér og þar
um landið. Myndlistarfólki sem
orðiö hefur sér úti um rándýra
menntun sé þannig gefinn kostur
á að nýta hana. Rikið tæki svo út
leigu í myndverkum. Þannig
væri fjérfest í list um landið.
Sem lokaorð vildu Magnús og
Árni hafa eftirfarandi: Biðjum
að heilsa mæðrum okkar sem
hafa þolað okkur næstum eins vel
og konurnar okkar. Mey skal að
morgni lofa. Konur eru þolin-
móðustu kvikindi í heimi.
5. tbl. Vikan 2S